Fréttablaðið - 19.05.2018, Blaðsíða 24
háð nokkrum skilyrðum og var
umgengni hans undir eftirliti barna-
verndaryfirvalda. Fyrst þrjá tíma í
senn aðra hverja helgi en síðar meir
aftur frá laugardegi til sunnudags.
Á þessum þremur árum tálmaði
Hildur Björk umgengni við föður
barnanna vegna meints ofbeldis af
hans hálfu.
Játning lá fyrir
„[V]issulega sló ég drenginn og
ég hef viðurkennt það bæði fyrir
hildi og þér,“ skrifar líffræðilegur
faðir barnanna í tölvupósti til lög-
manns Hildar í júlí árið 2006. Þá
hafði Hildur kvartað yfir umhirðu
barnanna og áverkum sem hún taldi
hafa verið á þeim eftir samveru með
föður þeirra.
Umgengni líffræðilegs föður
barnanna við Auði og Markús hófst
aftur í upphafi árs 2008 undir reglu-
legu eftirliti barnaverndaryfirvalda
þar sem fulltrúar yfirvaldanna voru
viðstaddir. „Það fer umgengni aftur
af stað undir eftirliti. Í gögnum
málsins kemur fram mikill kvíði
barnanna fyrir að hitta föður sinn.
Ég þurfti að fara í gegnum þrjá dag-
sektarúrskurði á þessum tíma og
rétta þessum manni börnin mín,“
segir Hildur Björk.
Auður man eftir þessum fundum
við föður sinn undir eftirliti. „Já,
þetta var einhver lítil stofa og það
var alveg ekkert að gerast þar því
þegar fólk var að fylgjast með þá
gerðist ekkert. En um leið og við
vorum hjá honum um helgar þá
bara breyttist þetta,“ segir Auður.
Í gögnum málsins kemur fram
að umgengnin hafi farið vel fram.
„Í fyrsta skipti voru börnin nokkuð
skelkuð við komuna og þurfti starfs-
maður að fullvissa þau um að faðir
þeirra myndi ekki berja þau,“ segir í
lýsingu barnaverndaryfirvalda af því
þegar börnin komu í fyrsta skipti í
umgengni eftir að Hildur stöðvaði
alla umgengni, þann 13. ágúst 2006.
„Ég man eftir því þegar við vorum
að fara um helgar. Þá kom oft maður
sem átti að vera með okkur alla helg-
ina, en faðir okkar gat sagt honum
bara að fara í kaffi og þá fór hann
bara. Og þá byrjaði allt aftur,“ segir
Auður. „Ég man einu sinni á leiðinni
heim. Hann keyrði okkur alltaf úr
vistinni og heim, þessi eftirlitsmað-
ur. Markús var þá grátandi alla leið-
ina og ég byrjaði að kenna þessum
manni um og að hann væri aftur og
aftur að taka okkur og meiða okkur.
Þegar hann lagði síðan bílnum við
heimili okkar þá öskraði hann á
okkur og sagði okkur að hypja okkur
út. Og þetta var manneskja sem átti
að passa upp á okkur. Barnaverndar-
fulltrúinn átti að hlusta á okkur, en
það virkaði ekki einu sinni.“
„Mig langaði aldrei að fara“
Markús Páll á afar erfitt með að grafa
í þessum minningum og það tekur
á hann að segja frá því sem gerðist á
þessum tíma.
Hvernig voru samskiptin við líf-
fræðilegan föður þinn?
„Ekki mikil og slæm, hann var
með mjög stuttan þráð og var fljótur
að refsa.“
Í hverju fólust þessar refsingar?
„Ofbeldi. Hann rassskellti mig og
tók mig oft í bóndabeygju.“
Þrátt fyrir að beitt hafi verið
ofbeldi þar sem lá fyrir játning föður
fyrir því að hafa á einum tímapunkti
slegið Markús úrskurðaði sýslu-
maður að faðirinn hefði rétt til að
umgangast börnin sín.
Hvernig leið þér að fara til föður
þíns?
„Mig langaði aldrei að fara, lang-
aði bara ekkert að vera með honum.
Þetta er náttúrulega algjört bull sko.
Maður átti ekki að vera í þessum
aðstæðum. Ég reyni að gera eins lítið
af því að hugsa til baka og ég get.“
Studdi mamma þín þig?
„Já, hún studdi mig alltaf. Það var
gaman að koma aftur heim.“
Er eitthvað í umhverfinu sem ýfir
upp þessar minningar?
„Já, ég til dæmis þoli ekki að sjá
á skírteinum þegar föðurnafnið
mitt er birt. Ég sá hann í leikfanga-
verslun eitt skipti. Ég var eitthvað
inni í búðinni og sneri mér við og
þar var hann. Þá hljóp ég bara út,“
bætir Markús við.
