Helgarpósturinn - 11.12.1986, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
*
A undan stormi
logn
Spámaöur HP lofaði því síðast að
standa sig spámanna best um helg-
ina sem framundan var og stóð við
það. Glæsilegir 9 réttir náðust (eins
og hjá Degi reyndar) á meðan topp-
miðillinn Bylgjan náði aðeins 7. Ur-
slitum réði hárnákvæm spá um út-
komu leiks Manc. Utd. og Totten-
hams á sunnudag.
Bylgjan heldur enn forystu eftir 11
umferðir með 70 rétta, en fast á
hæla þarlendra kemur spámaður HP
með fíSrétta. Þá koma Morgunblað-
ið og Dagur með 67 og DV og RÚV
með 66 en loks Þjóðviljinn með 65
og Tíminn með 64. Meðaltal efsta
spámanns er því 6.36 réttir, en þess
neðsta 5.82 og hefur heldur dregið
saman með spámönnum síðustu
vikurnar. Fyrir síðustu leikhelgi var
Alþýðublaðið komið með nokkra
forystu í mini-keppninni við HP eða
56:53. Nú sigraði HP hins vegar 9:6
og staðan því orðin jöfn og spenn-
andi 62:62 eftir 10 umferðir.
Næsta umferð er í erfiðari kantin-
um. Enginn leikur getur talist afger-
andi öruggur. Meðfylgjandi niður-
staða fékkst þó eftir ærið erfiði og
hefðu aukamerkin mátt vera 12 en
ekki 6! -FÞG
Leikir 13. desember 1986 1 X 2
1 Aston Villa - Man. Unlted 2 Luton - Everton 3 Man. City • Wost Ham I •
! •
4 Nowcastle - Nott’m Forest 5 Norwich - Arsenal 6 O.P.R. - Charlton X •
•
L
7 Southampton - Covontry 8 Tottenham - Watlord 9 Wiinbledon - Sheffield Wed. 1
l
Xj •
10 Blackbum - Oldham 11 Plymouth - Derby 12 Sheffield Utd. - Portsmouth 2.
r
X
FRÉTTAPÓSTUR
Eldur í Hofsjökli
Eldur kom upp í flutningaskipinu Hofsjökli þegar það var
statt skammt undan Grænlandi um sl. mánaðamót. Skip-
verjar óttuðust að um skemmdarverk gæti verið að ræða, en
rannsókn leiddi síðan í ljós að skammhlaup hafði orðið i raf-
geymi bifreiðar um borð og olli það eldinum.
Áfengi í lausavikt
Við tollskoðun um borð i Skeiðsfossi fundu tollverðir um
130 litra af vodka, sem dælt hafði verið í hola burðarsúlu við
miðmastur skipsins. Ekki er vitaö til að áfengi hafi áður ver-
ið smyglað til landsins i lausavikt.
Kjarasamningar undirritaðir: átak í þágu þeirra lægst
launuðu
Á laugardag var undirritaður kjarasamningur ASÍ, VSÍ og
Vinnumálasambandsins og gildir hann til ársloka 1987. Var
með honum gert átak í þágu þeirra lægst launuðu, en al-
menn lágmarkslaun hækka úr rúmlega 19 þúsund krónum
í 26.500 frá 1. desember að telja. í lok samningstimabilsins
verða lágmarkslaun orðin 28 þúsund, en 36.800 hjá iðnað-
armönnum. Samningsaðilar telja að kaupmáttur verði með
þessu meiri en verið hefur um langt árabil og að lægst laun-
aða fólkinu sé nú bætt það sem hinir hærra launuðu hafa
fengið með sérhækkunum og yfirborgunum á undanförn-
um árum.
Hluti fastra launa fiskvinnslufólks er aukinn á kostnað
bónusgreiðslna og til stendur að umbylta þvi taxtakerfi,
sem á undanförnum árum hefur verið farið eftir. Einnig er
gert ráð fyrir því í kjarasamningnum, að staðgreiðslukerfi
skatta verði tekið upp á íslandi árið 1988, þannig að næsta
ár ætti að geta orðið ,,skattlaust“. Ljóst er því að ríkisvaldið
er lykilaðili í þessum samningum, eins og febrúarsamning-
unum fyrr á árinu. Einnig er það grundvallaratriði til þess
að kjarasamningurinn nýtist fólki i lægstu launaflokkun-
um, að ekki komi til launaskrið í kjölfar hans.
