Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 31
Ísland er grafreitur fyrir skyndibita- staði. McDonald’s gekk ekki upp, það er óþekkt í heim- inum. Sömu sögu er að segja af Burger King. Nafn á viðmælenda og starfsheiti ekki punktur á eftir Alltaf til taks Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Algjörlega hnökralaust Vodafone hentar mínum rekstri best. Þau hafa þjónustað okkur með allt sem þarf, algjörlega hnökralaust. Áskorunum fyrirtækja ekki sýndur skilningur „Sanngirni er ekki gætt í umræð­ unni hvað varðar rekstur fyrir­ tækja á Íslandi,“ segir Birgir Örn, sem jafnframt situr í stjórn Sam­ taka iðnaðarins. „Starfsumhverfi fyrirtækja og þeim áskorunum sem við er að eiga er ekki sýndur nægur skilningur. Fyrirtækjum sem skila góðum hagnaði er oft mætt með tor­ tryggni og arðgreiðslur eru litnar hornauga. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Skjóti þetta við­ horf rótum verður æ erfiðara fyrir þá sem eiga eða stýra fjármagni að réttlæta þátttöku í áhættuverkefnum. Það verður ekki fram hjá því litið að stund­ um tekst vel til í fjárfestingum og stundum skila þær umtalsverðu tapi. Það að sigið geti á ógæfu­ hliðina vill oft gleymast. Hagnaður er mikilvægur til að fyrirtæki fái blómstrað og svo hægt sé að byggja þau upp en þau veita fólki atvinnu og skapa hagsæld þjóða. Því öflugri sem fyrirtækin eru því betri laun geta þau greitt og veitt fleirum at­ vinnu. Domino’s, sem er burðugt fyrirtæki, greiðir til dæmis nokkuð hærri laun í búðunum en kauptaxti kveður á um í því skyni að halda starfsmönnum lengur í vinnu því vanir starfsmenn eru betri starfskraftar. Fyrir mörg minni fyrirtæki getur það reynst þrautin þyngri að greiða starfsmönnum laun í hverjum mánuði, húsaleigu og standa straum af öðrum kostn­ aði. Það er ekki vegna þess að stjórnendur þeirra séu vanhæfir heldur er krefjandi að reka fyrir­ tæki – sérstaklega þau sem hafa ekki úr miklu fjármagni að moða. Ég hef staðið í þessum sporum, sem betur fer ekki í rekstri Domino’s, og oft hefur launa­ greiðslum vera bjargað fyrir horn samdægurs eða ég hef orðið að hringja í birgja og biðja um að fá að greiða reikning viku seinna. Þetta tók verulega á og þeir sem ekki hafa staðið í þessum sporum eiga erfitt með að setja sig í þau.“ Birgir vekur athygli á að stundum er sagt að íslensk fyrirtæki séu almennt illa rekin í samanburði við fyrirtæki er­ lendis. „Glöggt er gestsaugað. Domino’s á Íslandi hlaut verð­ laun frá alþjóðlegum samtökum sérleyfishafa um framúrskarandi rekstur, Franchise Association Awards. Það er vísbending um að það sé ekki rétt að fyrirtæki hér á landi standi sig illa.“ Borið hefur á góma í um­ ræðunni að kennitöluflakk sé stundað í nokkrum mæli á Íslandi. „Það er orðum aukið að mínu mati í dag. Bankarnir eru kröfuharðir og lána einungis gegn því að lagt sé fram eigið fé í reksturinn og lánin eru oftast veitt með traustum veðum. Fari reksturinn í gjaldþrot er ekki hægt að stökkva frá borði, taka fjármuni úr fyrirtækinu og reyna aftur fyrir sér. Þannig gengur það sjaldnast fyrir sig. Þeir sem lögðu eigið fé í rekst­ urinn hafa tapað því og veðinu sem var lagt fram til tryggingar fyrir láni. Bankinn reynir að bæta upp tjón sitt með því að ganga að tryggingunum. Það er því ekki stór hópur manna sem hagnast á kenni­ töluflakki í dag heldur eru mýmörg dæmi af þeim sem hafa tapað umtalsverðu fé á að reyna fyrir sér í fyrirtækjarekstri eða fjárfestingum,“ segir Birgir Örn. Grafreitur fyrir skyndibitastaði Það hafa margir reynt að opna erlendar pitsukeðjur hér á landi en engu að síður eruð þið eina stóra keðjan. Hvað veldur? „Ísland er grafreitur fyrir skyndi- bitastaði. McDonald’s gekk ekki upp, það er óþekkt í heiminum. Sömu sögu er að segja af Burger King. Þekktar pitsukeðjur á borð við Papa John’s og Little Caesars, sem eru á meðal þeirra fjögurra stærstu í heiminum, hafa reynt fyrir sér