Fréttablaðið - 19.05.2018, Blaðsíða 12
chile Allir 34 biskupar kaþólsku
kirkjunnar í Suður-Ameríkuríkinu
Síle hafa boðið Frans páfa afsagnar-
bréf sín. Þetta kom fram í tilkynn-
ingu sem biskuparnir sendu frá
sér í gær en ástæðan er barnaníðs-
hneyksli og yfirhylming sem hefur
hrist stoðir kaþólsku kirkjunnar
þar í landi. Þetta er í fyrsta sinn í
nærri 2.000 ára langri sögu kaþ-
ólsku kirkjunnar sem allir biskupar
heillar þjóðar bjóðast til að segja af
sér, svo vitað sé.
Um er að ræða mál fyrrverandi
prestsins Fernando Karadima. Ásak-
anir á hendur honum um barnaníð
komu fyrst fyrir augu almennings
árið 2010. Juan Barros biskup, sem
Frans páfi skipaði fyrir þremur
árum, er svo sakaður um að hafa
hylmt yfir með Karadima og einnig
að hafa verið viðstaddur þegar sum
brotin voru framin.
Neyðarviðræður í Páfagarði
Afsagnarbréfin afhentu biskup-
arnir í lok þriggja daga neyðarvið-
ræðna í Páfagarði sem páfi bauð til
vegna málsins eftir að hann lýsti
því yfir að hann hafi gerst sekur um
„alvarlegan dómgreindarbrest“ í
máli Barros. Þrýst hafði verið á bisk-
upana að segja af sér eftir að upp-
lýsingum úr 2.300 blaðsíðna langri
skýrslu, sem Charles Scicluna, erki-
biskupinn af Möltu, og hinn spænski
Jordi Bertomeu unnu um hneykslið
fyrir Páfagarð, var lekið á fimmtu-
dagskvöld.
Í umræddri skýrslu kom fram að
páfi líti svo á að biskuparnir hafi
margir eyðilagt sönnunargögn,
þrýst á rannsakendur að halda aftur
af sér og sýnt alvarlega vanrækslu
með því að skýla ekki börnum frá
ofbeldismönnum innan kirkjunnar.
Páfi sagði sömuleiðis í skýrslunni
að allir valdamenn innan chilesku
kirkjunnar bæru ábyrgð á meðferð
málsins. „Enginn getur flúið ábyrgð
sína og kennt öðrum um,“ sagði chil-
Allir biskupar í Chile bjóða afsögn sína
Barnaníðsmál kaþólska prestsins Fernando Karadima í Chile leiðir til fordæmalausrar uppstokkunar í landinu. Frans páfi skipaði
mann sem sagður er hafa hylmt yfir með Karadima í embætti biskups árið 2015. Páfi hefur hingað til varið manninn opinberlega. Páfa-
garður tók saman 2.300 blaðsíðna skýrslu um málið sem breytti afstöðu páfa. Biskuparnir sem boða afsögn sína eru þrjátíu og fjórir.
Juan Ignacio Gonzalez og Luis Fernando Ramos Perez, chileskir biskupar, á blaðamannafundi í gær. Tilefni fundarins var barnaníðshneyksli sem skekur kaþólsku kirkjuna í landinu. NoRdIcPhoTos/AFP
Frans páfi skipaði Juan Barros, sem sakaður er um yfirhylmingu í málinu,
biskup yfir osorno árið 2015. Ákvörðunin var umdeild. NoRdIcPhoTos/AFP
Málið reynst páfa erfitt
Karadima var fyrst sakaður um
barnaníð árið 1984. Rannsakandi
kirkjunnar, Juan Francisco Fresno,
erkibiskupinn af Santiago, komst
að því að fótur væri fyrir ásökun-
unum en ákvað að aðhafast ekk-
ert. Það var ekki fyrr en árið 2010,
þegar þolendur gerðu ásakanir
sínar opinberar, sem málið komst
á skrið. Kirkjan dæmdi Karadima
ári síðar sekan í málinu og var
refsingin ævilöng iðrun.
Karadima var áhrifavaldur
tuga presta og nokkurra
biskupa. Frans páfi flækt-
ist inn í málið árið 2015
þegar hann setti einn
þessara biskupa, Juan
Barros, yfir sóknina í
Osorno. Ákvörðunin vakti
reiði í chilesku sam-
félagi og reyndi Ricardo
Ezzati Andrello, arftaki
Fresno í Santiago,
að fá páfa til að
endurhugsa
hana. Því fór hins vegar sem fór og
Barros tók við biskupsumdæminu.
Þótt Barros hafi aldrei hlotið
sama dóm og Karadima hefur
fjöldi þolenda sagt að hann hafi
hylmt yfir með Karadima og jafn-
vel verið viðstaddur þegar brotin
voru framin. Frans páfi hefur hins
vegar varið Barros opinberlega.
