Helgarpósturinn - 23.06.1983, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 23.06.1983, Blaðsíða 9
9 Elly Ameling Glenda Maurice Gérard Souzay Söngveisla í Reykjavík Söngvarar og unnendur söngs eiga von á góðu nú eftir helgina. Á sunnudagskvöldið hefst í Reykjavík mikil sönghátíð, með tónleikum og námskeiðahaldi: Sönghátíð ’83. Gestir á hátíðinni eru Elly Ameling, Glenda Maurice, Gérard Souzay og Dalton Baldwin, sem flest eru landsmönnum vel kunn. Gestirnir munu bæði halda tón- leika á hátíðinni og miðla ungu tón- listarfólki af þekkingu sinni og reynslu með námskeiðahaldi. Tónleikar verða haldnir í Austur- bæjarbíói mánudags, þriðjudags og fimmtudagskvöld. Námskeiðið verður daglega frá mánudegi til föstudags. Kennsla fer fram í Haga- skóia í Reykjavík að viðstöddum takmörkuðum fjölda áheyrenda. Fyrirhugaðir eru tvennir þátttak- endatónleikar í vikunni. Allir sam- „Hér situr matrónan í hásæti sínu, tekur á móti, þiggur, og heimtar meira“. Sjálfsmynd frá í fyrra. Helmlldir: Des Moines Sunday Register, March 8, 1981, sérprentun. sýningarskrá, Soho 20, 469 Broome Street, New York, May 14th 1983. Nánarl upplýsingar gefur: Don Lambert, Arts Council of Topeka City Hall, Room 254, Topeka, Kansas 66603. Lauslega þýtt og endursagt. Ragna Hermannsdóttir söngstímarnir eru nú þegar full- bókaðir, en enn er hægt að komast að sem áheyrandi og það er öllum opið sem áhuga hafa. Gérard Souzay er vafalaust þekktastur gestanna á sönghátíð- inni, enda einn fremsti söngvari í heimi. Hann er fyrst og fremst Stúdentaleikhúsið frumsýnir á laugardag fjögur stutt leikrit eftir - SAMUEL BECKETT, allt verk sem ekki hafa verið sýnd hér á landi áð- ur. Dagskráin hefur hlotið samheit- ið „ÓSTÖÐVANDI FLAUMUR" - og verkin sem leikin verða eru - KOMIÐ OG FARIÐ (Come and Go) EKKI ÉG (Not I), SVEFN- ÞULA (Rockaby) og ÓHIO IM- PROMPTU Tvö síðasttöldu verkin eru nýjustu leikrit Becketts og merkileg fyrir það, en gefa jafn- framt góða mynd af þeirri þróun sem átt hefur sér stað frá því hann sendi frá sér leikritið Beðið eftir Godot. Auk þess er það óvenjulegt við þessi verk að þeim lýkur (ef menn vilja líta svo á), en flest sið- ustu leikrit Becketts hafa ekki haft neinn endi annan en þann að ljósin hafa verið slökkt til þess að þagga niður í símalandi persónunum á sviðinu. Af þessum fjórum leikrit- um er Ekki ég frægast, tímamóta- verk hjá höfundi (samið 1972) og af mörgum talið eitt af hans bestu leikverkum. þekktur sem ljóðasöngvari, og hef- ur sungið inná ótal hljómplötur. Dalton Baldwin er löngu þekktur og viðurkenndur sem einn af fær- ustu undirleikurum heims, en hann hefur auk þess sérstakt orð á sér fyrir að leiðbeina ungum söngvur- um og píanóleikurum. Glenda Maurice er upprennandi stjarna, sem aðeins tveimur árum eftir fyrstu einsöngstónleika sína, í febr- úar ’81, er orðin eitt af stóru nöfn- unumí söng. Hollenska söngkonan Elly Ameling hefur haldið tónleika um víða veröld, og syngur einkum ljóð, frönsk og þýsk. (Sjá nánar í Leiðarvísi). Arni Ibsen hefur þýtt þessi leikrit og er jafnframt leikstjóri sýningar- innar, en hann hefur einnig þýtt nokkur ljóða Becketts sem flutt verða í hléum milli leikritanna. Árni hefur áður fengist við verk eft- ir Samuel Beckett er hann þýddi og leikstýrði hinu kunna útvarpsleik- riti Allir þeir sem við falli er búið (All that Fall) fyrir Ríkisútvarpið 1978. Leikendur í sýningunni eru fimm talsins, þau Hulda ' Gestsdóttir, Rósa Marta Guðnadóttir, Soffía Karlsdóttir, Hans Gústafsson og Viðar Eggertsson. Fyrirhugaðar eru fjórar sýningar á Óstöðvandi flaumi: Fyrsta sýn- ingin verður sem fyrr segir á laugar- dag 25. júní, önnur sýning verður sunnudaginn 26. júní, þriðja sýning sunnudaginn 26. júní og fjórða sýn- ingin mánudaginn 27. júní. Allar sýningarnar hefjast kl. 20.30 í Fé - lagsstofnun stúdenta og er boðið upp á veitingar eins og á fyrri sýn- ingum leikhússins. Óstöövandi flaumur af Beckett Viðar Eggertsson og Hans Gústafsson í hlutverkum sínum x Ohio Impromptu í uppfærslu Stúdentaleikhússins. 