Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 55
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er framsækinn
og fjölmennur tónlistarskóli með nútímalega
kennsluhætti og fjölbreyttar námsleiðir.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Okkur vantar kennara í eftirtaldar námsgreinar
fyrir skólaárið 2018-2019:
▪ Gítar, klassískur. Starfshlutfall 50%
▪ Málmblástur. Starfshlutfall 60%
▪ Söngur Rytmískrar deildar. Starfshlutfall 30%
▪ Deildarstjóri/kennari hljómborðsdeildar. Starfs-
hlutfall 80%. Þar af er 21% stjórnunarhlutfall.
▪ Deildarstjóri/kennari tónfræðagreina. Starfs-
hlutfall 75%. Þar af er 25% stjórnunarhlutfall.
▪ Nýtt – Suzuki-fiðlukennari. Starfshlutfall 40%.
Um er að ræða stækkun Suzukideildar skólans.
Sótt skal um á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að veita
skólastjóra heimild til þess að afla upplýsinga úr
sakaskrá. skv. lögum nr. 91/2008.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Árni Haraldsson
skólastjóri í síma 420-1400/863-7071 eða Karen
Janine Sturlaugsson aðstoðarskólastjóri í síma
420-1400/867-9738.
Kennarar óskast næsta skólaár
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins. Meginmarkmið bankans er
að stuðla að stöðugu verðlagi. Seðlabankinn skal enn fremur stuðla að fjármálastöðugleika.
Þá sinnir Seðlabankinn jafnframt viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðla-
banka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi.
Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt
starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, þekkingu, sveigjanleika og jákvæðum sam-
skiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Greining á samspili efnahagsþróunar og fjármála-
legs stöðugleika
• Greining á þróun hagstærða og sviðsmyndagerð
fyrir álagspróf
• Þróun á greiningaraðferðum og mælikvörðum til að
greina og meta kerfisáhættu
• Skrif í rit bankans, sér í lagi ritið Fjármálastöðug-
leiki
• Tilfallandi verkefni, umsagnir og ráðgjöf á
ábyrgðarsviðum fjármálastöðugleika
Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is en umsóknarfrestur er til og með 4. júní
2018. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans.
Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eggert Þröstur Þórarinsson, forstöðumaður þjóðhagsvarúðar, netfang eggert.
throstur.thorarinsson@sedlabanki.is og Íris Guðrún Ragnarsdóttir mannauðsstjóri, netfang iris.g.ragnarsdottir@
sedlabanki.is
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í deild þjóðhagsvarúðar á sviði fjármálastöðugleika.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík.
Eitt meginverkefna Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu, öruggu og virku fjármálakerfi. Fjármálastöðug-
leiki er svið innan Seðlabankans sem fylgist með þróun fjármálakerfisins, styrk þess og skilvirkni og áhrifum
efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni. Meðal verkefna deildar þjóðhagsvarúðar er að rannsaka og greina áhættu
sem raskað getur stöðugleika íslenska fjármálakerfisins. Deildin sér um umsýslu kerfisáhættunefndar.
Sérfræðingur á sviði fjármálastöðugleika - þjóðhagsvarúð
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði, verkfræði, tölfræði
eða sambærilegum greinum
• Góð þekking og áhugi á þjóðhagfræði og fjármála-
fræðum
• Góðir samskiptahæfileikar og vilji til að starfa í
hópi
• Gott vald á upplýsingatækni og gagnavinnslu
• Gott vald á ensku og íslensku, bæði í töluðu og
rituðu máli
• Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
Útibússtjóri á Akureyri
Við leitum að reyndum verkfræðingi eða tæknifræðingi
í stöðu útibússtjóra starfsstöðvar Verkís á Akureyri.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir
metnaðarfullan einstakling.
Hlutverk og ábyrgð
• Almennur rekstur starfsstöðvar
• Markaðsmál, verkefnaöflun og tilboðsgerð
• Starfsmannastjórnun
• Áætlanagerð og skipulagning verkefnavinnu
• Verkefnastjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verkfræðingur eða tæknifræðingur
• Góðir stjórnunar-, samskipta- og skipulagshæfileikar
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Gott vald á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar veita
Ari Guðmundsson, sviðsstjóri starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is
Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Verkís er öflugt og framsækið ráð-
gjafar fyrirtæki sem býður fyrsta flokks
þjónustu á öllum sviðum verkfræði.
Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að
fjöl breyttum og krefjandi verkefnum á
Íslandi og erlendis.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
um að sækja um að ráðningarvef Verkís
(umsokn.verkis.is). Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verður svarað. Við hvetjum jafnt
konur sem karla til að sækja um
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.
Aðstoð á tannlæknastofu,
heilt starf og hlutastarf
Aðstoðarmanneskja óskast í fullt starf á tannlæknastofu í
Reykjavík. Einnig óskast aðstoðarmannneskja í 60% starf.
Að auki óskast aðstoðarmanneskja í hlutastarf síðdegis frá 4-7.
Á tannlæknastofunni, sem staðsett er miðsvæðis í Reykjavík,
starfa 20 manns, tannlæknar, aðstoðarfólk og tannsmiðir.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega. Starfið felst m.a.
í að aðstoða tannlækna við störf þeirra, símavörslu og afgreiðslu.
Umsóknir sendist á vip@frettabladid.is merkt „Aðstoð”
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Verkið er í fólgið í því, að endurnýja og leggja nýjar
lagnir veitna í stíg milli húsa í Grenigrund. Verk-
taki skal grafa skurði fyrir fráveitulagnir, kalda-
vatnslagnir, hitaveitulagnir, ídráttarrör, rafstrengi
og fjarskiptastrengi. Í skurðina skal verktaki sanda
undir og yfir rör og strengi, leggja lagnir, strengi, rör
og ídráttarrör, fylla yfir og ganga frá. Jafnframt skal
hann grafa fyrir og annast uppsetningu á niðurföl-
lum, brunnum, lokum, spindlum og tengiskápum.
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„VEV-2018-12-Grenigrund-Akranesi-Endurnýjun-lagna“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
miðvikudeginum 23.05.2018 á vefsíðu Orkuveitunnar
https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Tilboð verða opnuð hjá Veitum, Bæjarhálsi 1, 110 Reyk-
javík, þriðjudaginn 7. júní 2018 kl. 11:00.
VEV-2018-12 19.05.2018
Veitur ohf., óska eftir
tilboðum í útboðsverkefnið:
Grenigrund Akranesi
Endurnýjun lagna
ATVINNUAUGLÝSINGAR 15 L AU G A R DAG U R 1 9 . m a í 2 0 1 8
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-2
C
D
8
1
F
D
A
-2
B
9
C
1
F
D
A
-2
A
6
0
1
F
D
A
-2
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K