Fréttablaðið - 19.05.2018, Síða 84
Fyrir rúmri viku voru þing-kosningar í Írak. Kosið var í öll 328 sætin á löggjafar-samkomunni, þar sem fjöldi stjórnmálaflokka var í boði. Framboð eins
manns vakti þó meiri athygli en
flestra annarra. Tæplega fertugur
sjónvarpsfréttamaður, Munt adhar
al-Zaidi, tilkynnti á síðustu stundu
að hann gæfi kost á sér og lét þess í
leiðinni getið að hann stefndi að því
að verða síðar forseti Íraks.
Al-Zaidi hefur á liðnum árum
starfað sem fréttamaður hjá sjón-
varpsstöð í Líbanon og er þokka-
lega kunnur í Miðausturlöndum
fyrir störf sín á þeim vettvangi.
Hann öðlaðist hins vegar heims-
frægð í desember árið 2008, fyrir að
vera maðurinn sem reyndi að kasta
skónum sínum í George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Atvikið átti sér
stað á blaðamannafundi og upp-
tökur af því voru margendursýndar
út um allan heim.
Skókastarinn al-Zaidi fæddist og
ólst upp í Sadr, úthverfi Bagdað, sem
á þeim tíma var kennt við einræðis-
herrann Saddam Hussein. Fátækt
var mikil í hverfinu eða borgarhlut-
anum og voru kommúnistar og aðrir
stjórnarandstæðingar þar löngum
áhrifamiklir. Foreldrar al-Zaidis
voru pólitísk og máttu þau bæði sæta
pyntingum af hálfu öryggislögreglu
Saddams.
Að loknu háskólanámi í blaða-
mennsku hóf al-Zaidi árið 2005 störf
fyrir fréttastöðina Al-Baghdadia,
sem er í egypskri eigu en sendir út
um allan arabaheiminn. Meginvið-
fangsefni hans voru fréttir af óöld-
inni í Írak í kjölfar hernáms Banda-
ríkjamanna og bandalagsríkja þeirra
árið 2003. Þar á meðal fjallaði hann
um blóðug átök Bandaríkjahers í
uppeldishverfinu Sadr, sem var um
tíma ein helsta miðstöð andspyrnu-
hreyfingarinnar. Í þeim átökum var
Sadr lögð í rúst og miklar þjáningar
leiddar yfir íbúana.
Fréttamaður verður pólitískur
Starf fréttamannsins á dögum óald-
arinnar var háskalegt. Árið 2007 var
al-Zaidi rænt af hópi stigamanna,
sem héldu honum föngnum og
hótuðu lífláti. Honum var þó sleppt
eftir misþyrmingar, en fjölmargir
starfsbræður hans sluppu ekki svo
vel. Fullljóst má telja að ástæða
mannránsins hafi verið áhrifamikl-
ar fréttir al-Zaidi af fórnarlömbum
borgarastríðsins og gagnrýni á fram-
göngu hernámsliðsins. Eftir því sem
fréttamaðurinn fékk gleggri mynd
af stöðunni í heimalandi sínu, því
andsnúnari varð hann innrásinni
og bandarísku hersetunni. Síðla árs
2008 gafst honum svo óvænt tæki-
færi til að tjá þá afstöðu sína með
beinum hætti.
George W. Bush heimsótti Írak
um miðjan desember til að funda
með Nouri al-Maliki þáverandi for-
sætisráðherra landsins, sem gegnir
nú um stundir embætti varaforseta.
Þeir Bush og al-Maliki sátu fyrir
svörum á blaðamannafundinum,
þegar al-Zaidi, sem sat innan um aðra
fréttamenn, snaraði sér úr öðrum
skónum. Hann stóð upp og hrópaði á
arabísku: „Þetta er kveðjukoss írösku
þjóðarinnar til þín, hundurinn
þinn!“ Því næst grýtti hann skónum
í átt að forsetanum, sem vék sér fim-
lega undan.
Mikið fát kom á fréttamenn og
öryggisverði, svo al-Zaidi gafst tími til
að klæða sig líka úr hinum skónum
og kasta á sömu leið. Aftur tókst
Bush að beygja sig undan aðvífandi
fótabúnaði og í bæði skiptin gerði
al-Maliki sig líklegan til að slá skóna
í burtu. Göntuðust Írakar með það í
kjölfarið að forsætisráðherrann væri
álitlegur valkostur í markvarðarstöð-
una í fótboltalandsliðinu, miðað við
tilþrifin.
