Fréttablaðið - 19.05.2018, Síða 104
Viltu verða rekstrarfulltrúi?
Nýtt tækifæri fyrir þig!
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut
• Er langt síðan þú varst í skóla?
• Hefur þig lengi langað að drífa þig í nám en ekki þorað?
• Áttu slæmar minningar frá fyrri skólagöngu?
Vel menntaðir og áhugasamir kennarar, góð aðstaða, mikil reynsla og afslappað andrúmsloft. Þessi braut veitir mörg tækifæri á vinnumarkaði og til frekara náms.
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut er þriggja anna braut með tengingu við vinnustaði. Aðaláhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar.
Í lok námsins fá nemendur diploma sem rekstrarfulltrúi. Kennsla hefst í ágúst 2018.
Nánari upplýsingar gefur Inga Karlsdóttir, fagstjóri í síma 594 4000/8244114 eða inga.karlsdottir@mk.is
Logi Pedro sendi í gær frá sér sína fyrstu sóló-plötu, Li t la svart a stráka. Platan er gríðar-lega persónuleg – hún fjallar að mestu um líf
Loga síðustu misseri – réttara sagt
frá því í nóvember og fram í apríl.
Þó að Logi hafi samið öll lögin að
mestu leyti sjálfur voru þó fleiri
sem komu að plötunni – annars
vegar var það hönnuðurinn Sig-
urður Oddsson sem vann útlitið á
plötunni með Loga og Arnar Ingi
sem hjálpaði til við hljóðheiminn
og syngur í einu lagi.
Mentorinn Logi
Pródúserinn Arna Ingi Ingason,
Young Nazareth, hefur verið fastur
hluti af „krúi“ Loga síðustu þrjú árin
og verið með fingurna á tökkunum,
að einhverju leyti að minnsta kosti,
á nánast öllu sem hefur komið út
frá Les Frères Stefson auk þess sem
hann er gjarnan plötusnúður Sturlu
Atlas og fleiri úr hópnum á tón-
leikum. Logi pródúserar öll lögin á
plötunni, fyrir utan það fyrsta, sem
Auður pródúserar og það síðasta
sem Arnar pródúserar. Þó var sam-
vinna Arnars og Loga talsverð á
plötunni.
„Við Logi kynntumst í rauninni
fyrst í gegnum Twitter, fyrir svona
þremur árum síðan. Þá var ég í
Verzló, alltaf að leika mér að gera
„bíts“ – Young Karin kom einu sinni
að spila í hádegishléi í Verzló og mér
fannst það svo geðveikt að ég fór
heim eftir skóla og gerði „bít“ sem
ég setti á Soundcloud undir nafninu
„Young Karin type beat“.
Það tíðkast í rappheiminum að
ungir pródúserar geri takta sem
hljóma eins og eitthvað sem frægir
listamenn myndu notfæra sér og
setja þá á Soundcloud eða YouTube
með nafninu á listamanninum og
„type beat“ eftir á, oft í þeirri von
að fá athygli vegna nafnsins. Og
það gerðist hjá Arnari – vinir Loga
fundu taktinn á internetinu og í
framhaldinu setti Logi sig í samband
við Arnar og fékk hann til að vinna
með sér.
„Þeir voru að biðja með þetta
Sturlu Atlas dæmi og Logi hringir
í mig og vill að ég vinni í lagi með
þeim. Ég mæti og við gerum tvö lög
sem enda á fyrsta Sturlu Atlas teip-
inu. Svo voru þeir að spila á Secret
Solstice og voru ekki með neinn dj
og spurðu mig hvort ég vildi ekki
vera dj-inn og ég sagði bara „sure“
og þannig byrjaði þetta.“
Logi er búinn að vera að „men-
tora“ mig í gegnum tíðina, sem ég
hef lært ógeðslega mikið af. Þegar
við vorum að gera 101 Nights var
ég að gera mjög mikið af einhverj-
um „bíts“ og hann kom til mín og
sagði: „Þú verður að hugsa meira
um hvernig hljóð þú ert að velja,
hvernig trommur þú ert að velja
svo öll hljóðin séu fulllkomin“ –
hann „pushar“ manni, sem er mjög
verðmætt.“
Síðan þá hefur Arnar verið fastur
liður í verkefnum sem koma frá
Les Frères Stefson og eyðir stórum
hluta dags í 101nderland stúdíóinu
– en þar starfa margir listamenn
úr öllum áttum að hugðarefnum
sínum.
„Ef þú ert að vinna í einu herbergi
þá er alltaf einhver annar að vinna í
öðru herbergi og biður þig kannski
að koma að tékka og kannski gera
eitthvað við það lag og öfugt. Þannig
að þegar Logi var að gera þessa plötu
er hann alltaf að fá menn inn og fá
þá til að skoða hluti eða gera „pro-
duction“ á þessu lagi, spyrja hvort
megi bæta eitthvað, eða hvort eitt-
hvað vanti og ég segi að einhver
bassa lína megi vera öðruvísi til
dæmis... þannig að þetta er mjög
„free flowing“ vinna, myndi ég segja.