Auður minnist þess að síðasta
skipti sem þau hafi hitt líffræði-
legan föður sinn hafi verið fyrir um
átta árum. „Síðast var það í upphafi
árs 2010, þegar hann kom í viðtal
heim til okkar þegar sálfræðingur
og sáttamaður hjá sýslumanni voru
á staðnum. Viðtalið byrjaði mjög
vandræðalega. Stjúppabbi okkar
var að reyna að róa Markús niður
og ég sat í fanginu á mömmu. Síðan
endaði það á því að ég snappaði á
hann og sagði honum að drulla sér
út. Við ætluðum ekki að fara aftur til
hans því þetta væri ógeðslegt.“
Sr. Hildur Björk hefur á þessum
tíma oft verið sökuð um að hafa
heilaþvegið börnin til fylgilags við
sig í erfiðri umgengnisdeilu við
barnsföður sinn. Hún segir það af
og frá og að gögn málsins séu skýr
um það hvað gekk á. Hún hafi ein-
faldlega verið að vernda börnin sín
sem mest hún mátti. Auður segir
ásakanirnar gegn móður sinni gera
lítið úr ofbeldinu gegn sér og bróður
sínum.
„Þetta er erfitt. Þegar maður
stendur upp og er að tala um svona
og fær að heyra að maður hafi verið
heilaþveginn af móður sinni. Það
er bara eins og það sem kom fyrir
okkur hafi ekki gerst,“ segir Auður.
„Og það er búið að vera mjög erfitt.
Og það koma alveg tímar þar sem
við Markús upplifðum að það væri
enginn að hlusta á okkur og þá hætt-
ir maður bara að tala um þetta. Það
var mjög erfitt að byrja svo aftur að
tala um þetta. Þegar þetta þarf allt
að byrja aftur. Þetta er allt bara eitt
klúður á eftir öðru.“
Umtal á netinu
Hildur segir einnig að umtal á net-
inu hafi áhrif á börn hennar og það
skiptir máli að það sem sagt er sé
satt og rétt. Hún talar um að hópur
einstaklinga hafi markvisst á síðustu
árum reynt að koma óorði á hana
með umtali á netinu.
En hver er þessi hópur?
„Þeir eru nánasta fjölskylda þessa
manns, auk annarra sem telja sig
vera að styðja hreyfingar feðra. Ein-
hvers konar regluriddarar sem halda
að þeir séu að taka göfugan málstað
og berjast með honum,“ segir Hild-
ur. „Auður og Markús eru bara orðin
það stór að þau lesa allt. Þegar þeir
fara svo að birta tilklippt málsskjöl
úr Barnahúsi um þau, þar sem fram
kemur að hún er spurð hver hafi í
raun sagt henni að segja þessa hluti
í Barnahúsi. Þá segir hún „mamma“,
því ég hafði sagt henni að segja allan
sannleikann. Lögfræðingurinn minn
hafði sagt mér að minna börnin á að
það væri mikilvægt að segja allan
sannleikann. Þegar Auður les svo
þetta þá hugsaði hún sem svo að
það hafi þá eftir allt saman verið
hún sem hafi spillt fyrir málinu.“
Nýtt áfall við prestsvígslu
Hildur er sóknarprestur í Reykhóla-
prestakalli. Í febrúar árið 2016 var
hún vígð til prests. Hún lýsir vígsl-
unni sem erfiðum tíma.
„Það verður mikil uppákoma
í vígslunni. Þau mættu auðvitað
þangað, þau ætluðu ekki að láta
mig vígjast. Fjölskylda hans sér
börnin fyrir utan kirkjuna og sest
svo fyrir aftan börnin. Markús og
Auður höfðu verið að lesa á Facebo-
ok fyrir vígsluna að ég skyldi passa
mig hvar ég væri og aðrar alvar-
legar hótanir. Markús var þá farinn
að halda að mér væri raunveruleg
hætta búin. Þau setjast þá fyrir
aftan börnin og stjúppabbi þeirra
biður fólkið um að færa sig þegar
Markús byrjar að gráta og segir við
stjúpföður sinn að að hann haldi að
fólkið ætli bara að drepa mig,“ segir
Hildur.
„Svo þegar kirkjuvörðurinn biður
fólkið um að færa sig aftar, þá bara
tryllist allt. Þá er öskrað og æpt.
Þetta gerist fyrir athöfnina sjálfa
og Agnes biskup þurfti að beita sér
til að fólkið settist niður eða færi
út. Því, sem fór af stað um leið og
ég fór að sækja um prestsembætti,
er ekki lokið í dag. Eitthvað sem ég
skil ekki,“ segir Hildur. „Ég hef oft
hugsað til orða Agnesar biskups
til mín á þessari stundu þegar hún
sagði mér að það skipti ekki mestu
máli hvað kemur fyrir okkur heldur
hvernig við vinnum úr því.“
„Mamma, nú er nóg komið“
Ég sagði upp prestakallinu mínu
á Reykhólum í mars og sótti um
stöðu hjá Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur sem forstöðumaður
Vistheimilis barna. Ég fæ þessa
stöðu sem hæfasti einstaklingurinn.