23.00 Náttfarl 01.10 Á næturvaktlnnl. Alltaf þettasama. Laugardagur 25. júní 8.20 Morguntónlelkar. Tónlist eftir Ravel og Milhaud. 9.45 Úr forystugrelnum dagblaöanna. Þaö er nú það. 11.20 Sumarsnældan. Venni Linn (Ekki Vera Linn) heldur áfram aö lauma djassinum aö. Margir ungir geggj- arar á leiöinni. Og upprennandi. 16.20 Lúterska heimssambandlð. Séra Auöur Eir Vilhjálmsdóttir flytur synóduserindi. 16.55 Þorpskvæöl úr fyrstu bókum Jóns úr Vör. Höfundur les. 17.15 Slödeglstónleikar eftir Beethoven og Dvorák. 19.50 Tónlelkar 20.00 Harmonikkuþáttur. Eitthvert- fjör. Meira fjör. Þetta er nú eitthvað al- mennilegt. 20.30 Jónsmessuvaka bænda. Ja, hvernig skyldu þeir hafa það? 00.50 Fréttlr. Hvert ætti maður að fara i kvöld? Kannski bara að sofa? Tja. Sunnudagur 26. júní 11.00 Messan er I Dómkirkjunni og þarna koma Vestur-lslendingar mjög við sögu. 13.30 Sporbrautin. Örn Ingi og Olafur H. Torfason halda áfram á sinni lóttu braut. Ha, ha 15.15 Söngvaseiður þremenninganna er enn. 16.25 Séra Guðmundur Óli Ólason flytur erindi. 500 ár frá fæðingu Lúters. 18.00 Það var og. Þráinn vinur minn lum- ar á ýmsu. 19.35 Samtalá sunnudegi. Áslaugspjall- ar við fólk. 19.50 Vor I Garöi. Ljóö eftir Jakobinu. María Sigurðardóttir les. Hún er ein af þessum ungu og efnilegu leik- konum. Altsaa só þetta sú 20.00 Útvarp unga fólksins kemur frá Akureyri. 21.00 Eitt og annaö um vináttuna. Já vináttan er margslungin, þaö er eitt sem vlst er. 21.40 Anton Webern. 13. og siðasti þáttur Atla Heimis um hann. Halló? Eruði þarna ennþá? 23.00 Djass: Blús -1. þáttur. Jón Múli á slnum stað. Ilíóill ★ ★ ★ ★ framúrskarandl ★ ★ ★ ág»t ★ ★ góð ★ þolanleg Q léleg Háskóiabíó: Óþokkinn (Harry Tracy) Bandarísk. Leikstjóri: Willlam A. Graham. Aðal- hlutverk: Bruce Dern, Helen Shav- er, Michael D. Gwynne, Gordon Llghtfoot. Harry Tracy er einn af þessum frægu stigamönnum villta vestursins sem svifast einskis. Laugarásbíó: Besta litla „Gleðlhúsið" í Texas. (The Best Little Whorehouse in Texas) Aðalhlutverk: Burt Reynolds Dolly Parton, Charles Durring, Dom Deluise og Jim Nabors. Þetta er skemmtimynd, með hinum þokkafyllstu stór leikurum. Bíóhöllin: Merry Christmas Mr. Lawrence. — Sjá Listapóst, Óttinn (Phobia) Bandarísk. Leik- stjóri: John Huston. Aðalhlutverk: Paul Michael Glaser, Susan Hogan, John Colicos og David Bolt. Þetta er þriller um fimm dæmda moröingja og ótta þeirra við umheim- inn. Já, ekki ótta umheimsins viö þá. Áhættan mikla (High Risk) Banda- rísk. Leikstjóri: Stewart Raffill. Aðalhlutverk: James Brolin, Anthony Quinn, James Coburn, Bruce Davison, Lindsay Wagner. Grinspennumynd um fyrrverandi grænhúfu og menn hans. Munu þeir vera hinir mestu innbrotsþjófar. Svartskeggur (Blackbeard's Ghost) Bandarfsk. Aðalhlutverk: Peter Ustinov, Dean Jones, Suzanne Pleshette, Elsa Lanchester. Grinmynd um sjóræningjann Svart- skegg, sem skýtur upp kollinum eftir 200 ára dvala. Ungu læknanemarnlr (Young Doctors in Love). Bandarfsk kvik- mynd, árgerð 1982. Leikendur: Michael McKean, Sean Young, Hector Llzondo. Lelkstjórl: Gary Marshall. Þessi mynd er hættuleg heilsunni: áhorfendur fá óstöövandi hláturskast. Læknanemar bralla margt á Borgó. Atlantic City. Bandarlsk