Fylgi krata stöðugt
DV birti á þriðjudag niðurstöður skoðanakönnunar blaðs-
ins. Voru þær mjög á sömu lund og niðurstöður könnunar
HP i síðustu viku. Alþýðuflokkurinn er enn í stöðugri sókn
og nálgast óðfluga fylgi Sjálfstæðisflokksins. Er krötum
spáð 17 þingmönnum i skoðanakönnun DV, sjálfstæðis-
mönnum 23, Framsóknarflokki H, Alþýðubandalagi 8 og
Samtökum um kvennalista 4. Samkvæmt niðurstöðum-
þessarar könnunar, tekst framsóknarmönnum með naum-
indum að koma þingmanni inn í höfuðborginni.
Breytingar á bankakerfinu
Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, varpaði fram nýrri
hugmynd í sambandi við framtíð Útvegsbankans í viðtali við
Morgunblaðið. Þar telur Seðlabankastjóri það koma til
greina, að sameina Samvinnubanka, Alþýðubanka, innláns-
deildir kaupfélaganna, Útvegsbanka Islands og Búnaðar-
banka íslands og gera úr þessum stofnunum hlutafélags-
banka. í ljósi fyrri tillagna Seðlabanka íslands um samein-
ingu Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Útvegsbanka er hér
um mikla viðhorfsbreytingu að ræða.
Fréttapunktar
• Bekstur Arnarflugs er mjög þungur og erfiður um þessar
mundir, að sögn Harðar Einarssonar, stjórnarformanns, en
nýverið sótti félagið um leyfi til að stofna sérstakt dótturfyr-
irtæki til rekstrar innanlandsflugsins.
• Breska söngkonan Bonnie Tyler hélt tónleika í Reykjavík
um síðustu helgi og var vel fagnað af á fjórða þúsund áhorf-
endum.
• Opnað hefur verið myntsafn á vegum Þjóðminjasafnsins
og Seðlabankans í minningu dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrver-
andi forseta íslands.
• Þórður Friðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar,
hefur verið settur forstjóri Þjóðhagsstofnunar frá 1. janúar.
• Ólöf Ananíasdóttir, 29 ára ekkja og þriggja barna móðir á
Akureyri, hlaut fyrsta lottóvinninginn á íslandi, 3,2 millj-
ónir króna.
• Bæði Árni Gunnarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, og Kol-
brún Jónsdóttir, þingmaður, gefa kost á sór í 1. sæti fram-
boðslista Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra,
en prófkjör mun fara fram í janúar.
• Margrét Frimannsdóttir, oddviti á Stokkseyri, skipar
efsta sæti framboðslista Alþýðubandalagsins á Suðurlandi
samkvæmt ákvörðun kjördæmisþings í framhaldi af forvali
flokksins.
• Pieassostyttan, sem ekkja listamannsins gaf forseta ís-
lands fyrir nokkrum mánuðum, er komin til landsins og
verður geymd í f járhirslum Seðlabankans þar til henni hef-
ur verið fundinn tryggur samastaður.
• Ólafur Laufdal hefur tekið Hótel Akureyri á leigu, en
hann keypti Sjallann á Akureyri fyrir skemmstu.
• Deilan um Borgarspítalann stendur enn og hefur málið
m.a. valdið erjum innan raða sjálfstæðismanna, þar sem
menn greinir á um það hvort sjúkrahúsið eiga að falla undir
ríkisrekstur eður ei.
• Karvel Pálmason varð í fyrsta sæti í prófkjöri krata á Vest-
fjörðum, en Sighvatur Björgvinsson lenti í öðru sæti.
Andlát
Látin er í Washington frú Ágústa Thors, ekkja Thors Thors
fyrrum sendiherra.
Emil Jónsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lést í Hafnar-
firði um sl. mánaðamót. Jarðarför hans fór fram þann 9.
desember á kostnað islenska ríkisins.
* Jóladtíkar,
stjakar,
* Handklæði,____
bómullardúkar,
' Samstætt efni í
Saumum eftir máli.
Mjög fallegir tilbúnir
fyrir börn.
Tilbúin sniðin
ódýr gjöf.
Mikið úrval af
t.d. könnur, j
munnþurrkurí kerti
Munið
munnþurrkur, gardínur, kerti
svuntur og tuskudúkkur. ’
sænguryerasett, handofnir
Júðar og mottur.
‘PPi, púða og gardínur.
blúndukragar og svuntur
myndaefni í svuntur, falleg og
smávöru þarsem allt ersamstætt
glos, diskamottur, vasar,
nýju glæsiiegu vógue-búðina í Mjóddinni!
Gleðileg jól!
búðirnar
1 I^r7/ /
HELGARPOSTURINN 47