Svo þegar ég er búin að skrifa undir
þá tjáir framkvæmdastjóri Barna-
verndar mér að það berist til þeirra
tölvupóstar þar sem þessir menn
eru að senda henni óhroða um
mig og þessa umgengnisdeilu. Þá
hringi ég í lögfræðinginn minn og
segi henni að útskýra mitt mál sem
hún gerir. Svo ákveð ég að bakka út
úr þessari stöðu þegar þessi huldu-
her hótar stíft fjölmiðlaumfjöllun.
Ég gat ekki látið Auði og Markús
fara í gegnum það sama og síðast.
Ég er eina konan sem hefur farið
í meiðyrðamál og svo úrskurðar
dómari við héraðsdóm að það megi
kalla mig tálmunarmóður því ég
hafi sannarlega tálmað umgengni.
Því er ég í algjöru uppáhaldi hjá
þeim því þeir hafa það skjalfest frá
dómara,“ segir Hildur.
„Þessi hópur á sviðið á meðan
hinn hópurinn hefur ekki auka
orkuna því öll auka orka fer í að
tjasla börnunum manns saman.
Þegar ég sagði Auði núna að ég
hefði dregið til baka að taka við
stöðu forstöðumanns Vistheim-
ilis barna fyrir Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur, vegna þess að þeir
voru byrjaðir að senda inn og hóta
fjölmiðlaumfjöllun, núna viku áður
en ég átti að hefja störf, þá er það
Auður sem segir: Mamma, nú er
nóg komið, lærðum við ekkert af
#metoo?“
Nú tekur við nýr kafli í lífi þeirra
þar sem séra Hildur hefur sagt upp
prestsembætti sínu og ákveðið að
taka ekki við nýju starfi hjá barna-
verndarnefnd.
En hvernig líður henni að vera
kölluð tálmunarmóðir?
„Það eru tveir ljósir punktar í
þessu máli. Ég er búin að vera með
sama sálfræðinginn og sama lög-
fræðinginn allan þennan tíma. Sál-
fræðingurinn minn, Andrés Ragn-
arsson, segir stundum við mig að
ég þurfi að fara að hugsa þetta orð
sem einhvers konar orðu. En það er
mjög erfitt þar sem þetta er notað
sem hatursfullt orð.
Ef það er svo það versta í þessu
öllu saman að ég sé kölluð tálm-
unarmóðir, þá er mér alveg sama.
Það sem er svo merkilegt er að
þrátt fyrir að vera með flottan
starfsferil og sex háskólagráður, þá
hefur þetta áhrif. Að mörgu leyti er
þetta mikil fordæming, það er búið
að ákveða einhverja afbakaða sýn
í þessu máli og það er gert á sam-
félagsmiðlum. Það er gert án stað-
reynda, án okkar hliðar málsins og
þess sem við höfum þurft að ganga
í gegnum.“
Systkinin segjast ekki hafa viljað fara í umgengni til föður síns og að kerfið hafi brugðist þeim. Þeim hafi ekki verið trúað. Fréttablaðið/SigtryggUr ari
Skýrslutaka í
Barnahúsi:
Starfsmaður: Og hvað finnst þér
um að hafa ekki hitt hann í svo-
lítið langan tíma?
Markús: Ekki…, mér finnst það
bara gott.
Starfsmaður: Langar þig til að
hitta hann?
Markús: Nei.
Starfsmaður: Af hverju ekki?
Markús: Bara, hann er svo vondur
við mig.
Starfsmaður: Hvernig vondur
við þig?
Markús: Hann rassskellir mig og
það er bannað og það er bannað
að taka í bóndabeygju…, og ég vill
ekki fara til hans.
Starfsmaður: En hvernig líður þér
að hitta hann ekki?
Markús: Bara vel, mig langar að
vera heima.
Úr gögnum málsins:
Álit doktors tryggva Sigurðs-
sonar, barnasálfræðings
„Lýsing Auðar á samskiptum
hennar við föður hennar eru
trúverðugar. Hún nánast skelfur
þegar hún lýsir heimsóknum til
hans og þolir illa langar umræður
um þær.“
[…]
„Niðurstöður greindarprófunar
sýna vitsmunaþroska á stigi af-
burðagreindar hjá Auði. Námsleg
staða hennar er mjög góð. […]
Stúlkan lýsir miklum kvíða hjá
sjálfri sér og í viðtölum lýsir hún
ítrekað ofbeldi af hálfu föður
síns.
Mælt er með tilvísun til barna-
taugalæknis […] með tímabundna
lyfjagjöf í huga vegna þess alvar-
lega kvíða sem Auður sýnir. Einn-
ig er mælt með áframhaldandi
sálfræðilegum stuðningi við Auði
með það að markmiði að að-
stoða hana við að ná betri tökum
á kvíða og vanlíðan.
Eindregið er varað við því að
þvinga Auði til að hitta föður
sinn, a.m.k. þar til hún sýnir betri
líðan og er tilbúin að hitta hann
sjálf.“
↣
1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-1
9
1
8
1
F
D
A
-1
7
D
C
1
F
D
A
-1
6
A
0
1
F
D
A
-1
5
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K