Þegar hér var komið sögu höfðu
öryggisverðirnir raknað úr rotinu.
Þeir stukku á al-Zaidi, börðu hann og
drógu svo alblóðugan út úr fundar-
salnum. Bush reyndi að láta ekki
á neinu bera og sló á létta strengi
með því að upplýsa fréttamenn um
skóstærð árásarvopnsins og sagðist
alvanur því að ókunnugt fólk sendi
honum tóninn. Lét hann að því liggja
að uppákoman væri ekki til marks
um óvinsældir bandarísku innrásar-
innar, heldur fremur vitnisburður
um það lýðræði og tjáningarfrelsi
sem henni hefðu fylgt.
Fréttamyndirnar flugu hins vegar
um víða veröld og hvarvetna veltu
menn því fyrir sér hvað yrði um skó-
kastarann frá Bagdað. Fyrstu sólar-
hringana var óljóst hvar hann væri
niðurkominn. Samtökin Amnesty
International kröfðust svara um
afdrif hans og fjöldi fólks krafðist
lausnar hans á götum úti í Írak. Loks
var al-Zaidi dreginn fyrir dómara
sem fyrirskipaði að hann skyldi
hafður í haldi þar til búið væri að
rétta í máli hans.
Vægan hlaut hann dóm?
Al-Zaidi lýsti sig þegar reiðubúinn til
að biðja forsætisráðherrann afsök-
unar á að hafa kastað skó í átt til
hans, en harðneitaði að gefa Banda-
ríkjaforseta sambærilega afsökunar-
beiðni. Hann sagði viðbrögð sín eðli-
leg í ljósi glæpa Bandaríkjahers og
þess skaða sem innrásin hefði valdið.
Margir reyndust honum sammála
og stuðningsyfirlýsingunum tók að
rigna inn hvaðanæva úr heiminum.
Vinnuveitandi al-Zaidis, egypska
sjónvarpsstöðin, sagðist styðja sinn
mann og sæi enga ástæðu til að biðj-
ast afsökunar á framferði hans. Skó-
kastið varð listamönnum innblástur.
Myndlistarmaður nokkur í Írak
útbjó risavaxinn gullhúðaðan skó
til minningar um atvikið, sem yfir-
völd létu raunar taka niður fljótlega.
Á Indlandi var sviðsett leikverk sem
fjallaði um skókastið. Eftirlíkingu
af skónum var komið fyrir á safni í
Bagdað og tyrkneskur skóframleið-
andi græddi á tá og fingri á að selja
skó sem taldir voru sömu gerðar og
sá sem ætlaður var enni forsetans.
Málið gegn al-Zaidi var tekið fyrir
nokkrum mánuðum síðar og vakti
það mikla athygli. Ýmsir óttuðust
að hann yrði kærður fyrir alvar-
lega líkamsárás eða tilræði og hefði
hörð refsing legið við slíku. Einnig
kom til greina að kæra hann fyrir
móðgun við erlendan þjóðhöfð-
ingja. Hámarksrefsing fyrir slíkt brot
var þriggja ára fangelsi (sem er ekki
nema helmingurinn af því sem liggur
við slíku broti hér á landi).
Fljótlega varð ljóst að írösk stjórn-
völd höfði lítinn áhuga á að búa til
píslarvott. Al-Zaidi hlaut þriggja ára
fangelsi, sem var fáeinum vikum
síðar mildað niður í eitt ár. Í septem-
ber 2009 var honum sleppt úr haldi
eftir níu mánaða afplánun, vegna
góðrar hegðunar. Hafði hann sætt
illri meðferð meðan á fangavistinni
stóð og höfðu bæði bein og tennur
brotnað í varðhaldinu. Ekki þurfti
hann þó að kvíða atvinnuleysi, því
fjölmiðlar víðs vegar úr arabaheim-
inum slógust um að ráða hann í
vinnu.
