Fréttablaðið - 22.05.2018, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 8 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 2 . M a Í 2 0 1 8
Það sem þjálfunin færir þér:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og aukin vellíðan
• Trú á eigin getu, skýrari markmið og meiri árangur
• Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd
• Jákvæðara viðhorf og minni kvíði
Sumarnámskeið hefjast:
20 til 25 ára 28. maí og 7. ágúst
16 til 19 ára 29. maí og 8. ágúst
13 til 15 ára 5. júní og 8. ágúst
10 til 12 ára 11. júní og 8. ágúst
Ókeypis kynningartími 22. maí – Skráning á dale.is/ungtfolk
Nánari upplýsingar og skráning á dale.is eða í síma 555 7080
Upplifðu, njóttu og
skapaðu tækifæri
Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_050918_iceland
Fréttablaðið í dag
skoðun Borgarstjóri skrifar um
húsnæðismarkaðinn. 8
sport Meiðsli Hannesar Þórs
reyndust ekki alvarleg. 11
lÍfið Glæsilegir gest-
ir og mikill íburður
í hinu konunglega
brúðkaupi. 20
dóMsMál Lögmannafélag Íslands
fór langt út fyrir lagaskyldu sína
og þá rannsóknarskyldu sem hvílir
á félaginu við mat sitt á hvort Atli
Helgason fengi lögmannsréttindi
sín að nýju. Þetta er niðurstaða
Héraðsdóms Reykjaness sem í síð-
ustu viku ákvað að Atli mætti starfa
sem lögmaður, líkt og Fréttablaðið
greindi frá. Atli missti réttindi sín
þegar hann réð Einari Erni Birgis-
syni bana árið 2000, og hlaut fyrir
það sextán ára fangelsisdóm. Ríkis-
saksóknari hefur áfrýjað úrskurði
héraðsdóms til Landsréttar.
Atli lagði fram beiðni um að fá
lögmannsréttindi sín endurheimt
árið 2016. Hann dró beiðnina til
baka í kjölfar fjölmiðlaumfjöll-
unar og lýsti því yfir að hún hefði
endurvakið þjáningar aðstand-
enda Einars Arnar. Fréttablaðinu
er ekki kunnugt um hvers vegna
hann ákvað að sækja um réttindin
að nýju. Atli fékk uppreist æru
árið 2015 en óflekkað mannorð er
meðal skilyrða þess að hafa mál-
flutningsréttindi. Annað skilyrði er
að lögmenn hafi ekki farið í gjald-
þrot, en þeir geta óskað eftir undan-
þágu frá því skilyrði eftir að hafa
haft forræði á búi sínu í þrjú ár sam-
fleytt. Atli fór í gjaldþrot árið 2001
en hefur haft forræði á fjármunum
sínum síðastliðin fjórtán ár.
Lögmannafélagið hóf frum-
kvæðisrannsókn á persónulegum
högum Atla eftir að hann óskaði
eftir undanþágu frá skilyrði um
gjaldþrot. Rannsóknin sneri fyrst
og fremst að brotum Atla árið 2000,
kaupum hans á tveimur fasteignum
árið 2016, setu hans í stjórn einka-
hlutafélagsins Versus og hvort Atla
hefði „tekist að setja afbrot sitt í rétt
samhengi og læra af því“.
Félagið skoðaði fjármál Atla allt
að átján ár aftur í tímann, meðal
annars með því að kalla eftir öllum
skattframtölum hans og gögnum
frá skiptastjóra og Þjóðskjalasafni,
áður en það synjaði beiðni hans um
meðmæli. Atli kærði ákvörðunina
til héraðsdóms og sagði að stuðst
hefði verið við ólögmæt sjónarmið,
meðal annars með því að skoða
fjárhagsstöðu hans svo langt aftur
í tímann. Í dag væri hann í góðri
stöðu fjárhagslega og hefði hvorki
smakkað fíkniefni né áfengi í hátt í
20 ár. Dómurinn tók undir að synj-
unin hefði verið byggð á ómálefna-
legum sjónarmiðum, auk þess sem
engin lagastoð heimilaði félaginu
að rannsaka persónulega hagi fólks.
