Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 14

Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 14
=NY DOGUN = syrgjendum eftir með þessum hœtti eru forréttindi. Þeir sem koma á opin hús tala gjarnan um það að gott sé að koma til okkar og létta þar með af sinni nánustu fjöl- skyldu og vinum. Það er nú einu sinni svo að fólk getur ekki alltaf talað um sínar innstu tilfinningar við sína nánustu. Og þá er gott að hafa þriðja aðila. Um vorið 1991 héldum við mjög fjölsótta námstefnu í Bústaða- kirkju um hin ýmsu málefni syrgj- enda. Þar var tekið á lagalegum réttindum ekkna og ekkla, hvern- ig lögreglan ber sig að við tilkynn- ingu andláts og mörgu fleiru. Á þessu má sjá að við látum okkur ekkert óviðkomandi þegar sorgin vegna ástvinamissis er annars vegar. Árið 1992 þurftum við enn að flytja okkur um set eftir að sókn- arnefnd Laugarneskirkju hafnaði beiðni okkar um áframhaldandi veru þar. Þrátt fyrir að við nytum dyggs stuðnings sóknarprestsins, séra Jóns Dalbús, varð sóknar- nefndinni ekki haggað. Við feng- um aldrei viðhlítandi skýringu á afstöðu þeirra. En þá fengum við tímabundið aðstöðu hjá Rauða Krossinum í Þingholtsstrœti. Séra Gylfi Jónsson þáverandi sóknarprestur í Grensáskirkju kom þá inn í myndina og bauð okkur fundaraðstöðu í safnaðar- heimilinu. Þar vorum við í rúm- lega eitt ár en þá sá sóknarnefndin ástœðu til að krefja okkur um leigu fyrir aðstöðuna. Það var okkur hins vegar um megn fjár- hagslega. Séra Gylfi, sem hafði verið okkur mjög hjálplegur í alla staði, talaði okkar máli en svo fór að enn vorum við á hrakhólum með húsnœði. Við vorum svo lánsöm að fá að- stöðu í Gerðubergi skömmu seinna og frá þeim tíma eða í tœp fjögur ár, höfum við haft okkar að- stöðu þar við einstaklega gott atlœti og velvilja starfsfólks þar. Nú stendur einnig til að samtökin Þessi mynd af fjölskyldunni í GarÖabœ er tekin á fermingardegi Einars Snorra, elsta sonar þeirra hjóna, Olgu og Einars Einarssonar. Davíð Arnar erframan við pabba sinn, en sá yngsti brœðranna, Birkir Snœr, er í kjöltu móður sinnar. Örfáum vikum síðar veiktist heimilisfaðirinn snögglega og dó.

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.