án árangurs. Pizza Hut var umsvifa- mikill hérlendis en rekur nú einung- is tvo veitingastaði. Íslenskar keðjur hafa einnig átt erfitt uppdráttar, eins og Pizza 67, Hrói Höttur og Rizzo Pizzeria og orðið gjaldþrota. Ísland er erfiður markaður. Hann er smár og vindar geta breyst á auga- bragði í efnahagslífinu. Fyrirtækin þurfa að vera sveigjanleg en erlend stórfyrirtæki eru vanari stöðugleika og eiga því erfitt með að fóta sig í þessu umhverfi. Það má sömuleiðis lítið út af bera til að reksturinn gangi illa og þegar sá bolti fer að rúlla niður brekkuna getur verið erfitt að stoppa hann. Samkeppnin er mjög hörð – og Domino’s er erfiður keppinautur. Þegar Domino’s var opnað var talið að markaðurinn myndi bera í mesta lagi tvo eða þrjá pitsustaði. Það grunaði engan að hægt væri að reka hér 25 staði. Á Íslandi eru seldar flestar pitsur innan Domino’s miðað við höfða- tölu í heiminum og nokkrar versl- anir okkar skipa efstu sæti yfir þær sem hafa mestu veltu hjá Domino’s í heiminum þrátt fyrir að hér séu flestar búðir á hvern landsmann. Við erum stolt af því að í skoðana- könnunum er Domino’s talin besta pitsan. Það er óvanalegt. Í f lestum löndum hlotnast eldbökuðum pits- um sá heiður. Þetta gerir það mögu- lega að verkum að salan gengur vel.“ Stefnið þið á að opna f leiri pitsu- staði? „Já, við stefnum á það. Talið er að Íslendingum muni fjölga um 22 þúsund á næstu fjórum árum á höfuðborgarsvæðinu og það kallar á eina til tvær búðir í viðbót. Okkar markmið er að opna 30 búðir. Það yrði frábær árangur.“ Kjarasamningar eru áskorun Hvernig horfa nýir kjarasamningar við þér? „Fyrir fyrirtæki sem starfa á sama sviði og Domino’s, framleiðslu- og veitingafyrirtæki, verða nýir kjara- samningar mikil áskorun. Margir félaga minna eru áhyggjufullir. Samningnum er ætlað að ná utan um fjölda ólíkra starfa hjá fjölda ólíkra fyrirtækja og niðurstaðan er málamiðlun. Það varð að semja og skapa frið á vinnumarkaði. Það var skýr vilji félagsmanna í Sam- tökum atvinnulífsins að kjósa með samningunum, 98 prósent kusu með þeim hætti. Veitingastaðir, sem eru með fjölda starfsmanna á launaskrá, þurfa að horfast í augu við 25-30 prósent launahækkanir. Það er afar mikið. Meðalhækkunin fyrir öll fyrirtæki er 15,7 prósent. Þeir atvinnuvegir sem þurfa að glíma við hvað mestar hækkanir eru framleiðsla, smásala, ferðaþjónusta og fiskvinnsla. Mörg fyrirtæki sem starfa á þeim sviðum, einkum þau minni, höfðu ekki mikið til skipt- anna fyrir samninganna.“ Hvernig mun Domino’s bregðast við hækkunum? „Það þarf að hagræða í rekstri. Við erum alltaf að reyna að gera betur. Á meðal þess sem verður skoðað er að breyta opnunartímum. Sjálfvirknivæðing færist sífellt í aukana, 70 prósent pantana fara í gegnum app eða vefinn en var ein- ungis þrjú prósent fyrir sjö árum og 30 prósent í gegnum símaverið. Þessi þróun mun halda áfram og skiptir sköpum fyrir reksturinn. Engu að síður er starfsmanna- fjöldinn í símaverinu álíka og áður. Það fer nefnilega svipað mikil velta í gegnum símaverið núna og þegar við keyptum fyrirtækið. Við settum ökurita í bílana okkar í því skyni að draga úr hraðakstri og fara betur með bílana. Það hefur mikill árangur náðst á því sviði. Kerfið gerir það að verkum að við uppgötvuðum að bílarnir voru ekki nýttir nógu vel. Bílar stóðu ónotaðir á einum pitsustað á meðan annar leigði bíla af bílaleigu til að anna eftirspurn.“ Þarf Domino’s að hækka vöru- verð? „Við stefnum ekki á það. Það þarf að reyna að leysa úr stöðunni sem fylgir auknum kostnaði og það er ekki hægt að segja til um það strax með hvaða hætti við munum bregðast við. Launakostnaður fyrir- tækisins mun hækka og við munum væntanlega fá ný vöruverð frá birgj- um. Hver áhrifin verða á reksturinn á enn eftir að koma í ljós, kakan á enn eftir að bakast. Lykilatriðið er að við munum halda okkar striki og bjóða fólki mikið fyrir peninginn.