kvikmynd, árgerð 1981. Lelkendur: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leik- stjóri: Louis Malle. *** Austurbæjarbíó: Klss. Tónlistarmynd. Með 20 vinsælustu lögunum segir f kynningu a.m.k. Bæjarbíó: ** Kattarfólkiö (Cat People). Banda- rfsk, árgerð 1982. Lelkendur: Nast- assia Klnskl, Maicolm McDowell, John Heard. Leikstjóri: Paul Schra- der. Systkini: sambland af mannfólki og svörtum hlébörðum. Ef þau elska mannfólkið, breytast þau i hlébarða við samfarir og drepa rekkjunautinn. Þokkaleg afþreying og aðdáendur Nastössiu Kinski eiga tvímælalaust erindi. Regnboginn: Sigur að lokum. Bandarfsk. Aðal- hlutverk: Rlchard Harrls, Michael Beck, Ana De Sade. Þetta er framhald myndarinnar A Man called Horse og fjallar um enska aðalsmanninn, John Morgan sem gerist indiánahöfðingi. Kjarnorkubflllnn. Bandarfsk. Aðal- hlutverk: Joseph Bologna, Stock- ard Channlng, Sally Kellerman, Lynn Redgrave, Richard Mullgan og Larry Hagman. Já, hér fáum við tækifæri til að sjá J.R. í bló og núna í gamanmynd. f grelpum dauðans (Flrst Blood). Bandarfsk, árgerð 1982. Handrit: Stallone, o.fl. Lelkendur: Sylvester Stallone, Brlan Dennehy, Rlchard Crenna, Jack Starrett. Leikstjórl: Ted Kotcheff. Stjörnubíó: Tootsie. Bandarisk kvikmynd, ár- gerð 1983. Leikendur: Dustin Hoff- man, Jessica Lange, Terry Garr, Charles Durnlng. Leikstjóri: Sldney Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum i aðalhlutverkinu og sýnir afburða- takta sem gamanleikari. Tootsie er ó- svikin skemmtimynd. Maður hlær oft og hefur litið gleöitár I auga þegar upp er staöið. * * * — LÝÓ Stripes endursýnd. Nýja bíó: I ought to be in Plctures. Aöalhlut- verk: Walter Mathew, Ann Margaret. Leikstjóri: Niel Simond. Þetta er gamanmynd um stelpu sem heimsækir pabba sem hún hefur ekki séð í 16 ár. Hann býr i Hollywood. Tónabíó: Rocky III. Bandarisk, árgerð 1982. Lelkstjóri: Sylvester Stallone. Aðal- hlutverk: Sylvester Stallone, Talla Shire, Burt Young, Mr. T. Þetta er þriðja myndin um hnefaleika- kappann og hafur hún átt gerpilegum vinsældum aö fagna I Bandarikjun- um. tonlist Sönghátíð 83: Sönghátiöin hefst með samkomu kl. 20 sunnudaginn 26. júnl. Mánudagur: kl. 10—13Master Class; Dalton Baldwln. Kl. 14—17: Master Class; Glenda Maurice. Kl. 21; Tónleikar, Gérard Souzey og Dalton Baldwin. Þriðjudagur: Kl. 14—17; Master Class, Gérard Souzey. Kl. 21; Tónleikar, Glenda Maurice og Dalton Baldwln. Miðvikudagur: Kl. 10—13; Master Class, Dalton Baldwln. Kl. 14—17; Master Class, Gérard Souzey. Fimmtudagur: Kl. 10—13; Master Class, Glenda Maurice. Kl. 14; Þátttakendatónleikar. Kl. 21; Tónlelkar, Elly Ameling og Dalton Baldwin. Föstudagur: Kl. 13—17; Master Class, Elly Amellng Kl. 21; Þátttakendatónlelkar. Norræna húsið: Á laugardaginn kl. 17 veröur Ijóöa- og söngdagskrá. Flytjendur Folnir Ke- bæk, Sigrún Björnsdóttir og Jónas Ingimundarson. viillinréii* Laugardalshöli: Bandalag íslenskra listamanna og Lif og land standa fyrir feikna Jóns- messufagnaði í Laugardalshöllinni á föstudagskvöld. Edda og Helga skemmta en auk þess: Diddi fiöla, Atli Heimir sem leikur ragtime lög og þá verður hægt aö fá sér rauðvín og dansa viö dixílandmúsik o.fl. o.fl. kl. 21—03. Norræna húsið: Jónsmessuvaka veröur i kvöld, fimmtudagskvöld, úti á túni og inni. Malstöng verður reist að sænskum siö og kveikturverður Jonsmessueldur. Hornaflokkur Kópavogs leikur. Stúlknakór frá Trömso og norskir vísnasöngvarar syngja. Færeyskur dans stiginn og Harmonikkan I háveg- um höfð. Það eru norrænu vinafélög- in sem standa fyrir skemmtan þess- ari.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.