Fréttablaðið - 22.05.2018, Side 9
Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með umræðunni um Hvalárvirkjun á Ströndum und-
anfarnar vikur í aðdraganda kosn-
inga. Minnsta sveitarfélag landsins er
klofið í herðar niður og þrír af fimm
fulltrúum sveitarstjórnar Árnes-
hrepps, með sveitarstjórann í broddi
fylkingar, leggja allt í sölurnar til að
þröngva í gegn umdeildri og óaftur-
kræfri framkvæmd. Hjólin eru smurð
með margvíslegum stuðningi og lof-
orðum framkvæmdaaðilans Vestur-
verks, sem meðal annars hefur greitt
lögfræðireikninga sveitarstjórnar og
reikninga ótengda framkvæmdinni,
líkt og komið hefur fram undanfarið.
Hvar eru raddir þeirra Vestfirð-
inga sem vilja staldra við og leyfa
náttúrunni að njóta vafans? Þessar
raddir eru til, það veit ég vel eftir
fjölmargar heimsóknir mínar á Vest-
firði í gegnum árin. Nýverið stóð ég
fyrir fjölsóttum fyrirlestri á Ísafirði
um ósnortin víðerni. Þeir ráðamenn
vestfirskir sem mest hafa gagnrýnt
viðhorf náttúruverndarsinna mættu
ekki á fundinn. Nokkrum dögum
síðar fjölmenntu þeir hins vegar á
málþing á vegum Vesturverks á Ísa-
firði. Ég hef síðan reynt að fá ýmsa
aðila fyrir vestan til að skipuleggja
annað málþing sem væri opið öllum
og þar sem fleiri viðhorf gætu komið
fram. Enginn hefur sýnt þessu erindi
mínu áhuga, nema Vestfjarðastofa
sem vill þó aðeins halda málþingið
eftir kosningar!
Tíminn til að ræða svo umfangs-
mikla og umdeilda framkvæmd er
hins vegar einmitt fyrir kosningar.
Það er vert að íhuga af hverju raddir
þeirra sem vilja vernda ósnortnu
víðernin upp af Ófeigsfirði hafa ekki
verið meira áberandi á Vestfjörðum.
Þessi víðerni eru við þröskuld mestu
náttúrugersema Vestfjarða, Dranga-
skarða og friðlandsins á Hornströnd-
um. Gæti skýringin verið sú að valda-
miklir aðilar innan kjördæmisins
vilja stýra umræðunni?
Nýlega sendi Vesturverk snotran
bækling inn á öll heimili á Vestfjörð-
um. Þar eru kostir virkjunar tíund-
aðir með aðaláherslu á aukið raf-
magnsöryggi á Vestfjörðum. Aukið
rafmagnsöryggi er vissulega brýnt
úrlausnarefni fyrir Vestfirðinga en
Hvalárvirkjun mun ekki leysa þann
vanda.
Lítið er rætt um hringtengingu
rafmagnslína á Vestfjörðum, sem
lengi vel var ein helsta röksemdin
með virkjun, en þau rök virðast nú
hafa misst vægi – enda ekkert fast í
hendi um framkvæmd slíkrar hring-
tengingar. Sama á við um fjölda
langtímastarfa við virkjunina sem
talsvert var gert úr um hríð en verða
líklega engin. Loforð um aukið
afhendingaröryggi rafmagns og
aukna atvinnu fyrir Vestfirðinga eru
því orðin tóm.
Í sama bæklingi lofar Vesturverk
að verði af virkjun muni þeir sjá um
að klæða skólahúsið í Árneshreppi
og leggja hitaveitu og þriggja fasa raf-
magn í Norðurfjörð. Enn dapurlegra
er þó fyrirheit verktakans um að
opna fyrir rennsli í Hvalá yfir hásum-
arið þannig að ferðamenn geti notið
fossins Drynjanda með fullu vatns-
rennsli, en verði af virkjun verður
rennsli í honum að jafnaði aðeins
5% af meðalrennsli.
Drynjandi er einn af fimm fossum
á þessu svæði sem eru ómetanlegir og
á heimsmælikvarða. Nafn sitt dregur
fossinn af drununum sem myndast
þegar vatnið fellur beljandi niður í
næstum 100 metra djúp árgljúfrin
sem eru með þeim tilkomumestu á
Vestfjörðum. Verði af virkjun munu
drunurnar hverfa og í stað hvítu
ábreiðunnar blasir við veiklulegur
strengur. Ég trúi því ekki að Vest-
firðingar vilji fórna svona „Gullfossi“
fyrir megavött til stóriðju – enda gæti
hann óvirkjaður, ásamt mörgum
öðrum fossum á svæðinu, skapað
íbúum Árneshrepps og Vestfirðing-
um öllum ómetanleg verðmæti. Nátt-
úran getur nefnilega verið meira virði
ósnortin til lengri tíma en virkjuð.
Munum af hverju ferðaþjónusta
er orðin helsta tekjulind Íslend-
inga í dag. Veigamestu rökin fyrir
verndun svæðisins eru þó að gefa
komandi kynslóðum Íslendinga og
ferðamanna færi á að njóta þessara
einstöku náttúrugersema fremur en
að selja þær erlendum auðjöfrum
og auðsveipum umboðsmönnum
þeirra.
Náttúrulaus umræða í boði Vesturverks
Tómas
Guðbjartsson
læknir
Drynjandi sl. sumar og tölvugerð mynd eins og ætla má að fossinn líti út eftir virkjun Hvalár. Fólkið efst á myndinni
sýnir stærð fossins og árgljúfursins. MynD/TóMas GuðbjarTsson
Sólgler
með styrkleika
fylgja kaupum
á gleraugum.
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
Nánari upplýsingar á www.bsv.is eða bsv@bsv.is og í síma 571 4000
· Tengist símanum með Bluetooth.
· HQ voice hljómgæði með „noice cancellation“
Handfrjáls búnaður í bílinn.
Sekt fyrir að tala í símann undir stýri
án handfrjáls búnaðar er 40.000 kr.
Ég trúi því ekki að Vest-
firðingar vilji fórna svona
„Gullfossi“ fyrir megawött
til stóriðju – enda gæti hann
óvirkjaður, ásamt mörgum
öðrum fossum á svæðinu,
skapað íbúum Árneshrepps
og Vestfirðingum öllum
ómetanleg verðmæti. Nátt-
úran getur nefnilega verið
meira virði ósnortin til lengri
tíma en virkjuð.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9Þ R i ð J u D A G u R 2 2 . m A í 2 0 1 8
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-B
5
D
C
1
F
D
A
-B
4
A
0
1
F
D
A
-B
3
6
4
1
F
D
A
-B
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K