Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Qupperneq 117

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Qupperneq 117
E r n ý t t „ k a l t s t r í ð“ í u p p s i g l i n g u ? TMM 2013 · 3 117 á afgerandi hátt. Það er engum vafa undirorpið að Jeltsín naut stuðnings Vesturveldanna, þ.m.t. Bandaríkjanna, og miklar vonir voru bundnar við hann. Fyrsti leiðtogafundur Jeltsíns og Bills Clinton, sem tók við embætti Bandaríkjaforseta í ársbyrjun 1993, fór fram í Vancouver í Kanada í apríl 1993. Í yfirlýsingu fundarins kom fram að forsetarnir væru staðráðnir í að koma á virku og áhrifaríku samstarfi milli Rússlands og Bandaríkjanna og Jeltsín lagði áherslu á að samskiptin tækju mið af því að hér væri um að ræða „framtíðarbandamenn“.3 Hugsun Jeltsíns og fylgismanna hans var að grípa til róttækra og harkalegra efnahagsaðgerða, sem m.a. áttu að leiða til aðildar Rússlands að vestrænum samtökum, eins og ESB, NATO, IMF og G-7, koma Rússlandi á þann hátt í Evrópufjölskylduna og vinna þannig upp 70 ára glataða tíð sem hafði tapast undir kommúnismanum.4 Þetta tókst nú ekki eins og að var stefnt eins og við vitum og Jeltsín viðurkenndi, tveimur árum eftir hrun Sovétríkjanna, að Rússland hefði ekki náð að skapa sér verðugan sess í samfélagi þjóðanna.5 Það hefur líka verið sýnt fram á að Jeltsín hafði ekki sérstaklega góð tök á að móta eina heildstæða utanríkisstefnu fyrir Rússland. Til vitnis um það má benda á að um 30 héruð í Rússlandi ráku sumpart sjálfstæða utanríkisstefnu og undir lok 10. áratugarins voru amk. 11 héruð með eigin sendiskrifstofur í erlendum ríkjum. Þannig höfðu héruðin undirritað um 130 alþjóðlega sáttmála, sem sumir hverjir höfðu í för með sér skuldbindingar að alþjóðalögum. Tatarstan er líklega það hérað sem mest lét fyrir sér fara í þessu efni en einnig önnur héruð þar sem múslímar eru fjölmennastir en líka Moskva og Leníngrad sem höfðu stöðu héraða.6 Eftir sem áður verður að telja það óyggjandi að með Jeltsín við stjórnvölinn í Rússlandi og Bill Clinton sem forseta Bandaríkjanna, hafi sambúð ríkjanna verið góð framan af 10. áratug síðustu aldar. Þetta átti þó eftir að breytast. Í ræðu sinni í rússneska þinginu um stöðu ríkisins í febrúar 1996, viðurkenndi Jeltsín eins og fyrr segir að utanríkisstefnan hefði ekki tekist sem skyldi. Illa hefði gengið að skilgreina markmið stefnunnar og erfitt hefði reynst að samræma stefnu og aðgerðir. Þar nefnir hann m.a. stækkun NATÓ sem sé gegn hagsmunum Rússlands, átökin í Júgóslavíu og hernaðaruppbyggingu í Evrópu (ABM Treaty – Anti-Ballistic Missile-samningurinn um gagn flauga- varnar kerfi) en tók jafnframt fram að nokkur árangur hefði þó náðst, einkum varðandi bætt samstarf innan SSR (CIS7).8 Allt þetta, ásamt manna skiptum í stóli utanríkisráðherra Rússlands, þegar Jevgeníj Prímakov tók við af Andrej Kozyrev, átti sinn þátt í að sambúð Rússlands og Bandaríkjanna versnaði talsvert. Fall Sovétríkjanna sem slíkra leiddi því ekki til varanlegra breytinga til hins betra í samskiptum þjóðanna, þótt hugmyndafræðilegum ágreiningi (kommúnismi/kapítalismi) væri ekki til að dreifa með sama hætti og áður. Og hverju breytti Pútín? Óhætt er að fullyrða að stjórn Rússlands hafi tekið miklum stakkaskiptum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.