Þannig hafi stjórn Lögmannafélags-
ins farið langt út fyrir valdsvið sitt.
Dómari talar nokkuð tæpitungu-
laust um rannsókn lögmanna-
félagsins, en tekur fram að brot
Atla hafi verið svívirðilegt. Hins
vegar verði að líta til þess að 17 ár
séu frá því að Atli hlaut dóminn,
hann hafi afplánað sína refsingu
og ekki orðið uppvís að refsiverðri
háttsemi síðan. Því sé rétt að verða
við kröfu hans um endurheimt lög-
mannsréttinda. – sks
Gengu of langt
gagnvart Atla
Héraðsdómur telur Lögmannafélagið hafa farið langt
út fyrir valdsvið sitt í rannsókn á persónulegum
högum Atla Helgasonar, dæmds morðingja, þegar
hann sótti um endurheimt lögmannsréttinda sinna.
árneshreppur Tómas Guðbjarts-
son læknir segir dapurlegt að fylgj-
ast með umræðu um Hvalár-
virkjun, í grein í blaðinu í dag.
„Þrír af fimm fulltrúum sveit-
arstjórnar Árneshrepps, með
sveitarstjórann í broddi fylk-
ingar, leggja allt í sölurnar til
að þröngva í gegn umdeildri
og óafturkræfri fram-
kvæmd,“ segir Tómas
og vísar í fyrirhuguð
virkjanaáform. Árneshreppur hefur
verið í kastljósi fjölmiðla undan-
farið en Fréttablaðið sagði frá því
að hópur fólks hefði skráð sig til
heimilis í sveitarfélaginu til að
freista þess að hafa áhrif á niður-
stöður sveitarstjórnarkosninga
þar sem stærsta málið er virkjun
Hvalár. Meirihluti sveitar-
stjórnarinnar er fylgjandi
virkjunaráformunum.
– ósk / sjá síðu 9
Tómas segir sveitarstjórann
þröngva Hvalárvirkjun í gegn
slYs Tveir erlendir ferðamenn létust í
slysi við veiðar við Villingavatnsós við
Þingvallavatn. Kona féll í vatnið og
eiginmaður hennar kastaði sér á eftir
henni. Björgunin reyndist árangurs-
laus og örmagnaðist maðurinn.
Slysið átti sér stað um hádegisbil á
hvítasunnudag en þyrla Landhelgis-
gæslunnar var ekki ræst út þar sem
áhöfn á vakt uppfyllti ekki skilyrði
um lágmarks hvíldartíma. Fólkið var
úrskurðað látið í fyrrakvöld.
Þyrlan hafði fyrr um daginn verið
við leit í Ölfusá eftir að lögreglu barst
tilkynning um að maður hefði farið
fram af Ölfusbrú og endað í ánni.
Mannsins var leitað í gær og í fyrra-
dag en leit hætt í bili gærkvöld eftir að
hún hafði reynst árangurslaus. Leitað
verður á ný á morgun.
Mikið álag hefur verið á viðbragðs-
aðilum á Suðurlandi liðna viku. Á
miðvikudag varð banaslys þegar
fólksbíll og jepplingur skullu saman
vestan við Markarfljót. Sama dag var
leitað að tveimur ferðamönnum sem
lentu í snjóflóði við Grímsfjall. Þeir
fundust heilir á húfi . – jóe
Banaslysin öll á Suðurlandi
Atli Helgason
Hin árlega mótorhjólamessa fór fram í Digraneskirkju í gærkvöldi. Gestir messunnar voru tæplega 400 en vél-
fákarnir voru um helmingi færri. Kraftaklerkurinn séra Gunnar Sigurjónsson þjónaði til altaris. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
plús 2 sérblöð l fólk
l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-9
D
2
C
1
F
D
A
-9
B
F
0
1
F
D
A
-9
A
B
4
1
F
D
A
-9
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K