Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 130

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 130
Á d r e p u r 130 TMM 2013 · 3 mig minnir í Rúmeníu, þegar fréttin um hernaðarárás Rússa og nánustu banda- manna þeirra á Tékkóslóvakíu barst um heimsbyggðina að morgni 21. ágúst. Við Einar var ekkert símasamband þennan morgun og við töluðum ekki saman fyrr en hann kom heim einhverjum dögum síðar. Aftur á móti náði Þjóðviljinn tali af honum síðdegis þennan dag. Í viðtali við hann sem blaðið birti fordæmdi hann innrásina og kvaðst vera „algerlega andvígur hernámi Tékkóslóvakíu“. Ég sá í hendi mér að þegar í stað yrði að boða fund í framkvæmdanefnd Sósí- alistaflokksins og var hann haldinn síð- degis þennan sama dag. Við blasti að ég hlaut að semja tillögu að ályktun til að leggja fyrir fundinn. Eini maðurinn úr framkvæmdanefndinni sem ég ræddi við um efni tillögunnar þennan morgun var Guðmundur Hjartarson, síðar seðla- bankastjóri. Við sátum lengi tveir á tali. Um allt sem verulegu máli skipti vorum við sammála. Í fyrsta lagi að harðasta fordæming á innrásinni væri sjálfsögð og í öðru lagi að ekki kæmi til greina að halda áfram neins konar flokkslegum samskiptum við valdaflokka innrásar- ríkjanna. Heilabrot okkar snerust hins vegar um hvort Sósíalistaflokkurinn, sem þá þegar hafði boðað andlát sitt, ætti að láta frá sér fara yfirlýsingu um slit á sam- skiptum. Að athuguðu máli fannst okkur það svolítið kjánalegt og ákváðum að stefna frekar á að ákvörð unin um engin flokksleg samskipti yrði tekin á vettvangi Alþýðu bandalagsins, en með stuðningi sem allra flestra flokksmanna Sósíalista- flokksins í þessum nýja flokki sem þá var í burðarliðnum. Eftir hádegið hringdi Magnús Kjart- ansson í mig en hann var staddur í London. Ég las fyrir hann tillögu mína og lýsti hann samþykki við hana. Meira máli skipti að hann gaf mér heimild til að greina við upphaf hins boðaða fund- ar í framkvæmdanefndinni frá ein- dregnum stuðningi sínum við tillöguna. Þá sá ég að björninn var unninn. Það er svo að skilja að ég þóttist viss um að kæmi fram eitthvert andóf gegn tillög- unni á framkvæmdanefndarfundinum yrði það vanburða. Þar skipti höfuðmáli stuðningur Guðmundar Hjartarsonar og Magnúsar. Svo fór að tillagan var samþykkt samhljóða á þessum fundi, eftir miklar umræður, og birt sem for- ystugrein í Þjóðviljanum daginn eftir. Að kvöldi innrásardagsins, 21. ágúst, var líka haldinn fundur í framkvæmda- stjórn Alþýðubandalagsins en nokkrir af framkvæmdanefndarmönnum Sósíal- istaflokksins áttu líka sæti í henni, þar á meðal Guðmundur Hjartarson og Lúð- vík Jósepsson. Á þessum kvöldfundi var einnig samþykkt samhljóða mjög harð- orð fordæming á innrásinni og henni lýst sem „níðingsverki.“ Athyglisvert er að í hvorugri þessara ályktana frá 21. ágúst er að finna yfirlýs- ingu um að samskipti við valdaflokka innrásarríkjanna séu útilokuð. Skýring- in á því er sú að um slíka ákvörðun var ágreiningur í okkar röðum þó að lítið yrði við hann vart á yfirborðinu. Sá hópur forystumanna Sósíalistaflokksins sem hugðist fá fram slíka yfirlýsingu frá Alþýðubandalaginu þurfti lengri tíma en einn dag til að tryggja henni sem allra víðtækastan stuðning. Svo fór að Magnús Torfi Ólafsson, sem þá var orðinn viðskila við Sósíal- istaflokkinn, flutti tillögu um þess konar yfirlýsingu á fundi framkvæmda- stjórnar Alþýðubandalagsins 1. septem- ber, tíu dögum eftir innrásina. Þegar tillagan var komin fram urðu menn brátt að gera upp hug sinn. Á fundinum 1. september var afgreiðslu tillögunnar frestað. Fjórum dögum síðar var hald- inn fjölmennur fundur í Alþýðubanda- lagsfélaginu í Reykjavík þar sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.