Skófár meðal mótmælenda
Skókastið leiddi líka af sér tísku-
bylgju meðal andófsfólks í heim-
inum. Næstu árin urðu fjölmargir
stjórnmálamenn fyrir því að skóm
var kastað í átt að þeim og í sumum
tilvikum reyndust kastararnir hittn-
ari en al-Zaidi. Að skipuleggja tákn-
rænt skókast til að lýsa vanþóknun
sinni á valdsmönnum varð sömu-
leiðis vinsæl mótmælaaðferð. Var
slíkt skókast til dæmis skipulagt í
tengslum við ræðuhöld háttsetts
Nató-foringja við Háskóla Íslands
um árið.
En uppákoman á blaðamanna-
fundinum 2008 hafði fleiri afleið-
ingar í för með sér. Hún varð til að
mynda kveikjan að fjölmörgum
greinum í vestrænum fjölmiðlum
þar sem menningarlegt hlutverk
skóbúnaðar í hugarheimi múslima
var rætt. Mátti þar lesa miklar útskýr-
ingar á því að í arabískri menningu
væri skórinn talinn óhreinn, enda
næst jörðinni og tilheyrði fótunum –
óvirðulegasta hluta mannslíkamans.
Í ljósi þessa væri það sérlega lítils-
virðandi að kasta skóm sínum í átt
að öðru fólki eða að sýna því undir
skósóla sína. Voru þessi sannindi
meðal annars tengd við þá siðvenju
múslima að fara úr skónum þegar
gengið er inn í mosku.
Ekki þótti aröbum sjálfum mikið
til þessarar rassvasamannfræði koma
og veltu því fyrir sér hvort það þætti
sérstakur vottur um vináttu og ástúð
á Vesturlöndum að henda skóm í
aðrar manneskjur? Óþarft væri að
leita djúpra menningarlegra ástæðna
fyrir því að al-Zaidi hefði klætt sig úr
skónum og látið vaða í átt til Bush
forseta: hann hafi einfaldlega gripið
það sem var hendi næst og sem hægt
var að koma í gegnum vopnaleitina
fyrir fundinn.
Þrátt fyrir allar bollaleggingarnar
um táknræna stöðu skæða, er erfitt
að finna sérstök rök fyrir því að mús-
limar líti öðru fólki fremur á skótau
sem skítugt eða vanheilagt fyrirbæri.
Vilji fólk finna sögulega ástæður fyrir
skókasti til að tjá pólitíska afstöðu
þarf ekki að líta margar aldir aftur í
tímann. Nóg er að hverfa aftur um
fáein ár.
Árið 2000 heimsótti ísraelski
stjórnmálamaðurinn Ariel Sharon
Musterishæðina í Jerúsalem. Var
þar um augljósa ögrun í garð Pal-
estínumanna að ræða, enda gat
heimsóknin af sér blóðuga uppreisn
sem Ísraelsher barði niður af mikilli
grimmd. Fyrstu mótmælin brut-
ust út sama dag og Sharon mætti,
með mörghundruð þungvopnaða
öryggisverði með í för. Varnarlausir
mótmælendurnir stóðu andspænis
brynjuklæddum Ísraelsmönnum og
gripu þá sumir til þess ráðs að kasta
lauslegu drasli og að lokum skónum
af fótum sér. Í hugum margra varð
það ein af áhrifamestu svipmyndum
uppreisnarinnar: lítilmagninn sem
lætur ekki bugast heldur mætir ofur-
eflinu með skókasti.
Og já, meðan ég man: Muntadhar
al-Zaidi var í framboði fyrir sérkenni-
legt kosningabandalag klerksins
Muqtada al-Sadr og kommúnista.
Hreyfingin varð óvæntur sigurvegari
kosninganna og al-Zaidi náði kjöri.
Kannski endar hann sem forseti eftir
allt saman?
Skósólunum er kastað!
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um nýja stjórnmála-
stjörnu.
Á IndlandI var SvIð-
Sett leIkverk Sem
fjallaðI um SkókaStIð.
George W. Bush sér í hvað stefnir á blaðamannafundi með þáverandi forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki. Nordic PhotoS
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is
1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R36 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
9
-F
1
9
8
1
F
D
9
-F
0
5
C
1
F
D
9
-E
F
2
0
1
F
D
9
-E
D
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K