Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 18
Karl starfaði í átta ár sem forseti bæjarstjórnar í Mos-fellsbæ fyrir Vinstri græn en
hann og félagar hans voru braut-
ryðjendur í samstarfi VG og Sjálf-
stæðisflokks. Karli fannst því slíkt
samstarf á landsvísu spennandi og
talaði fyrir því opinberlega áður
en núverandi samstarf flokkanna á
landsvísu varð raunin.
Sjálfur hefur hann lagt pólitíkina
á hilluna og starfar núna sem bíl-
stjóri hjá Matfugli í Mosfellsbæ.
„Eftir átta mjög góð ár í bæjar-
stjórn fór ég að velta því fyrir mér
hvað ég ætti eiginlega að fara að
gera. Ég er lærður bókbindari og
vann við það á sínum tíma að
loknu námi. Gat þó ekki hugsað
mér að fara í það starf. Ég hef hins
vegar alltaf haft mikla bíladellu.
„Mér finnst gaman að keyra flotta
og stóra bíla.“
Tímamót í lífinu
Karl segir að það hafi því verið
ákveðin tímamót í lífi sínu þegar
hann varð fimmtugur og settist á
skólabekk til að taka meiraprófið.
Hann var þó síður en svo elstur í
sínum bekk enda eftirspurn mikil
eftir bílstjórum. „Eftir meiraprófið
réð ég mig til Kynnisferða og
starfaði þar í rúm tvö ár. Þar með
hafði ég tekið u-beygju í mínu
lífi sem mér líkaði vel. Það hefur
reynst mér ágætlega að skipta
um starfsvettvang og mér finnst
skemmtilegt að öðlast reynslu af
ýmsu tagi.
Draumurinn var svolítið að
keyra ferðamenn og kynnast þeim
heimi. Ég hef gaman af því að
umgangast fólk,“ segir hann. Þegar
Karl vann hjá Kynnisferðum keyrði
hann í nokkurn tíma rauðu tveggja
hæða túristarútuna, City bus, um
Reykjavík. Þá kynntist hann ferða-
mönnum mjög vel enda þeir einir
sem fá sér sæti í vagninum. „Fólk
af alls kyns þjóðernum kemur í
þessa rútu og margir spyrja mikið
um hitt og þetta sem viðkemur
borginni og landinu þrátt fyrir að
um borð sé sérstakt leiðsögukerfi.
Auk þess hafði fólkið gaman af
því að segja mér frá margs konar
upplifun sinni af landinu okkar,“
segir Karl.
Þegar við báðum hann um viðtal
var það ekki síst til að spyrja hann
hvernig það væri að aka hring eftir
hring um Reykjavík með túrista.
„Ég get ekki neitað því að það varð
leiðigjarnt þegar margir hringir
höfðu verið farnir. Sérstaklega
vegna þess að þetta er stór bíll
og margar götur í borginni mjög
þröngar. Það þurfti að fara afar
varlega um miðborgina, til dæmis
á Geirsgötu og ekki síður á Skóla-
vörðuholtinu,“ segir hann. Loks
varð Karl þreyttur á Reykjavíkur-
rúntinum og réð sig á vöruflutn-
ingabíl fyrir Matfugl þar sem hann
hefur starfað í tvö ár.
Draumurinn var
svolítið að keyra
ferðamenn og kynnast
þeim heimi. Ég hef
gaman af því að
umgangast fólk.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Fleygar, krabbar, klippur og vibro ripper frá Topa
555-8000 : velanaust.is
Vönduð verkfæri sem
hlotið hafa lof hjá
íslenskum verktökum
Úr pólitík í meiraprófið
Karl Tómasson er ekki bara þekktur sem trommuleikari Gildrunnar, hann er einnig fyrrverandi for-
seti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Karl tekur ýmsa snúninga í lífinu því einn daginn ákvað hann að
fara í meirapróf og gerast rútubílstjóri. Núna er hann að leggja lokahönd á nýjan hljómdisk.
Karl Tómasson segist hafa tekið nokkrar u-beygjur í gegnum lífið. MYND/EYÞÓR
Ný plata í haust
„Mig langaði að prófa 8-16 vinnu
til að hafa meiri tíma fyrir tón-
listina,“ bætir hann við en Karl gaf
út fyrsta sóló hljómdiskinn sinn,
Örlagagaldur, árið 2015. Platan
fékk frábæra dóma og var vel tekið
á markaðnum. Þess vegna situr
hann nú við lokafrágang að næstu
plötu sem kemur út í haust. Með
Karli vinna margir frábærir tónlist-
armenn, meðal þeirra eru áberandi
nú eins og á fyrri plötunni: Tryggvi
Hübner, Guðmundur Jónsson,
Jóhann Helgason og upptöku-
stjórinn er sá sami, Ásmundur
Jóhannsson. „Þeir hafa allir reynst
mér einstaklega vel.
Nýja platan verður svo-
lítið svipuð og sú fyrsta en það má
kannski segja að þetta séu systur-
plötur þótt fólk heyri vonandi
ýmislegt nýtt. Það verður aðeins
meira af rafmagnshljóðfærum í
þetta skiptið. Það finnst kannski
einhverjum skrítið að maður sé að
standa í hljómplötuútgáfu nú til
dags en til að þetta sé hægt verður
maður að vera mjög duglegur
sjálfur að selja plötuna. Hugsan-
lega er hægt að ná endum saman á
þann hátt en maður fer ekki lengur
með disk til sölu í plötubúð, þeirri
sögu er lokið. Mér finnst þetta bara
það allra skemmtilegasta sem ég
geri í lífinu,“ segir Kalli Tomm, eins
og hann er ævinlega kallaður, en
örugglega eru margir aðdáendur
sem bíða nýju plötunnar.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RvINNuvéLAR oG vöRuBíLAR
2
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
E
-F
3
C
4
1
F
E
E
-F
2
8
8
1
F
E
E
-F
1
4
C
1
F
E
E
-F
0
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K