Mosfellingur - 13.09.2002, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 13.09.2002, Blaðsíða 2
Karl Tómasson Agœti lesandi nú hefur hafið göngu sína nýtt bœjarblað í Mosfells- bœ. Bœjarblaðið, sem ber nafnið Mosfell- ingur, er gefið út og er í ábyrgð undirritaðs í samvinnu við gottfólk úr pólitísku flokkunum þremur í Mosfellsbœ sem skipa ritnefnd blaðsins þ.e.a.s B- lista, D-lista og G- lista. Astceða þess að ritnefnd blaðsins er skipuð fólki úr póli- tísku flokkunum er til að gœta fyllsta hlut- leysis í fréttaflutningi blaðsins á málefnum bœjarfélagsins. Blaðið er öllum opið og hafi menn áhuga á að senda til blaðsins greinar er bent á net- fangið . Allar að- sendar greinar þurfa að vera undirritaðar af höfundi. Talsverðs þrýstings hefur gœtt meðal fyrir- tœkja og íbúa bœjar- ins að fá eitt öflugt frjálst og óháð bœjar- blað með reglulega útgáfu. Það er von mín að þetta blað uppfylli þœr óskir og falli í góðan jarðveg. Mosfellingur á að koma út annan hvern fimmtudag og verður dreift inn á hvert heimili og fyrirtœki í Mosfellsbœ. Blaðið verður til húsa að Þverholti 2 í Kjarna. sími: 897-7664. Karl Tómasson ritstjóri. MGSFELLSBÆ Lvcrhoiti 9 Sími: S6 6-S2S3 Heiiuasida: www.simiiet.is/fkm Opid: Mán-fös I’rá 10-18 2 Þann 5. október n.k. fer að stað landssöfnun á vegum Rauða kross Islands sem ber yfirskriftina „Gengið til góðs”. Þá verður m.a. gengið í öll hús í Kjósarsýslu og óskað eftir fjárframlögum til styrktar bágstöddum í suður- hluta Afríku. Kjósarsýsludeildin kemur til með að óska eftir sjálfboða- liðum hér í bæ í það verkefni og skorar á saumaklúbba, gönguhópa og alla þá sem vettlingi geta valdið til að taka þátt í söfnuninni. A vordögum eignaðist Kjósarsýsludeild Rauða kross Islands 50 fm. húsnæði að Urðarholti 4. Fram að þeim tíma hafði deildin enga fasta aðstöðu og fóru því fundir og allt starf fram á hinum ýmsu stöðum í sveitinni. Þessa dagana vinnur fjöldi fólks í sjálfboðavinnu við að standsetja húsnæðið svo það nýtist deildinni sem best. Mikið og gott starf hefur verið unnið á vegum Kjósarsýsludeildarinnar sem ber ekki oft mikið á. I sumar var haldið velheppnað námskeið sem bar yfirskriftina „Mannúð og menning”. Námskeiðið sóttu 19 börn á aldrinum 9-12 ára sem fór fram hér í Mosfellsbæ og víðar. Vegna góðrar þátttöku verður námskeiðið endur- tekið að ári ásamt framhaldsnámskeiði fyrir eldri börn. Að lokum er rétt að geta þess að öllum er velkomið að ganga í deildina. Gengið til góðs Hvert sem vegtrnir vtsa f ®rí j>ó gott órval if: <>amloKum, nammi, saáKki, ftýjar og gimláLr S vUeóspólur, ísKilt gos og góð&n grillmat, agiga ferrv

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.