Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 11
spá, til að mynda gerir hagspá okkar sem birt var í október síðastliðnum ráð fyrir 1,3 prósenta hagvexti í ár,“ segir hún. Til samanburðar reiknaði Seðla- bankinn í nóvember með að hag- vöxtur yrði 4,4 prósent árið 2018 en hann var 3,6 prósent árið 2017, samkvæmt gögnum frá Hagstofu. Endanlegar tölur fyrir árið í fyrra liggja ekki fyrir. Breytt landslag í ferðaþjónustu „Það sem veldur þessari lækkun á hagvaxtarspá Seðlabankans er fyrst og fremst breytt landslag í ferðaþjón- ustunni. Þannig er Seðlabankinn að spá því að útflutningur þjónustu dragist saman í ár, í fyrsta sinn frá árinu 2018. Í nýjasta hefti Peninga- mála er talað um farþega spá Isavia, en í henni er gert ráð fyrir 2,4 pró- senta samdrætti í komum ferða- manna til landsins,“ segir Erna Björg. Ef Seðlabankinn styðst við þá spá telur Erna Björg að hætta sé á að hagvöxtur geti reynst „enn minni“ en 1,8 prósent, eins og Seðlabankinn gerir ráð fyrir. „Ýmis- legt bendir til þess að 2,4 prósenta samdráttur í komum ferðamanna í ár sé í bjartsýnni kantinum, til að mynda ferðamannatölur í janúar og gjaldþrot Germania. Þá liggur ekki endanlega fyrir hvert flugframboð íslensku flugfélaganna verður,“ segir Erna Björg. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri varaði við verkföllum og óhóflegum launahækkunum í yfirstandandi kjaraviðræðum í skýringarmyndbandi sem Seðla- bankinn birti samhliða vaxta- ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans. „Nú slaknar á spennu í þjóðarbúskapnum en það er ekki samdráttur fram undan nema að við verðum fyrir nýjum áföllum. Verk- föll og launahækkanir langt umfram svigrúm yrðu slíkt áfall. Afleiðingin yrði hærri vextir og meira atvinnu- leysi. Reynum að forðast það,“ sagði hann. Kjarasamningar stærsta skerið Jón Bjarki segir að Seðlabankinn kveði skýrt að orði. „Kjarasamning- ar eru stærsta skerið á siglingunni næsta kastið. Það er óhætt að taka undir orð seðlabankastjóra. Enn fremur er vert að hafa í huga að ef það á að lækka skatta á þá sem lægstar tekjur hafa, þarf að sýna því skilning að á móti þurfi að draga úr útgjöldum ríkisins, eða sækja sambærilega upphæð í aðrar skatt- tekjur,“ segir hann. Erna Björg segir að verðbólgu- horfur hafi heldur versnað á undan- förnum mánuðum. „Líkt og kom fram í máli aðalhagfræðings Seðla- bankans í morgun er áhættan upp á við. Hafa ber í huga að línur eru ekki farnar að skýrast í kjaraviðræðum og því er Seðlabankinn að styðjast við svipaða spá um launaþróun og gert var í nóvember. Hvað varðar yfirstandandi kjaraviðræður þá tel ég óbreytta vexti gott innlegg í þær, vaxtahækkun hefði líklega verið eins og olía á eldinn. Ný spá Seðlabank- ans sýnir hins vegar svart á hvítu að það er að hægja á efnahagsum- svifum og útlit er fyrir minni vinnu- aflseftirspurn. Því þarf að vanda til verka þegar samið er um framtíð vinnumarkaðarins,“ segir hún. Mildari tónn Seðlabankinn kaus að halda stýri- vöxtum óbreyttum í 4,5 prósentum eins og þeir hafa verið frá því í nóv- ember. Áður voru þeir 4,25 prósent. Jón Bjarki segir að tónninn í yfir- lýsingu peningastefnunefndar sé að mildast. „Það var aðeins slegið á tal um þörf á auknu aðhaldi. Þessi breyting tengist væntanlega því að verðbólguálag og -væntingar hafa lækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og taumhald peningastefnunnar miðað við raunstýrivexti hefur því aukist á ný. Undanfarið hefur pen- ingastefnunefndin haft vaxandi áhyggjur af hækkun verðbólguvænt- inga og er því þessi nýlega þróun henni talsverður léttir, að minnsta kosti í bili.“ Frábær tilboðstvenna Þú færð Apple AirPods fyrir 10.000 kr. aukalega Apple iPhone XR Verð frá 124.990 kr. staðgreitt Tilboðið gildir til 10. febrúar 2019 Þú færð AirPods á aðeins 10.000 kr. þegar þú kaupir iPhone XR hjá Vodafone. Tryggðu þér þessa flottu tvennu í næstu verslun. Við erum í Kringlunni, Smáralind, á Suðurlandsbraut 8 og Glerártorgi. iPhone XR og AirPods Verð- lækkun MARKAÐURINN Ýmislegt bendir til þess að 2,4 prósenta samdráttur í komum ferða- manna í ár sé í bjartsýnni kantinum, til að mynda ferðamannatölur í janúar og gjaldþrot Germania Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Arion banka Kjarasamningar eru stærsta skerið á siglingunni næsta kastið Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka Þann 7. febrúar gefur Pósturinn út þrjú frímerki til að minnast merkisafmæla 2019. Lýðveldið Ísland 75 ára, Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli og Póstmannafélag Íslands 100 ára. Einnig koma út fjögur frímerki tileinkuð landslagsarkitektúr í útgáfuröðinni íslensk samtímahönnun. Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum lis taverkum F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F I M M T U D A G U R 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 2 -8 F F 0 2 2 4 2 -8 E B 4 2 2 4 2 -8 D 7 8 2 2 4 2 -8 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.