Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 10
Tryggingastofnun
Laugavegi 114 | 105 Reykjavík
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is
P
IPA
R
\TB
W
A
- S
ÍA
Niðurstöður endurreiknings greiðslna ársins 2017
verða birtar á Mínum síðum 22. maí.
Nánar á tr.is
Endurreikningur
greiðslna
ársins 2017
NÝR VALKOSTUR Í MÚRVÖRUM.
FRÁBÆR ÞJÓNUSTA, GOTT VERÐ.
Litað Design flot á
verslanir, skrifstofur
og heimili.
Varanlegt gólfefni,
mikill styrkur.
Litir: hvítt, svart,
ljósgrátt, milligrátt.
LAPIS
Síðumúla 27a, Reykjavík
Sími 540 6500
lapis@lapis.is
www.lapis.is
Bandaríkin Tíu eru látnir og tíu
særðir eftir að byssumaður réðst á
Santa Fe-framhaldsskólann í Texas
í Bandaríkjunum í gær. Tveir hafa
verið handteknir í kjölfar árasarinn-
ar. Annar þeirra, árásarmaðurinn, er
17 ára nemandi við skólann. Hinn
er 18 ára nemandi við skólann sem
talinn er vera vitorðsmaður árásar-
mannsins. Að sögn lögregluyfirvalda
notaði árásarmaðurinn skotvopn
sem höfðu verið keypt löglega af
föður hans.
Þetta er í 22. skipti sem skoti er
hleypt af með þeim afleiðingum
að einhver særist eða deyr í banda-
rískum skóla það sem af er ári. Það
gerir rúmlega eitt skipti í hverri viku.
Skemmst er að minnast þess þegar
sautján voru myrt í árás Nikolas Cruz
á Marjory Stoneman Douglas-skóla í
Parkland í Flórída þann 14. febrúar
síðastliðinn. Sú árás vakti, líkt og
fjölmargar aðrar fjöldaskotárásir
í Bandaríkjunum, mikla reiði og
heyrðust háværar raddir þar sem
nýrra og strangari laga um skot-
vopnaeign var krafist. Lítið var þó
aðhafst.
Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna, sagðist vera sorgmæddur
vegna árásarinnar. „Þetta hefur
fengið að gerast of lengi. Í of mörg
ár, of marga áratugi. Við hörmum
þennan skelfilega missi og sendum
samúðarkveðjur til allra þeirra sem
þessi hrottalega árás snerti,“ sagði
forsetinn. Bætti hann því við að ríkis-
stjórnin stæði með fórnarlömbum
og að hún væri staðráðin í að vernda
nemendur og halda skotvopnum frá
þeim sem gætu skaðað sjálfa sig og
aðra.
„Allir þurfa að vinna saman, á
öllum stigum stjórnmálanna, að því
að vernda börnin okkar. Megi guð
lækna hina særðu og hugga hina
sáru. Megi guð vera með fórnar-
lömbum og fjölskyldum þeirra.
Þetta er sorgardagur,“ sagði Trump
enn fremur.
„Þetta er það sem ég hef óttast frá
því 14. febrúar, að önnur svona skot-
árás yrði gerð áður en við gerðum
eitthvað í málinu. Nú eru átta börn
til viðbótar dáin og yfirvöld í Wash-
ington hafa haldið að sér höndum
og ekkert gert. Það er engin þörf á
bænum, þörf er á aðgerðum og það
strax,“ sagði Fred Guttenberg, sem
missti dóttur sína Jaime í árásinni í
Parkland, í gær. thorgnyr@frettabladid.
is gretarthor@frettabladid.is
Enn ein skotárásin í
bandarískum skóla
Tíu eru látnir og aðrir tíu særðir eftir skotárás í skóla í Texas. Tuttugasta og
önnur árásin á árinu. Skotvopnin voru keypt löglega af föður árásarmannsins.
