Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 95

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 95
L ó ð r é t t h r e y f i n g TMM 2013 · 3 95 staðið þá er engin leið til að meta árangur áreynslunnar og líkast til verður árangurinn enginn. Ég þreyttist á þessu og át því svolítinn sand og sofnaði síðan eins og dauður. Þegar húðin skorpnaði greri hún aftur og eftir að hún greri skorpnaði hún aftur. Smám saman varð hún þykkari. Mannfólkið fyrir ofan mig er með þykka húð. Höfðu þau öll lent í því sem ég var að reyna? Æ, þessi kyrrð, þessi hryggð! Líklega getur maður sætt sig við hana skamma stund en ef hún verður viðvarandi, er maður þá ekki samasem dauður? Kvíði lagðist hægt og sígandi á huga minn. Ég hugsaði um þann sem var horfinn: kannski var hann enn lifandi. Einn möguleiki var sá að við værum báðir lifandi og að í raun og veru myndum við aldrei deyja. Grafnir í þessum endalausa sandi stykkjum við hvor í sínu lagi og myndum aldrei sjá hvorn annan. Þegar mér datt þessi möguleiki í hug kipptist ég allur til. Þetta gerðist þónokkrum sinnum. Það var virkilega skelfilegt í síðasta skiptið. Ég hélt ég myndi deyja. Ég varð var við fjallið sem var í rauninni hlutirnir tveir svörtu sem áður höfðu verið fyrir ofan mig. Þeir hurfu um skeið en komu svo aftur. Þeir þrýstust niður að mér en þrýstu mér ekki til dauðs. Þeir héngu bara uppi yfir mér. Um þessar mundir hætti ég allt í einu að fá krampakippi. Þegar þeim linnti fór meðvitund mín á mikinn hraða og síðan tapaði ég alveg áttum. Ég neytti allra krafta til að stökkva upp! Samstundis varð fjallið svo miklu veikara að það varð eins og tvö laufblöð – laufblöð fönix-trésins sem er ofanjarðar. Ég fann þau satt að segja svífa um. Mér fannst kraftaverk vera að gerast. Ég tók stórt stökk af spenningi og nú voru fönix-laufin orðin fjögur! Þau voru í alvöru fjögur. Ég heyrði hljóðið frá hverju þeirra. Það var málmhljóðið sem sagnirnar segja frá. Ég vissi að ég hafði ekki misst áttanna: ég var á réttri leið! Innan skamms komu rifur á laufin og ég sá ljósið! Þótt ég hafi engin augu kom það ekki í veg fyrir að ég „sæi“. Ég – skordýr neðanjarðar – sá ljósið! Haha! Engan æsing. Hvernig fór ég að því? Með mínum örum setta líkama, sem var tekinn og kvíðafullur? Eða voru þetta bara hillingar? Hver gat ábyrgst að á því augnabliki sem ég kæmi út úr jörðinni rynni ekki upp stund dauða míns? Nei, ég vildi ekki komast til botns í þessu máli. Það væri fínt ef ég gæti bara fundið fönix-laufin fyrir ofan mig. Æ, þessi eilífu hvellu laufblöð: kaldur andvari Móður Jarðar þaut í laufunum … Það leið yfir mig. Þegar ég rankaði við mér heyrði ég sandinn suða allt í kringum mig og innan í þessu hljóði talaði gömul og lágvær rödd. „M, vex goggurinn þinn ennþá?“ Hver var þetta? Var þetta hann? Hver annar gat það verið? Það var svo langt um liðið. Þessi eyðimörk, þessi eyðimörk … Hvernig stóð eiginlega á þessu? „Já, goggurinn minn, goggurinn minn! Gerðu það segðu mér: hvar er ég?“ „Þú ert á efstu skorpu jarðarinnar. Þetta er nýja heimilið þitt.“ „Get ég ekki borað mig út úr þessu? Meinarðu að héðan í frá verði ég að ráfa um í þessum sandi? En ég er orðinn vanur lóðréttri hreyfingu.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.