Fréttablaðið - 19.05.2018, Qupperneq 32
silkiprent.is Sími 5442025 silkiprent@silkiprent.is
SETTU MERKIÐ HÁTT
OG VERTU SJÁANLEGUR
FYRSTIR OG FREMSTIR Í FÁNUM Í 46 ÁR
Veljum íslenska
framleiðslu
Afgreiðum fána
samdægurs
E inar Baldvin Brimar er rétt rúmlega tvítugur Framsóknarmaður í framboði í Hafnarfirði. Hann segir þátttöku sína í Gettu betur og Morfís
hafa gefið sér kjark til að tjá skoð-
anir sínar á stjórnmálum.
Einar Baldvin Brimar fagnaði tví-
tugsafmæli sínu í byrjun árs. Hann
gengur í Flensborgarskóla þar sem
hann tekur mikinn þátt í félagslífi
skólans. Hann var í ræðuliði skólans
í Morfís og einn liðsmanna skólans í
Gettu betur, spurningakeppni fram-
haldsskólanna. Það kom vinum
hans örlítið á óvart þegar hann
ákvað að taka þátt í sveitarstjórnar-
kosningum í ár en Einar Baldvin
skipar fimmta sæti Framsóknar-
listans í Hafnarfirði.
„Flensborgarskóli er geggjaður
skóli, hverfisskóli sem margir Hafn-
firðingar sækja. Ég hef keppt í tvö ár
bæði í Morfís og Gettu betur. Þá er
ég virkur í nemendafélaginu, er for-
maður svokallaðs vitsmunaráðs
og málfundafélagsins. Reyndar er
það ekki alveg á tæru hvort ég er
formaður í því síðastnefnda, það
er smá valdabarátta í gangi,“ segir
Einar Baldvin.
„Ég hef alltaf búið í Hafnarfirði.
Foreldrar mínir eru Þórður Heimir
Sveinsson lögfræðingur og Sólveig
Lilja Einarsdóttir sem er með MBA-
gráðu í viðskiptum. Ég á tvö systkini.
Bróðir minn heitir Sveinn Andri
Brimar, hann er að klára lögfræði
og starfar sem lögreglumaður með
fram námi.
Ég er tvíburi. Tvíburasystir mín
heitir Helga Brá. Hún er í raun full-
komna myndin af mér,“ segir hann
og hlær og segir hana til mikillar
fyrirmyndar.
Þó nokkrir hafa lært lögfræði í
fjölskyldunni. Einar Baldvin segist
óneitanlega spenntur fyrir lög-
fræði en íhugar líka aðra kosti. „Já,
ég útskrifast vonandi bráðum með
stúdentspróf og þá vona ég fyrst og
fremst að ég fái að taka þátt í stjórn-
málum en ég gæti líka hugsað mér
að læra til dæmis heimspeki eða
lífefnafræði,“ segir hann.
Hvers vegna valdi hann Fram
sóknarflokkinn? Hefur hann starfað
lengi með þeim flokki?
„Nei, það hef ég ekki gert. Mér
finnst gilda annað um bæjarmálin
en landsmálin. Þetta eru svolítið
önnur gildi. Þau í flokknum gáfu
mér tækifæri til áhrifa sem ég þáði.
Ég kann mjög vel við fólkið sem
skipar listann með mér og þau gildi
sem þau vilja fara eftir. Þau setja
samvinnu í forgrunn og það að geta
unnið með öllum. Þau vilja forðast
þessa átakapólitík sem mér finnst
vera mjög mikill kostur á sveita-
stjórnarstiginu, það er ekki tími
fyrir slíkt í starfi fyrir Hafnarfjörð.“
Einar Baldvin sker sig nokkuð úr
hópi þess fólks sem gefur kost á sér
í bæjarpólitíkina.
„Já, ég er talsmaður unga fólksins.
Ég vil auka á fjölbreytni í menning-
arlífinu, flestir vina minna eru lista-
menn og menningarfrömuðir,“ segir
hann og hlær en á meðal vinanna
eru hinir landskunnu Jói P og Króli.