Enn er deilt um skotvopnalöggjöf í Bandaríkjunum og aðgerða krafist.
austur-kongó Ekki er enn tilefni til
þess að lýsa yfir alþjóðlegu neyðar-
ástandi vegna ebólufaraldurs sem
geisar nú í Austur-Kongó. Þessa
afstöðu tók Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) á fundi
sínum í Genf í gær. Því er ljóst að
ekki verður ráðist í takmarkanir á
ferðalögum til og frá ríkinu enn sem
komið er.
Þann 8. maí síðastliðinn, að því
er kemur fram í fundargerðinni,
var WHO gert viðvart um að tvö til-
felli af ebólu hefðu greinst í Bikoro í
Equateur-fylki. Nú hafi tilfelli einn-
ig greinst í Iboko og Mbandaka,
borg sem telur rúma milljón íbúa.
Alls hafi 45 tilfelli greinst á undan-
förnum rúmum mánuði og 25 hafa
látist, flestir í Bikoro.
Að mati WHO valda einkenni
ebólufaraldursins áhyggjum og er
talin hætta á hraðri útbreiðslu þar
sem smitið hefur nú náð til stór-
borgar.
Afar líklegt þykir sömuleiðis að
sjúkdómurinn smitist út fyrir landa-
mærin þar sem Mband aka stendur
nærri Kongóá. Erfitt sé að koma í
veg fyrir að faraldurinn breiðist út
til nágrannalanda vegna lélegra inn-
viða.
Hins vegar tók WHO fram í fund-
argerðinni að viðbrögð ríkisstjórnar
Austur-Kongó og annarra hefðu
verið snör og góð. Viðbrögðin gæfu
ástæðu til þess að vona að fljótlega
takist að ná stjórn á aðstæðum og
þá boði gott að verið sé að undirbúa
bólusetningu. – þea
Ekki alþjóðlegt neyðarástand
Ebóla er hættuleg veirusýking. Nordicphotos/AFp
ísrael Óhóflegu afli var beitt þegar
Ísraelar réðust gegn mótmæl-
endum á Gasasvæðinu með þeim
afleiðingum að yfir hundrað Pal-
estínumenn fórust. Þetta sagði Zeid
Ra’ad al-Hussein, mannréttinda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, á fundi
Mannréttindaráðs SÞ í Genf í gær.
Hussein sagði enn fremur að íbúar
á Gasasvæðinu væru „hlekkjaðir við
baneitrað skuggahverfi“ og að her-
námi Ísraela á svæðinu yrði að ljúka.
Samkvæmt BBC íhuga SÞ nú
að kalla eftir óháðri rannsókn á
því hvað fram fór á Gasasvæðinu.
Greint hefur verið frá því að ísra-
elskir hermenn drápu um sextíu
Palestínumenn á mánudaginn en
Palestínumenn hafa mótmælt við
landamæravegg Ísraela á Gasa-
svæðinu í sjö vikur. Um var að ræða
mesta mannfall á einum degi á
Gasasvæðinu frá stríðinu árið 2014.
Mótmælin, kölluð „heimkomu-
marsinn mikli“, snúast um að lýsa
því yfir að Palestínumenn eigi rétt
á því að snúa heim til landsins sem
forfeður þeirra þurftu að flýja frá
eftir stofnun Ísraelsríkis árið 1948.
Það vilja Ísraelar ekki, hafa reyndar
lengi útilokað slíka heimkomu, og
telja að hryðjuverkamenn myndu
nýta sér mótmælin til að komast
til Ísraels og ráðast þar á almenna
borgara. – þea
Hernáminu verði að ljúka
Samkvæmt BBC íhuga
SÞ nú að kalla eftir óháðri
rannsókn á því hvað fram fór
á Gasasvæðinu.
ted cruz ávarpaði viðstadda á blaðamannafundi í kjölfar árásarinnar.
Nordicphotos/GEtty
1 9 . m a í 2 0 1 8 l a u g a r d a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-0
A
4
8
1
F
D
A
-0
9
0
C
1
F
D
A
-0
7
D
0
1
F
D
A
-0
6
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K