Lögfræðingur - 01.01.1897, Blaðsíða 140
140
Yfirlit yfir löggjöf í útlöndum.
7) Lög 30. mars 1889 um iðnaðarnám eru lík ísl,
lögunum 16. sept 1893.
8) Lög 12. apr. 1889 ákveða liundaskattinn 2—40 kr.
fyrir hvern hund, þó svo að hundar geti verið skattfrjálsir
í stöku t.ilfellum. |>eir, sem eiga grimma hunda, er bíta
fólk og fje, verða að borga sektir og skaðabætur.
9) Byggingarlög fyrir Kaupmannahöfn 12. apr. 1889
eru nákvæm lög.
10) Lög 11. apr. 1890 stytta ýmsa fresti í dóms-
málum. Meðal annars er þetta ákveðið: Hinn almenni
stefnufrestur skal vera vika eða 14 dagar, eptir því hvort
stefningi á heima i lögsagnarumdæminu eða annarstaðar
í Danmörku, og gildir jietta eigi að eins um lijeraðsrjett,
heldur og yfirrjett og hæstarjett. I ógildingarmálum er
stefnufresturinn 6 mánuðir. Stefnur skal birta á lögheim-
ili, skrifstofu, smíðahúsi, eða starfhúsi stefningja, ogstund-
um má jafnvel stefna honum, þar sem hann hittist. Eigi
þarf að lesa stefnu, nema þess sje krafist, en aptur á
móti á stefningi að fá eptirrit af henni. f>á er ákveðið
í þessum lögum, eins og ísl. lögunum 24. nóv. 1893, að
eigi þurfi í stefnu athugasemd um afnám lögdagsleggingar.
11) Lög 13. mars 1891 ákveða, að engir aðrir, en þeir,
sem hafa sjerstaka heimild, megi gjöra með lifandi heit-
blóða dýr, tilraunir, er sársauki fylgir.
12) Lög 9. apr. 1891 um nauðungar uppboð eru löng
lög og nákvæm í 52. gr.
13) Lög 9. apr. 1891 um fátækramál. í lögum þess-
um eru bálkuð -hin margvíslegu fyrirmæli um fátækramál,
er áður voru á ýmsum stöðum. Meðal annars má nefna,
að eptir lögum þessum má skylda konu, sem eigi er full-
skilin við mann sinn og á sjerstakar eigur eða hefur sjer-