Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Page 44

Bókasafnið - 01.07.2018, Page 44
44 Bókasafnið hefur samið við Skólavefinn um að allar rafbækurnar af vefnum Lestu.is7 renni inn í Rafbókasafnið. Þetta eru allt bækur sem komnar eru úr höfundarétti og eru bæði eftir íslenska og erlenda höfunda. Þarna er líka að finna margar helstu Íslendingasögurnar og önnur fornrit svo sem Háva- mál og Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Stærsti útgefandi landsins undirritaði samning við OverDrive snemma árs 2017. Þegar þessi grein er skrifuð eru einungis fimm bókatitlar útgefandans komnir inn í Raf- bókasafnið. Ekki er vitað hvað veldur þessum töfum en eftir því er beðið að unnt sé að bjóða lánþegum Rafbókasafnsins upp á nýjar og nýlegar bækur á íslensku. Nokkur minni bókaforlög eiga í samningaviðræðum við OverDrive og eru viðræður mislangt á veg komnar. Sum þeirra eru sterk á sviði útgáfu barna- og ungmennabóka, en það eru aldurshópar sem Rafbókasafnið vill leggja rækt við. Rafbókaveitan Emma.is8 og OverDrive hófu samningsvið- ræður í nóvember 2017. Nú er samningur í höfn og við meg- um vænta þess að fá bækur Braga Þórðarsonar um borgfirsk fræði inn í Rafbókasafnið, en Bragi stýrði Hörpuútgáfunni á Akranesi um árabil. Í framtíðinni getur Emma.is einnig verið vettvangur fyrir litla rafbókaútgefendur og rithöfunda sem sjálfir gefa út bækur sínar til þess að koma þeim inn í Rafbókasafnið. Framtíðin Lengi hafa lestrarhestar landsins beðið þess að geta lesið eða hlustað á rafbækur hvar sem er og geta „farið í bóka- safnið“ hvenær sem er til þess að sækja sér lesningu. Sá draumur hefur nú ræst. En þá lætur fólk sig dreyma áfram, það þyrstir í íslenskar bækur og mikið er spurt hvenær þeirra er að vænta inn í Rafbókasafnið. Þá koma mér í hug orð viturs manns – eða kannski hefur það verið vitur kona sem sagði „Það er erfitt að spá – einkum um framtíðina“. Heimildir Sveinbjörg Sveinsdóttir. (2017). Rafbókasafnið hefur verið opnað. Bókasafnið, 41, 21–22. Úlfhildur Dagsdóttir. (2018). Rafbókasafnið – bækur hér, bækur þar, bækur allsstaðar. Bókasafnið, 42, 40–41. Þekkingarveita í allra þágu • Hvar.is • Rafhlaðan, Skemman og Opin vísindi • Ritstjórn bókfræðigrunns Gegnis • Handbók skrásetjara Gegnis • Lykilskrá – íslensk efnisorð og mannanöfn • Íslensk útgáfuskrá – þjóðbókaskrá • Landsáskrift að Vef-Dewey • Millisafnalán • Ráðgjöf og samstarf Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er forystusafn íslenskra bókasafna og skal stuðla að samstarfi, samræmingu og þróun starfshátta þeirra og veita þeim faglega ráðgjöf. 7. http://lestu.is/ 8. http://emma.is/

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.