“ Óttastu að kjarasamningarnir muni draga verulega úr EBITDA- hagnaði Domino’s? „Samningarnir munu klárlega hafa áhrif á EBITDA-hagnað félags- ins. Það þarf að grípa til margra aðgerða til að bregðast við breyttum aðstæðum. Það gildir um öll fyrir- tæki í okkar geira, fyrir sum verður þetta gríðarlega erfitt.“ En fyrir ykkur? „Þetta verður líka erfitt fyrir okkur.“ Hvernig horfa kjarasamningar við nýjum eigendum, Bretum, sem eru ekki vanir kjarasamningum af þessum toga? „Það hefur verið f lókið að skýra þetta út fyrir þeim. Þeir eru ekki vanir kjarasamningum sem þess- um. Þeir þekktu til kjarasamnings- ins sem gerður var á undan og þótti hann undarlegur. Ísland spilar eftir öðrum takti hvað varðar launa- hækkanir og vinnumarkaðinn.“ Bjó lengi í útlöndum Hvað gerðir þú áður en þú settist í stól forstjóra Domino’s? „Ég f lutti til útlanda árið 1997 eftir að hafa lokið námi í hagfræði og hóf störf hjá Strax, sem selur íhluti fyrir farsíma alþjóðlega og var þriðji starfsmaður fyrirtækisins. Það var stórkostlegt að taka þátt í þessu ævintýri, fyrirtækinu óx fiskur um hrygg og veltir nú um 15 milljörðum króna,“ segir Birgir Örn. Strax er skráð í Kauphöllina í Sví- þjóð og er markaðsvirðið um þrír milljarðar króna. Það framleiðir meðal annars farsímavörur undir merkjum Adidas og Bugatti og á vörumerkið Urbanista sem fram- leiðir heyrnartól. „Ég f lutti til Miami til að koma starfseminni í Bandaríkjunum á laggirnar með Ingva Tý Tómassyni og bjó þar í nokkur ár, því næst tók ég við starfseminni í Evrópu og flutti til Bretlands til að sinna starfinu. Loks keypti Strax fyrirtæki í Þýskalandi og ég tók við rekstri þess um hríð. Þetta var góður tími en á köflum afar erfiður. Við höfðum úr litlu fjár- magni að moða og fyrstu tvö árin fengum við ekki hefðbundin laun heldur skiptum við peningunum þegar eitthvað var afgangs. Þetta var dýrmætur skóli. Ég sneri aftur til Íslands, vildi ekki ílengjast erlendis, og tók við rekstri Cintamani árið 2010. Ég var orðinn býsna vanur harkinu og hafði ekki tekið þátt í góðærinu sem hafði verið á Íslandi í aðdraganda hrunsins. Marga skorti reynsluna til að takast á við eftirmál hrunsins en segja má að ég hafi verið í slíkri þjálfun í 13 ár, ég var því reiðubúinn til að takast á við erfið en skemmti- leg verkefni. Mér þykir afar skemmtilegt að byggja upp fyrirtæki. Ég kom að uppbyggingu Joe & the Juice á Íslandi, Domino’s í Noregi og er hluthafi í Billboard/buzz sem er að breyta flettiskiltum sem margir kannast við í LED-skjái og er að setja LED-skjái í strætóskýli á höfuð- borgarsvæðinu og selur auglýsingar þangað. Þetta mun bylta auglýsinga- markaði á Íslandi.“ Hvernig gekk að koma starfsem- inni í Noregi á fót? „Það er erfitt að opna nýja mark- aði. Domino’s hafði ekki verið með starfsemi þar áður og því vorum við að byggja upp reksturinn frá grunni. Það tekur mörg ár að skilja neytendur á nýjum markaði og finna jafnvægið í rekstrinum. Upphaf lega hugmyndin var að endurtaka leikinn á Íslandi og byggja á sömu hugmyndafræði, sömu tilboðum og sambærilegum auglýsingum. Það gekk ekki eftir. Við urðum að hlaupa á einn vegg til fara fram hjá honum og skella síðan á næsta vegg. Það þarf að gefa þessu tíma, það er verið að leita leiða og finna út hvernig best er að haga rekstrinum í Noregi en þar hefur verið góður vöxtur milli ára. Bretarnir keyptu meðal annars fyrirtækið því við vorum með sér- leyfissamning um að reka Domino’s í Noregi og Svíþjóð. Þar eru vaxtar- tækifæri.“ Kaupa Norðmenn mikið af pits- um? „Það eru stórar pitsukeðjur í Noregi en það kaupir nánast engin þjóð jafn mikið af pitsum og Íslend- ingar. Við erum sér á báti hvað það varðar.“ MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 . M A Í 2 0 1 9 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 7 -8 C 8 C 2 2 E 7 -8 B 5 0 2 2 E 7 -8 A 1 4 2 2 E 7 -8 8 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.