Helgarpósturinn - 29.08.1985, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 29.08.1985, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Ingólfur Margeirsson og Halldór Halldórsson Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson Útlit: Elfn Edda Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Magnea Matthfasdóttir Útgefandi: Goðgá h/f Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingar: Jakob Þór Haraldsson Innheimta: Garðar Jensson Afgreiðsla: Guðrún HSsiler Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sfmi 8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúlá 36. Sfmi 8-15-11 Setning og umbrot: Leturval s/f Prentun: Blaðaprent h/f Fordómar eða samhjólp? Það þarf stundum ekki mikið til að sátt og samlyndi meðal íbúa þjóðarinnar snúist upp í andhverfu — harkalegar deilur og stóryrði. Þessa dagana er harðlega deilt um það hvort fangahjálpinni Vernd sé stætt á því að setja á stofn heimili fyrir fyrrverandi fanga í gömlu og grónu íbúðarhverfi í borginni — Laugarneshverfinu. Ibúarnir hafa nú flestir að því er virðist snúist alfarið gegn þessum áformum og bent á að ekki fari vel á því að setja á stofn heimili af þessu tagi, af þessari stærð (20—25 menn) inni í miðju íbúðarhverfi. Aðrir hafa á hinn bóginn sagt þessar áhyggjur íbúa í Laugar- neshverfinu algjörlega ástæðu- lausar. Staðreyndin sé sú, að Vernd og aðrar sambærilegar stofnanir, hafi rekið samsvar- andi heimili út um alla borg, án þess að til vandamála hafi kom- ið. Þess vegna sé ótti íbúa í Laugarneshverfinu byggður á vanþekkingu og misskilningi. Þessir hinir sömu rifja enn- fremur upp, að fyrir nokkrum árum reis upp mikil alda óánægju og andmæla í Laugar- áshverfinu, þegar Kleppsspítali keypti þar húseign til nota fyrir sína skjólstæðinga. Þá voru þung orð látin falla á báða bóga. Flestir hljóta hins vegar að vera um það sammála, að reynslan frá Laugarásvegi hefur verið allt annað en slæm, því þar hefur allt gengið eins og best verður á kosið. Helgarpósturinn lítur á þessi mál í dag í ítarlegri yfirlitsgrein, þar sem meðal annars er rætt við þá sem í aðalhlutverkum eru — nefnilega þá sem dvelja á heimilum Verndar og munu að óbreyttu flytjast í Laugar- neshverfið. I samtölum við þessa menn kemur fram mikill áhugi hjá þeim að sanna fyrir íbúum Laugarneshverfis og öðrum landsmönnum, að þeir séu engir friðarspillar, heldur venjulegt fólk sem hafi hrasað fyrr á lífsleiðinni en leggi nú allt kapp á að ná fótfestu í lífinu. Þarna er um að ræða fyrrum fanga og einnig menn sem urðu áfenginu að bráð. Á heim- ilum Verndar gilda strang'ar reglur, sem þessir menn verða að fara eftir og í viðtölum við Helgarpóstinn leggja þeir ein- mitt áherslu á, að það séu að- eins menn inni á þessum heim- ilum sem vilji raunverulega fá fast land undir báða fætur; vilji breyta lífsstfl sínum til hins betra. Þeir segjast því vilja fá tækifæri til að sanna sig — sanna fyrir sínum væntanlegu nágrönnum að þeir verði ekki til vandræða í Laugarneshverfinu. Við hin sem betur hefur vegnað í lífinu, eigum ekki að ráðast á þennan góða vilja með stóryrðum og fordómum, held- ur koma til móts við þessa meðbræður okkar með opnu og jákvæðu hugarfari. A ^^^•rtöl hafa löngum vafist fyrir þeim sem vilja heita sögufróðir og þannig er til dæmis með það hvenær Alþingi lagðist af á Þingvöll- um. Var það 1799, 1800, 1801 eða hvað? Auðvitað kemur svona fram í ferðahandbókum, bæklingum og á póstkortum. Á fallegu korti í þjón- ustumiðstöð þjóðgarðsins á Þing- völlum var úr þessu skorið. Á fjórum tungumálum var það tilgreint með feitu letri ofan í myndinni að Þing- vellir hafi verið aðsetur Alþingis 930—1879. Ágætis tala og nauðalík þeirri sem almennt er viðurkennd í sögubókum, eða ártalinu 1798. í ljósi þess hafa forsvarsmenn Litbrár hf. sem gefur þetta kort út ákveðið að draga aðeins í land og breyttu 1879 í 1878 í stuttum texta á ensku á bakhlið kortsins. Bakhlið kortsins vekur ekki síður athygli en hin. Þar eru upplýsingar á þremur tungu- málum. Enskan segir þetta með ár- tölin og að Hengillinn með sínum jarðhita sé í baksýn á myndinni. Þá kemur danskur texti þar sem segir að Thingvellir séu 50 kílómetra austur frá Reykjavík og vatnið