Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 20
Baldvin Þormóðsson
hugmyndasmiður hjá
Pipar/TBWA auglýsinga-
stofu
Ert þú royalisti?
Ég myndi ekki kalla
mig royalista en ég hef
haft dálæti á bresku kon
ungsfjölskyldunni síðan
ég bjó í London þegar ég
var í námi. Þá tók ég þá
ákvörðun að tileinka mér
algjörlega breska menn
ingu. Ég man þegar ég var
nýfluttur út og sat á breskum
pöbb í Camden. Klukkan að slá í
miðnætti og mikil læti þegar gamall
breskur maður stendur á fætur og byrjar að
syngja hástöfum God Save the Queen. Staður
inn þagnar og allir standa upp og taka undir.
Þá fyrst fann ég fyrir því hvað breska krúnan
er mikið sameiningartákn fyrir Breta.
Hvað á að gera á stóra daginn?
Ætli ég byrji ekki daginn á stórum „English
breakfast“, bóni síðan Land Roverinn, hnýti á
mig slaufu og rölti rakleiðis á næsta bar með
helgarblað Fréttablaðsins og Hendrick’s gin
og tónik að fylgjast með ósköp
unum í beinni útsendingu í
snjallsímanum.
Fylgistu með bresku
konungsfjölskyldunni
reglulega?
Ég hef alveg annað
augað með þeim en
þrátt fyrir að hafa
í grunninn mjög
gaman af drama þá
vil ég helst að þeim líði
bara vel og allir hressir
hver í sínum kastala með
góðan bjór og BBC Two.
Klæðir þú þig í sparigall-
ann í virðingarskyni?
Mér finnst oft gott að hita upp
fyrir tyllidaga með því að klæða mig í mín
fínustu föt daginn fyrir. Eins og 30. desember,
daginn fyrir aðfangadag, 16. júní og slíkt. Það
tekur pressuna af sjálfum deginum. Þá eru
fötin líka aðeins þægilegri á sjálfum deginum.
Mæli með!
Hvernig líst þér á tilvonandi brúðhjón?
Mér finnst þau æði. Það eiga allir skilið að
finna ástina og ég vona að þau eigi eftir að eiga
langa og hamingjusama ævi saman.
Frímann sigurðsson
verkefnastjóri og gestgjafi
Ert þú royalisti?
Já, ég held að ég verði að viðurkenna
að í mér býr lítill konungssinni/royal
isti sem laumar konunglegu slúðri með
í handfarangur á ferðalögum og fylgist
með útvöldum aðilum konungsfjöl
skyldna á samfélagsmiðlum.
Hvað á að gera á stóra daginn?
Á meðan kampavínið kælist skokka
ég beinn í baki út í Brauð og co. og
kaupi ríflegan skammt. Þegar heim er
komið er lagt hátíðlega á borð, slökkt á
símanum, kampavínið opnað og skellt
sér í hæfilega þægilegan hátíðargalla.
Stærsta áskorun dagsins er að finna
út hvaða sjónvarpsstöð er með bestu
beinu útsendinguna.
Fylgistu með bresku konungsfjöl-
skyldunni reglulega?
Ég hef ekki sérstaklega hátt um það
en mér gengi eflaust ágætlega í spurninga
keppni um kóngafólk almennt og þá allra helst
um skandinavísku konungsfjölskyldurnar. Í júlí
ár hvert fagna ég svo afmæli Viktoríu krón
prinsessu Svíþjóðar þar sem við eigum sama
afmælisdag.
Klæðir þú þig í sparigallann í virð-
ingarskyni?
Að sjálfsögðu, ég fer m.a. í gull
klossana sem voru sérpantaðir frá
Svíþjóð og mér færðir að gjöf og eru
nýttir við hátíðleg tilefni líkt og þetta
konunglega brúðkaup. Lets just say I
never dress down … ever.
Hvernig líst þér á tilvonandi brúðhjón?