Til að mynda í heimsókn sinni til
Chile í janúar.
Nú hefur páfa hins vegar
snúist hugur og hefur hann
jafnframt viðurkennt sekt
sína. Í útdrætti úr langri
skýrslu Páfagarðs um
málið sagði páfi meðal
annars að allir chileskir
biskupar bæru ábyrgð á
hneykslinu, en hann sjálfur
fyrst og fremst.
Juan Barros, biskupinn
af osorno.
NoRdIcPhoTos/AFP
Fernando Karadima, sem kirkjan sakfelldi fyrir barnaníð. NoRdIcPhoTos/AFP
að leysa með því að taka einungis á
einstökum málum, þótt það þurfi
vissulega að gera líka. En það er ekki
nóg, við þurfum að gera meira. Það
væri óábyrgt af okkur að skoða ekki
ræturnar og þá innviði sem hafa leyft
svona löguðu að endurtaka sig ítrek-
að,“ sagði aukinheldur í útdrætti páfa.
Framtíðin í höndum páfans
Biskuparnir sögðu í yfirlýsingu
gærdagsins að framtíð þeirra væri
í höndum páfa. Ef hann samþykkti
ekki afsögn þeirra myndu þeir halda
áfram störfum sínum fyrir kirkjuna.
„Í samstarfi við páfann viljum við
ná fram réttlæti og vinna að því að
bæta þann skaða sem hefur orðið,“
sagði þar aukinheldur.
„Við höfum ákveðið að setja
framtíð okkar í hendur hins heilaga
föður og biðjumst fyrirgefningar
fyrir þann sársauka sem fórnar-
lömbin þurftu að þola, við biðjum
páfann afsökunar og við biðjum
land okkar afsökunar á þeim alvar-
legu mistökum sem við höfum gert,“
sagði þar enn fremur.
Barros hefur endurtekið boðið
páfa afsögn sína. Páfinn hefur neitað
því í hvert skipti þar sem honum
þótti sekt Barros ekki liggja fyrir. Nú
þykir líklegt að niðurstaðan verði
önnur. Sagði AP í gær frá því að páfa
hafi snúist hugur eftir að hann las
fyrrnefnda 2.300 blaðsíðna skýrslu.
Umdeild heimsókn
Páfi ferðaðist sjálfur til Chile í
janúar. Ummæli hans um málið
þá vöktu mikla reiði. „Það eru
engin sönnunargögn sem benda til
sektar hans [Barros]. Þetta eru allt
meiðyrði. Skiljið þið það?“ sagði
páfi áður en hann hélt til messu í
borginni Iquique. Sagði hann svo
við blaðamenn að þegar einhver
myndi leggja fram sönnunargögn
gegn Barros myndi páfi ræða málið.
Juan Carlos Cruz, er einn þeirra
sem sakað hefur Karadima um
kynferðisofbeldi og hefur sagt að
Barros hafi verið viðstaddur þegar
Karadima kyssti hann og káfaði á
honum, var á meðal fórnarlamba
sem fordæmdu orð páfa. „Það er
ekki eins og ég hafi getað tekið
mynd á meðan Karadima mis-
notaði mig og aðra á meðan Juan
Barros stóð við hlið hans og fylgdist
með. Páfi talar um að bæta skaðann
en ekkert hefur breyst. Afsökunar-
beiðni hans er innantóm,“ sagði
Cruz í janúar.
Þá sagði James Hamilton, annar
þolenda Karadima, að með þess-
um ummælum hafi almenningur
fengið að sjá aðra hlið á páfa. „Það
sem páfinn hefur gert hér í dag er
særandi og sársaukafullt. Ekki bara
fyrir okkur heldur líka fyrir alla
þá sem vilja binda enda á þetta
ofbeldi.“
eska sjónvarpsstöðin T13 að páfi hafi
skrifað. Páfagarður staðfesti síðar að
tilvitnunin væri rétt.
Páfi sagði í útdrætti úr skýrslunni
að það hátterni að bjóða ofbeldis-
menn innan kirkjunnar velkomna
og hleypa þeim í stjórnunarstöður,
líkt og gert var í Chile, væri eitt helsta
einkenni þeirrar kynferðis of beldis-
krísu sem hrjáð hefur kaþólsku kirkj-
una á heimsvísu undanfarna áratugi.
„Vandamál kirkjunnar er ekki hægt
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
1 9 . m a í 2 0 1 8 l a U G a R D a G U R12 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
9
-F
6
8
8
1
F
D
9
-F
5
4
C
1
F
D
9
-F
4
1
0
1
F
D
9
-F
2
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K