„En svona í alvöru talað, þá þarf
að byggja ódýrt leiguhúsnæði fyrir
ungt fólk og námsmenn. Þá finnst
mér mikið hagsmunamál að fá betri
samgöngur. Það þarf hraðvagn sem
gengur frá Hafnarfirði beina leið til
Reykjavíkur.“
Einar Baldvin er einnig íþrótta-
maður og þjálfar krakka í fótbolta
í FH. „Mér finnst mikilvægt að
tryggja betri aðstöðu bæði fyrir FH
og Hauka. Það er mjög gaman og
gefandi að þjálfa. Ég á líka önnur
áhugamál. Ég er mikið í golfi og hef
mjög gaman af ritstörfum. Ég gaf út
ljóðabókina Ok-döðlur með vini
mínum Kolbeini Sveinssyni.
Gæti hann hugsað sér að starfa í
stjórnmálum? Verða atvinnupóli
tíkus.
„Ég verð að fá að kynnast þessu
fyrst. Fá reynsluna, upplifunina. Þá
fæ ég kannski einhverja betri sýn á
framtíðina,“ segir Einar Baldvin.
Hvar stendur þú í pólitík? Hverjar
eru hugsjónir þínar?
„Ég myndi segja að maðurinn
ætti að vera ofar auðnum. Ég hall-
ast mjög að jafnaðarstefnunni en er
líka frjálslyndur. Mér líst vel á gildi
Framsóknarmanna hér í Hafnarfirði
um samvinnu. Og að það er skýrt
fyrir hverja við vinnum, fyrir Hafn-
firðinga, fyrir betri bæ.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Ég mun vinna í knattspyrnu-
skóla FH. Vonandi mun ég sinna
nefndarstörfum í bænum. Síðan
stefni ég á að setja upp leikrit og
semja eitthvað, eða það vona ég,“
segir Einar Baldvin.
Maðurinn sé ofar auðnum
Einar Baldvin Brimar segist vilja sjá til hvort stjórnmálin verði að atvinnu. FréttaBlaðið/antonBrink
Ungt fólk í stjórnmálum
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Úr lífi Einars Baldvins Brimar
Í hlutverki þjálfara með FH
liði sínu eftir frækilegan sigur
á Símamótinu. til hliðar með
vinum sínum á góðri stundu.
Einar Baldvin Brimar
er rétt rúmlega tví-
tugur Framsóknar-
maður í framboði
í Hafnarfirði. Hann
segir þátttöku sína í
Gettu betur og Morf-
ís hafa gefið sér kjark
til að tjá skoðanir
sínar á stjórnmálum.
Um Einar Baldvin
Foreldrar: Sólveig Lilja Einarsdóttir
og Þórður Heimir Sveinsson
Systkini: Helga Brá Brimar (tvíburi)
og Sveinn Andri Brimar (eldri
bróðir)
Á afmæli 20. janúar og telst því
hin merkilega steingeit
Það sem veitir mér innblástur
er að skilja við heiminn betri en
ég kom í hann en ég hef alltaf litið
mikið upp til Linus Pauling hand-
hafa friðarverðlauna Nóbels.
Eftirminnilegt atvik úr æsku: Lík-
legast það að við systir mín áttum
það til að kúka alltaf saman –
annað var í Gameboy á meðan hitt
gerði þarfir sínar. En einnig þegar
við Arnór Björnsson stórleikari
stýrðum umferð með góðum
árangri við Flóttamannaveginn
og tókum fólk um leið í könnun á
dönskukunnáttu.
Helstu fyrirmyndir: Helga Stefáns-
dóttir, amma mín, fær að tróna
efst á lista enda ekki til betri,
hlýrri og sterkari kona í heiminum.
Listinn er þó langur.
Óvæntur hæfileiki: Viðbjóðs-
lega góður að grípa tyggjó með
munninum. Man öll símanúmer
og „save-a“ því engin og einnig
kann ég allar höfuðborgir heims
utan að.
1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R32 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
9
-D
8
E
8
1
F
D
9
-D
7
A
C
1
F
D
9
-D
6
7
0
1
F
D
9
-D
5
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K