Brúðhjónin virðast vera ástfangin og ham
ingjusöm sem er alltaf ákaflega fallegt. Ég óska
þeim alls hins besta og vona að þau eigi eftir að
láta mikið gott af sér leiða í gegnum störf sín í
þágu mannúðarmála og mannréttinda.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Mér þykir, og hefur alltaf þótt, alveg óendanlega vænt
um Harry og Vilhjálm frá því þeir fæddust og auðvitað
sérstaklega eftir að Díana féll frá. Ég trúi því stundum
ekki ennþá að hún sé farin frá okkur. En jæja. Varðandi
ráðahaginn þá verð ég að viðurkenna, og þetta er hart
á sjálfan brúðkaupsdaginn en meðvirkni hefur aldrei
hjálpað hálfum hlut, að ég hef smá áhyggjur af þeim.
Fjölskylda Meghan er svo óstjórnlega helluð út í hana
og auðvitað stend ég með Harry og hans ákvörðunum
í lífinu (hann á enga mömmu svo ég verð að stíga inn
hérna) en það er 1% af mér sem er smá stressað um að
það sé mögulega, og ég er bara að segja mögulega hérna,
smá séns að Meghan sé ekki alveg sönn í þessu. Hún
þóttist ekki vita neitt um konungsfjölskylduna í trú
lofunarviðtalinu en svo birti vinkona hennar mynd af
þeim sem unglingum fyrir utan Buckinghamhöll alveg
óðum og trylltum. Þið vitið. En ég er ekki bílstjórinn í
hans lífi, nú eða þeirra. Svo það er ekkert annað í boði
en að senda bara hlýja strauma.
Ég ætla að reyna að gera það sem ég get til að hafa
þetta hátíðlegt í dag. Athöfnin er auðvitað í hádeginu
svo það verður létt dagförðun bara hjá sjálfri mér, lát
laust dress, hnésítt pils en ég ætla að hlaða á mig þeim
mun meira af skarti. Gestalistinn er ekki alveg negldur
en Díana verður með mér hérna (bank í hjartað). Ég
ætla að drekka eitthvert rándýrt te og slafra í mig búð
ing með fína silfrinu og nota bakka með mynd af Díönu.
Ég held að brúðkaupið sé eðlilegt framhald af heldur
löngu glaumgosalífi Harrys. Ég er búin að bíða eftir
þessum helvítis degi frá því Harry stóð við hlið Vil
hjálms á brúðkaupsdegi þeirra Katrínar. Nú heldur kon
ungsfjölskyldan bara áfram að færa sig hægt og rólega
inn í nútímann, þar sem allar konungsfjölskyldur eiga
auðvitað að vera ef þær vilja lifa af.
Varðandi fyrirkomulagið á þessu öllu þá er ég hugsi
yfir PRvinklinum. Steikarpönnuháttur fjölskyldu Meg
han hefur algjörlega fengið að stjórna umræðunni. Höll
in þegir (Harry bað ömmu pottþétt um að skipta sér
ekki af svo það útskýrir þögnina), útkoman því miður
hver furðufréttin á fætur annarri um fjölskyldu Meg
han. Gleymum síðan ekki veikindum pabba hennar og
dramanu í kringum þau. Öll þessi súpa hefur algjörlega
yfirskyggt sjálf hátíðahöldin og gleðina. Og hvaða frétt
stendur upp úr frá höllinni? Jú, að bjóða fólki, sem fær
náðarsamlegast að koma þarna inn á einhvern grasbala
og bíða allan daginn, að taka með sér nesti. Var í alvöru
ekki hægt að rúlla einum eða tveimur pulluvögnum
þarna inn? Annars finnst mér hádegisbrúðkaup alltaf
smá elegant og öðruvísi.
Ég vona svo innilega að dagurinn verði
sem yndislegastur þrátt fyrir vesen á
tengdafjölskyldu Harrys og að hann
finni fyrir nærveru mömmu sinnar
heitinnar. Það sem hún elskaði
þessa drengi sína meira en allt,
elsku hjartans fólkið segi ég nú
bara. Guð blessi minningu Díönu
í dag og alla daga. Og brúð
hjónin auðvitað.
