Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 39
Þessir bílar hafa verið á mark-aðinum á Íslandi í sex til sjö ár,“ segir Magnús Ólafsson,
eigandi Áltaks og ástríðugolfari.
„Þeir hafa enst einstaklega vel,
nánast engin bilanatíðni og ekkert
vesen á þeim.“ Hann bætir því við
að fjöldi golfklúbba velji að nota
Excar. „GKG hefur notað þessa
bíla með mjög góðum árangri,
ásamt fleirum eins og Brautar-
holti, Hellishólum og Vestmanna-
eyjum. Nokkrir þessara bíla eru
á Kiðjabergsvellinum sem þykir
einn sá erfiðasti fyrir svona bíla
og þessi bíll er sá eini sem hefur
náð að fara tvo hringi þar á sömu
hleðslunni.“
Margir halda að ef ekið er um
golfvöll í golfbíl fari öll hreyfing og
útivist forgörðum en það er alrangt.
„Það er búið að mæla það marg-
sinnis að þegar þú ert að labba með
kerruna og kemur kófsveittur upp á
teig, ertu að labba ellefu kílómetra
en ef þú keyrir þetta sama þá ertu
kannski að labba sjö kílómetra,“
segir Magnús og segir ástæðurnar
vera ýmsar. „Þú mátt ekki keyra alls
staðar á vellinum, þú ert að leita
að boltanum, hjálpa öðrum og svo
framvegis. Þetta rýrir ekkert úti-
vistargildi golfíþróttarinnar.“ Hann
bendir enn fremur á að golfbílar
geti reynst nauðsynleg hjálpartæki.
„Svo hjálpa bílarnir eldra fólki og
fólki með skerta hreyfigetu til að
stunda íþróttina meira og lengur.
Golfbíll gerir ekkert nema að hjálpa
til og hreyfingin af því að vera á
golfbíl er litlu minni en að vera að
labba þetta.“
Á golfvellinum er mikilvægt að
halda einbeitingu og ákjósanlegt að
sem fæst valdi truflunum. Það er því
góður kostur að velja golfbíla sem
ganga fyrir rafmagni þar sem þeir
eru bæði hljóðlausir og umhverfis-
vænir. „Rafmagnsbílar eru mjög
háðir rafgeymunum,“ segir Magnús.
„Excar bílarnir ganga fyrir Tudor
rafgeymum sem eru bestu rafgeym-
ar sem þú færð. Bílnum er stungið í
venjulega rafmagnsinnstungu sem
þarf að vísu að hafa 16 A öryggi.
Rafhleðslan dugar svo allt að áttatíu
til hundrað kílómetrum.“ Hann
segir að bílarnir séu með fram- og
afturgír, handbremsu og flautu og
mjög einfaldir í allri notkun. „Þessi
bíll er ólíkur öðrum að því leyti að
hann hefur bæði stefnuljós og ljós
sem getur til dæmis komið sér vel
í sumarbústaðabyggðum þar sem
verið að er að keyra smáspotta
kannski á þjóðveginum á leiðinni
út á golfvöll.“
Hann segir enn fremur að
bílarnir fáist í svörtu og hvítu og
séu mjög vel útbúnir. „Þeir eru með
hlífðartjaldi yfir golfsettið, klaka-
boxi, boltahreinsi, kylfuþrifkistu og
hrífu. Yfirleitt eru þeir opnir með
þaki en svo er hægt að fá hliðar-
lokanir og á endann og þá er komið
hús á bílinn sem skýlir gegn vatni
og vindum og þar sem hægt er að
setja miðstöð og annað slíkt.“ Excar
golfbíllinn rúmar tvo farþega en
burðargetan er 360 kg. Sjálfur vegur
bíllinn 250 kg. Hámarkshraðinn er
30 kílómetrar á klukkustund.
Magnús bendir á að verðið á bíl-
unum sé mjög gott. „Þetta eru mun
ódýrari bílar en aðrir og hafa reynst
alveg gríðarlega vel. Þeir kosta
kringum milljón og við bjóðum
góð greiðslukjör.“ Að lokum vill
Magnús minna á að hægt er að
prófa bílinn. „Komið og reynslu-
akið og sannfærist um gæði Excar
golfbílanna.“
Nánari upplýsingar fást hjá Magnúsi
í síma: 898-0860 / maggi@altak.is.
Rafmagnsgolfbíll fyrir
íslenskar aðstæður
Golfbílar eru fyrir mörgum hluti af staðalbúnaði þegar kemur að golfiðkun. Áltak er með til sölu
Excar rafmagnsgolfbíla, vandaða gæðabíla sem henta einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.
Excar rafmagnsgolfbílarnir eru umhverfisvænir og endingargóðir.
Excar rafmagnsgolfbílarnir fást bæði svartir og hvítir og hægt er að fá þá með
yfirbyggingu og ýmsum aukabúnaði.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 1 9 . M a í 2 0 1 8
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-4
A
7
8
1
F
D
A
-4
9
3
C
1
F
D
A
-4
8
0
0
1
F
D
A
-4
6
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K