stærsta stöðuvatn landsins, 82,6 km2. Hengillinn er svo sagður í bak- sýn og nú tekið fram að staðurinn sé sögustaður og að til hægri á mynd- inni sé hraungjáin Almannagjá. Það er sitthvað sem þjóðirnar fýsir að vita. . . HP eftir að greinar blaðsins um inn- heimtuaðferðir lögfræðinga birtust. Ein af mörgum Ijótum sögum sem blaðamenn hafa hlýtt á gerðist fyrir um áratug. Kunningi heimildar- manns okkar stóð í húsbyggingu og þurfti á lokastigi byggingarfram- kvæmda á stóru láni að halda. Út- búinn var víxill og maðurinn fékk vin sinn sem átti góða fasteign til þess að ábyrgjast greiðslur. Síðan hófst píslarganga milli banka sem allir neituðu að kaupa bréfið, enda vinur okkar bara skrifstofumaður með lít- il viðskipti við banka. Að lokum var húsbyggjandanum bent á lögfræð- ing sem myndi kaupa víxilinn með 30% afföllum. Þau kaup gengu eftir BÍLALEIGA REYKJAVIK: AKUREYRl: BORGARNES: VÍDIGERÐI V-HÚN.. BI.ÖNDUÓS: SAUÐARKRÓKUR: SIGLUFJÖRDUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPNAFJÓRDUR: SEYDISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRDUR: HÖFN HORNAI IRDI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent BÖRN 1 BÍLUM ÞURFA VÖRN þó okkar manni hafi að vonum þótt hart að borga síðan full nafnverð víxilsins þremur mánuðum seinna að viðbættum vöxtum. En þegar maðurinn borgaði víxil- inn í einum af þeim bönkum sem áð- ur höfðu neitað að kaupa sama víx- il, sagði honum kunningi sem vann í sama banka að bankinn hefði keypt víxilinn af lögfræðingi á nafn- verði daginn eftir að sama stofnun neitaði að kaupa víxilinn af sam- þykkjanda. Ástæðan; jú lögfræðing- urinn hafði ákveðinn víxlakvóta sem hann mátti fylla upp í með víxl- um sem hann sjálfur keypti á afslátt- arverði. Það er ekki sama Jón og séra Jón... ^^^^enningarlífið er allt að fara í gang eftir sumarmánuðina. Þjóðleikhúsið hefur starfið á mánu- dag eftir helgi en enn er ekki búið að ganga endanlega frá leikritavali vetrarins. Æfingar byrja þó þegar á tveimur verkum, nýfundnu verki eftir rússneska skáldjöfurinn Tsjekóv, Villihunangi og Grímudans- leiknum eftir Verdi. Sveinn Einars- son fyrrverandi þjóðleikhússtjóri setur upp Grímudansleikinn og þar syngja hvorki meira né minna en tvær stórstjörnur íslenskar, Kristj- án Jóhannsson tenór og Kristinn Sigmundsson barítón. Hins vegar verður takmarkaður sýningafjöldi á óperunni þar sem Kristján Jóhanns- son getur aðeins sungið á fjölum Þjóðleikhússins 15 sýningar eða svo. Við spáum mikilli biðröð. . . ^^^>kur eru nú að hefjast á leikriti Nínu Bjarkar Árnadóttur, Líf til einhvers, sem leikstýrt er af Krist- ínu Jóhannesdóttur, eins og HP hefur áður sagt frá. Nú er ljóst hverj- ir fara með aðalhlutverk í leikritinu, og upplýsum við það hér með: Hanna María Karlsdóttir, Arnór Benónýsson, Kolbrún Péturs- dóttir, Bríet Héðinsdóttir og Guðlaug María Bjarnadóttir. .. LEIÐRETTING 1934 en ekki1930 í 31. tbl. HP þ. 1. ágúst er sagt að Lárus H. Bjarnason fyrrv. sýslumað- ur á Isafirði og í Snæfells- og Hnappadalssýslu og síðar rektor Háskóla íslands hafi látist 1930. Hið rétta er að Lárus lést þ. 30. des. 1934. LAUSN Á SKÁKÞRAUT 1. 1. Da4 Kd3 2. Hf3 mát. Drottn- ingin valdar fjórðu röðina og c2. Hér er unnið á einfaldan hátt úr hugmynd, sem er kunn úr öðrum skákdæmum. 2. 1. Re2 Ke5 2. Hb5 mát 1. — Kc4 2. Be6 mát 1. — Kc6 2. Be4 mát Lykilleikurinn þrengir aðeins að svarta kónginum, en mátin eru hreinleg og falleg. GRAIMPAGARÐI3 - SÍIVI: 29190 HAUSTVÖRUR Á ÓVENJULÁGU VERÐI FALCON CREST Frábærir framhaldsmyndaþættir 2 nýir þættir koma á hverjum fimmtudegi Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins Dreifing: MYNDBÖND HF. Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310. 1935 1985 Blómaskálinn er fluttur að Nýbýlavegi 14 í ný og glœsileg húsakynni. Höfum allt til blómaræktunar, pottablóm, afskorin blóm, skreytingar, krossa og krarisa. Lítid inn um helgina og alla hina dagana til ad smakka á berjum og fá kaffisopa og eitthvad gott. Krakkar fá blödrur og ? Sértilboð NÝTÍND KRÆKIBER Mjög hagstætt verð vrSA Opið alla daga kl. 10—22 ^jA^lómasliáUnn Nýbýlavegi 14, á horni Nýbýlavegar og Auðbrekku. Sími 40980. 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.