08.00 Almenningi sem hefur verið
boðið til hátíðarhalda við Windsor
kastala mætir.
8.30-10.00 Gestir koma til kirkju.
Meðlimir konungsfjölskyldunnar
síðastir eða um 10.20.
10.45 Bræðurnir Harry og Vil-
hjálmur koma saman til kirkju. Lík-
lega koma þeir gangandi fram hjá
þeim mikla fjölda almennings og
góðgerðarfélaga sem hefur verið
boðið að fylgjast með athöfninni á
lóð Windsor kastala.
10.55-10.59 Elísabet drottn-
ing kemur síðust fjölskyldumeð-
lima til kirkju.
Tímalína á íslenskum tíma
um 600 gestir
verða í kapellunni
Þegar meghan og harry
verða geFin saman.
10.59 Meghan Markle kemur til
kirkju með móður sinni, Doriu
Ragland.
11.00 Athöfnin hefst í kapellu
heilags Georgs í Windsor-kastala
12.00 Athöfninni lýkur og nýgiftu
brúðhjónin koma út á kirkjutröpp-
urnar. Þar ganga þau að vagni sem
þau fara með í gegnum miðbæ
Windsor.
svaramaður harry
verður Bróðir hans
vilhjálmur.
Fyrir utan Wind-
sor-kastala verða
alls 2.640 gestir. Þeir
Fá að Fylgjast með
Þegar parið mætir í
kapelluna. seinna
Fagna Þeir hjónunum
Þegar Þau Fara í vagn-
inn eFtir athöFnina.
kapellan var Byggð
árið 1475. harry var
skírður í henni árið
1984.
13.00 Að vagnferðinni lokinni hefst
brúðkaupsveisla í boði drottningar í
sal heilags Georgs.
Að kvöldi Í kvöld er haldin brúð-
kaupsveisla fyrir nánustu ættingja
og vini í Frogmore.
Hlýir straumar
Lára Björg Björnsdóttir
Royalisti skrifar
Aðdáendur gera
sér glaðan dag
eva lauFey kjaran
hermannsdóttir
dagskrárgerðarkona á Stöð 2
Ert þú royalisti?
Já, ætli það ekki. Ég hef að
minnsta kosti vandræðalega mikinn
áhuga á þessu ágæta fólki og leiðist
ekki að fylgjast með því. Ég er níræð
í anda og það á vel við mig – á milli
þess sem ég fylgist með Kardashian
systrum. Ég passa mig á að hafa jafn
vægi í þessu.
Hvað á að gera á stóra daginn?
Í fyrsta lagi mun ég troða mér í
brúðarkjólinn minn, hver segir að
notagildi þessara brúðarkjóla sé
ekki gott? Djók. Samt ekki. Afmæl
ið mitt og brúðkaupið eru í sömu
viku, sem er engin tilviljun og þess
vegna ætla ég að baka eina köku og
fá mér eins og eitt kampavínsglas
í góðum félagsskap. Fæ því til mín
þær vinkonur mínar sem eru til í
kampavínsdrykkju um hádegisbil,
það á vissulega við flestar en þær
sem búa nálægt og vilja
fagna þessum degi
almennilega eru
velkomnar. Þetta
er þó mjög óform
legt, en ég vona
að ég endi ekki
ein í brúðar
k j ó l n u m
með köku
s n e i ð o g
kampavín!
Það eru margir sem
gleðjast með kon-
unglegu brúðhjón-
unum um helgina.
Sjá nánar á Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má lesa á frettabladid.is.
Ég Fer m.a.
í gull-
klossana
sem voru
sÉrpant-
aðir Frá
svíÞjóð
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 9 . m A í 2 0 1 8 l A U G A R d A G U R20 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
helgin
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
9
-F
1
9
8
1
F
D
9
-F
0
5
C
1
F
D
9
-E
F
2
0
1
F
D
9
-E
D
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K