Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 3
^íSsturinn Föstuda9ur hle/gai---- posturinn Blaö um þjóðmál, listir og menn- ingarmál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guöjón Arngrímsson. Blaðamenn: Guðlaugur Bergmundsson, Óm- ar Valdimarsson, Þorgrímur Gestsson Útlit: Kristinn G. Haröarson. Ljósmyndir: Jim Smart. Dálkahöfundar: Hringborð: Auöur Haralds, Birgir Sigurös- son, Heimir Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Sigríö- ur Halldórsdóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, GunnlaugurÁst- geirsson, Jón Viöar Jónsson, Sigurður Svavarsson (bók- menntir & leiklist), Árni Björnsson (tónlist), Sólrún B. Jensdóttir (bókmenntir & sagnfræði), Guö- bergur Bergsson (myndlist), Gunnlaugur Sigfússon (popptón- list), Vernharður Linnet (jazz). Árni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson, Guöjón Arngríms- son, Guðlaugur Bergmundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir). Erlend málefni: Magnús Torfi Ólafsson. Skák: Guðmundur Arnlaugsson. Spil: Friðrik Dungal. Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir. Stuðarinn: Jóhanna Þórhallsdóttir. Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Danmörku, Inga Dóra Björnsdóttir, Banda- ríkjunum, Helgi Skúli Kjartans- son, Bretlandi. Útgefandi: Vitaðsgjafi hf. Framkvæmdastjóri: Bjarni P. Magnússon. Augfýsingar: Inga Birna Gunn- arsdóttir. Innheimta: Guðmundur Jó- hannesson. Dreifing: Sigurður Steinarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavík. Sími: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Hverfisgötu 8-10. Símar 81866, 81741 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. Lausasöluverð kr.15. 26. nóvember 1982 3 Prófkjör fyrir milljón Fátt hefur verið meira áberandi í blöðunum undanfarna daga og vik- ur en auglýsingar frá frambjóðend- um í prófkjörum Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins. Á hverri breiðsíðunni á eftir annarri hafa þeir horft brosandi og/eða mjög ábyrgir framan í lesendur og höfðað til réttlætiskenndar, æsku, dugnaðar eða hver veit hvað, í þeirri von að komast í sæti á fram- boðslista síns flokks, sem líklegt er að tryggi sæti á Alþingi íslendinga. I Helgarpóstinum í dag er fjallað um þessi prófkjör, og þeirri spurn- ingu velt upp hvort þau séu óeðlileg samkeppni samherja þar sem aðeins hinir ríku eiga möguleika - eða hvort þau séu eðlilegasta og lýðræðislegasta leiðin til að velja fulltrúa á þing. Það kemur glögglega í Ijós í viðræðum Helgarpóstsins við þátt- takendur í prófkjörunum, að þau er dýrt sport. Til að komast í þing- sæti verður frambjóðandinn að eiga allverulega peningaupphæð til að greiða fyrir auglýsingar, starfs- mannahald, símakostnað og útgáf- ustarfsemi. Lætur nærri sú upp- hæð sé nálægt fimmtíu þúsund krónum á mann að meðaltali. Hjá sumum meira og hjá sumum minna. Það þýðir í raun að próf- kjörið núna um helgina hefur kost- að þá um tutttugu frambjóðendur prófíijöri Sjálf- - <•<> »Ai;<inbrr nk. SBr55^^:/ * sem hvað harðast hafa barist um eina milljón króna samanlagt. Það er engin smáupphæð þegar að er gáð að aðeins er um tvo stjórnmálaflokka er að ræða, og að hin raunverulega barátta stendur aðeins um örfá þingsæti. Lætur nærri að baráttan í Sjálfstæðis- flokknum standi fyrst og fremst um tvö til fjögur þingsæti, og í síðustu kosningum fékk Alþýðuflokkurinn þrjá menn inn í Reykjavík. Milljón- in fer því í slag um fjögur til átta sæti á framboðslistum, sem líkleg eru til að veita aðgang að dyrum alþingishússins. Dýr aðgangseyrir það. Flestir frambjóðendanna sem Helgarpósturinn hafði tal af voru sammála um að þetta væri að fara út í öfgar. Og allir voru sammála að sérstaklega bæri að forðast fyrir- komulag, eins og tíðkast í Banda- ríkjunum, þar sem gríðarlegir fjár- munir liggja í kosningabaráttu, og þar sem framboð eru forréttindi hinna auðugu. En sömu fram- bjóðendur tóku hinsvegar fram að úr því sem komið væri þýddi ekki annað en að vera með. Það er spurningin um að duga eða drep- ast. Og að ef velja ætti milli gamla kerfisins, þegar flokkseigendafé- lögin völdu menn á lista, og próf- kjöranna að þá hefðu prófkjörin vinninginn. Blórabögglar prentvillu- púkans Forsenda þessa Hring- borðs og mín persónulega skoðun er sú, að prófarkal- estur sé mannskemmandi. Frá því hnika ég ekki. Þessi yfirlýsing kemur e.f- laust ýmsum á óvart, sem aldrei haf komið nálægt því vanþakkláta starfi að lesa próförk eða þá í hæsta lagi einu sinni á ævinni, þá af áhugaverðu efni sem úrvals- setjari hefur sett. Hinir, sem hafa einsog ég haft prófark- alestur að aðlstarfi (og jafn- vel aukavinnu) um árabil munu kinka kolli samsinn- andi, humma kannski svo- lítið og fletta framhjá, því þeir þykjast ekki þurfa að lesa lengra. Sem er alveg rétt. Og hinum hugrökku lesurum Helgarpóstsins, sem eru tilneyddir að lesa þetta starfs síns vegna vil ég segja þetta: Ekki að lesa lengra! Ekki með nokkru móti! Kveikið ykkur frekar í sígarettu, hallið ykkur aftur í stólnum (ef þeir þola það, garmarn- ir), setjið fæturna upp á þetta hræðilega skrifborð sem þið hafið til umráða og um að það gefist tími til slíks. Huggaðu þig bara við að ef þetta er ekki lesið, þarftu ekki að leiðrétta það.) Og nú spyrja eflaust óinn- vígðir: Hvað er þá prófark- alestur? í hverju er þetta hræðilega starf fólgið að það kalli fram slík viðbrögð? Já, það er von að þið spyrjið. Prófarkalestur (á • dag- blaði, því hann þekki ég best þó ég hafi komið nálægt nokkrum bókum líka) felst aðallega í því að lesa illa skrifaðan texta á alltof löngum vöktum, leiðrétta villur blaðamanns/ greinar- höfundar án þess þó að ums- krifa fréttina/ greinina alv- egf, finna og leiðrétta (eða merkja við, ef einhver annar vesalingur leiðréttir) setn- ingarvillur og almennt redda því sem reddað verður. Prófarkalesarinn er sá/ sú sem fær aldrei þakkirnar fyrir villulaust blað, en alltaf skammirnar (líkast til lögmál þarna), þó að hann/ hún hafi ekki brotið stærra af sér en svo að fylgja hand- riti (td. blaðamannsins). hrinoboröiö í dag skrifar Magnea J. Matthíasdóttir lítið í eitthvert annað blað, sem þið hafið ekki sjálf þurft að prófarkalesa. Þið eigið það skilið og meira en skilið - þið þarfnist þess. Leyfið vitleysunum svona einu sinni að vera á sínum stað. Fáið ykkur pásu. (Þetta á auðvitað líka við um setja- rann sem þarf að setja þessa þvælu (ég bið að heilsa hin- um stelpunum), en það er alltaf svo mikið að gera hjá þessum elskum að ég efast Prófarkalesari þarf að vera alvitur (eða allt að því), geta dæmt um það á svipstundu hvort mannsnafnið Jnns eigi í rauninni að vera ritað Jón, Jóhann, Jóhannes, Jónas, Jens, Janus eða eitthvað enn annað, vita að Framsóknarf- lokkurinn var ekki stofn- aður árið 1818, hafa staðgóða þekkingu á enskri, þýskri, danskri, sænskri, spænskri og jafnvel suður- króatískri stafsetningu, vera sérfræðingur í orðaskipting- um á öllum þessum málum, auk Kínversku, Rússnesku og auðvitað íslensku, fylgj- ast grannt með í stjórnmál- um, basði innlendum og er- lendum, vita allt um popp, og vera að auki ýmsum kost- um prýddur sem að gagni mega koma, svosem einsog færni í meðhöndlun síma (ef t.d. eitt fermingarbarnið í Útskálakirkju skyldi ein- herra hluta vegna heita ann- arlegu nafni). Prófarkales- ari verður að hafa stált- augar, enn betra minni og glöggt auga. (Styrk hönd sakar ekki heldur.) Prófark- alesari má aldrei láta bugast. (Og nú verð ég eiginlega að hafa greinaskil, því setjur- unum þykir það þægilegra. Nóg um það. Nú skyldi maður ætla að ritstjórar, prentsmiðj ust j órar, blaðamenn, höfundar og fleiri þeir sem málið sýnist skylt standi í löngum bunum við dyr prófarkalesara til að votta þeim virðingu sína og þakklæti. Öðru nær. Þeir nefna það glettnislega í framhjáhlaupi að þetta sé eiginlega úrelt starf sem löngu hafi verið lagt niður hjá menningarþjóðum og láta slíkt ekki nægja, heldur keppast við að búa prent- smiðjurnar nýjum og spenn- andi tölvum sem eiga í orði kveðnu að létta störf. Það er eins með þessa gripi og aðra vinnuhagræðingu: vinnan verður 30-falt flóknari og erfiðari. Auk stafsetningar- og málvilla bætast nú skipt- ingarvillur á vesalings lesa- rann, sem hefur fyrir alltof mikið á sinni könnu. Nýju fínu tölvurnar sækja óeðli- lega stíft í að skipta orðum á dularfullan hátt: td. Ha- llgrímsson, or-ðlaus og Al- þýðuflokkur (og gefur auga leið hverju er kennt um, ef slíkt kemst á prent). Svo er klappað á kollinn á örvænt- ingarfullum og grátklökkum prófarkalesaranum, brosað útí annað og talað um full- komin skiptingakerfi sem færir kerfisfræðingar og ís- lenskumenn dunda sér við að setja saman. Hver veit, kannski verða þeir búnir um aldamótin. Mig langar í lokin (núna er ég umþaðbil búin að fylla línukvótann minn) að biðja lesendur um að grípa í spaðann á næsta prófarkal- esara og þakka honum vel unnin afreksverk í þágu ís- lenskrar tungu. Og svona allra síðast: Hvernig væri að taka upp árlega „Ver- ið-góð-við-prófarkales- ara“-viku? Það þyrfti ekki að koma fram í neinu stór- vægilegra en þokkalegum handritum. M. PS: Sem á auðvitað ekki síð- ur við ef einhver vill vera notalegur við setjara...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.