Logi gerði þessa plötu mjög mikið
einn til að byrja með, hann semur
öll þessi lög sjálfur og fær síðan fólk
inn eftir á þegar grunnurinn á flest-
öllum lögunum er kominn. Síðasta
lagið á plötunni, Tíma með Flóna og
Birni, þá var Logi bara að ganga um
stúdíóið að biðja fólk að senda sér
takta, og það er eitthvert bít sem ég
gerði sem var upprunalega Sturlu
Atlas demó og Bjartur var búinn að
syngja inn á sem ég sendi honum.
Logi samdi eitthvað við það svo
mætti ég daginn eftir og hann bað
mig að taka upp vers og þá var það
lag svona eiginlega komið.“
Arnar er ekki bara að smíða takta
fyrir plötuna heldur kemur rödd
hans við sögu í hinu stutta lagi Fjara
út sem virkar eins og eins konar inn-
gangur eða „intró“ fyrir næsta lag,
Tíma, sem á mjög Dr. Dre-legan hátt
inniheldur ekki rödd Loga eins og hin
lög plötunnar, heldur eru það Flóni
og Birnir sem sjá um þá hlið málsins.
Seinna bað hann mig að gera
„intro“ fyrir það lag og sagði að hann
vildi að ég myndi syngja „intro“ og
það væri bara sér „trakk“ – ég fékk
engar frekari leiðbeiningar og átti
bara að gera eitthvað. Það var bara
frekar skemmtilegt, að fá að syngja.“
Persónulegt skjaldarmerki
Sigurður Oddsson hannaði plötu-
umslagið en í því eru margar vís-
anir í persónulegt líf Loga, en það
er aðalumfjöllunarefni plötunnar
sem er gríðarlega persónuleg.
„Logi var með ákveðnar hug-
myndir þegar hann bað mig um
að koma að verkefninu. Platan er
mjög persónuleg fyrir hann og hann
vildi flétta inn í myndrænt efni plöt-
unnar nokkra persónulega útgangs-
punkta sem ég vann svo út frá.
Það fyrsta er hugmynd um að
byggja nýtt heimili með syni sínum,
Bjarti. Logi festi nýlega kaup á litlu
tveggja hæða einbýli í Þingholt-
unum sem hann hefur nefnt Maison
Pedro.
Önnur hugmyndin sem við
unnum út frá var að vinna með þrjú
hálsmen sem Logi ber, sem hvert og
eitt tákna fyrir honum mjög per-
sónulega hluti sem hann tengir
beint við efni plötunnar.
Þessi þrjú mótíf sem finna má
á hálsmenunum, sæhestur, hjarta
og vogin, fléttaði ég bæði fýsískt
framan á kover plötunnar, en einn-
ig í eins konar skjaldarmerki sem ég
útbjó fyrir Maison Pedro. Bakhlið
plötunnar og aðrir auka visúalar
notast við bréfsefni sem er merkt
skjaldarmerkinu.
Sara Björk sem ljósmyndaði
koverið er góð vinkona Loga og var
sú mynd tekin með það í huga að
fanga nána, persónulega portrett-
mynd.
Aðrir reffar sem má finna í þessu
eru til dæmis skjaldarmerki lands-
liðs Angóla í fótbolta. En í skjaldar-
merki Maison Pedro má finna
svörtu antilópuna sem prýðir merki
liðsins.
Litirnir rauður, svartur og gulur
eru einnig fengnir þaðan.
Að lokum er uppáhalds díteillinn
minn, það er mottó Maison Pedro,
sem má sjá í borða sem liggur neðar-
lega í skjaldarmerkinu. Skjaldar-
merki hafa samkvæmt hefðinni
oftast einhvers konar mottó eða
kjörorð hússins eða fjölskyldunnar.
Í stað mottós setti ég þarna ein-
faldaða bylgjumynd („waveform“)
bassatrommu.“
stefanthor@frettabladid.is
Húsið sem Logi byggði – Maison Pedro. Heimilið er komið með skjaldarmerki og allan pakkann. FréttabLaðið/Ernir
Lífið ræddi við Sig-
urð Oddsson hönnuð
og Arnar Inga Inga-
son pródúser, sam-
starfsmenn Loga
Pedro Stefánssonar á
plötunni Litlir svartir
strákar, og fengum
að skyggnast eilítið
í ferlið bak við útlit
plötunnar annars
vegar og hljóminn.
Siggi,
Arnar,
Logi og
Litlir
svartir
strákar
1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R56 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
Lífið
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-0
F
3
8
1
F
D
A
-0
D
F
C
1
F
D
A
-0
C
C
0
1
F
D
A
-0
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K