Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST BARATTAN um jafnrétti tekur á sig ólíklegustu myndir. Einn frambjóðandi Framsóknarflokksins á Vesturlandi, Margrét Magnús- dóttir segir í viðtali við málgagn flokksins þar, Magna að hún sé á móti framboði Kvennalista. Hún rökstyður mál sitt í langri klausu sem lýkur með þessum orðum: „Við konur verðum að koma okkar málum fram á heimavelli karlanna, slást við þá þar ef þurfa þykir... Vid köstum ekki brjóst- unum í karlana og hlaupum út á vinnumarkadinn. ..“!! Með öðrum orðum: Brjóstakast er ekki rétta aðferðin í jafnréttisbaráttu. . . TÍMARITAbransinn virðist ganga heldur brösulega þessa dagana — sem hann hefur reynd- ar gert upp á síðkastið. Er þar helst að minnast þeirra tímarita sem hafið hafa göngu sína og dáið jafnharðan. Þar má nefna Stíl, Stord, TV og Núna og auk þess Búid betur, sem gárungarnir kalla þessa dagana „Búib — sem betur fer“. Þá hóf ungur, framtakssamur maður útgáfu á Tölvubladinu sem gekk ekki betur en svo að útgáfu- félagið Fjölnir keypti blaðið. Fjölnir varð svo aftur að láta í minni pokann nýlega þegar fyrir- tækið var selt til stærsta tímarita- útgefandans, Frjáls framtaks. Á mánudaginn var svo auglýst í DV til sölu Tímaritaútgáfa, þekkt nöfn, og boðist til að taka bíl upp í sem hluta kaupverðs. Grunsemdir vöknuðu, því ekki eru við lýði mörg útgáfufyrirtæki með þekkt nöfn í tímaritabransanum og féll Sam-útgáfan að sjálfsögðu undir grun fyrst af öllu. Grunurinn reyndist þó ekki á rökum reistur, Sam-útgáfan er ekki til sölu og vantar heldur ekki bíl. Sýna þessi dæmi að ekki er allt gull sem glóir og skjótfenginn auður er ekki það sem þeir hljóta sem hrinda af stað nýjum tímaritum. . . FRUMLEGUR forréttur var borinn á borð fyrir starfsmenn fyrirtækis eins í Reykjavík á árshátíð um síðustu helgi. Ljóst var að starfsfólkið myndi dreypa á góðum veigum um kvöldið en sá galli var á gjöf Njarðar að skyldan kallaði næsta morgun. Yfirmaðurinn dó þó ekki ráðalaus, pantaði nokkur hundruð belgi af Pre-Glandin, sem unnið er úr kvöldvorrósarolíu og lét bera á borð sem forrétt fyrir starfsmennina. Fer svo ekki frekari sögum af árshátíðinni — nema hvað allir mættu galvaskir til vinnu klukkan níu næsta morgun. Hyggst yfirmaðurinn nú skylda starfsfólkið til að fá sér Pre- Glandin í hvert skipti sem Ijóst er að eitthvað annað en kaffi verði drukkið um helgar... FERSKIR sveppir hafa fengist í flestum verslunum á höfuðborgar- svæðinu undanfarna mánuði og er það enn ein breytingin í þá átt að bjóða upp á nýtt meðlæti með kjöti og fiski allan ársins hring. Húsmæður hafa að sjálfsögðu kunnað vel að meta þetta framboð á hvítum og stinnum sveppum, óháð árstíma og veðurfari. Þegar kona nokkur var um daginn að láta vigta nokkur grömm af munaðarvöru þessari fyrir sig rétt fyrir lokun á laugardegi, spurði hún afgreiðslustúlkuna hvort óseldu sveppirnir yrðu ekki orðnir ókræsilegir á mánudagsmorgun. Stúlkan svaraði því til, að þá yrðu sveppirnir auðvitað brúnir og linir, en það gerði hins vegar ekkert til. Svo bætti hún við: „Þá taka fram- leiðendurnir sveppina nefnilega aftur og selja þá til veitinga- húsanna." Verði ykkur að góðu! MÖRGUM þykir yfirbragð kosn- ingabaráttunnar orðið svolítið „amerískt" hjá afkomendum vík- inganna á hinu kalda Fróni. Sjálf- stœðismenn maula nú Tópas úr sér- hönnuðum umbúðum með X-D í bak og fyrir. Framsóknarflokkurinn hefur íklætt sig og sína í hvítar, axla- púðamiklar og nýmóðins peysur með græna kennimerkinu sínu í barminum. Og Alþýduflokkurinn hitar í kolunum með sérhönnuðum krataeldspýtum. Við fréttum af ung- um manni, sem fékk framsóknar- peysu gefins á dögunum og mætti í henni í vinnuna, án þess að eiga sér neins ills von. Spáðu samstarfs- menn hans mikið í merkið i barmin- um, þar til pilturinn stundi loks: „Mér var sagt að það myndi enginn þekkja þetta.“ EFTIRFARANDI vísukorn barst inn á ritstjórn HP í tilefni þeirra atburða sem átt hafa sér stað á stjórnmálavettvangi undan- farið: Á íslandi gerist nú ýmislegt skrítið og úlfúð á milli vina Ég býst við að íhaldið batni lítið við Boxarauppreisnina... SMARTSKOT HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR Borðhald „Hann er talsvert upptekinn af sjálfum sér Alltaf þegar hann át sinn mat og þegar hann gerir glappaskot þá eru þau fyrirgefin eins og hann vœri einhver var umfangiö svo mikið, léttgeggjadur „Onkel Joakim“.“ að báðumegin borðsins sat PÁLL PÉTURSSON ÞINGFLOKKSFORMAÐUR og bætti enn við spikið. FRAMSÖKNAR UM FYRRUM IÐNAÐARRÁÐHERRA, ALBERT GUÐMUNDSSON, I KJALLARAGREIN i DV Niðri. S.L. MÁNUDAG Ertu kominn á toppinn? Tindur Hafsteinsson, sigurvegari í vísnakeppni Vísnavina „Tindur — er það ekki toppurinn? Við skulum taka það með í reikninginn að fjöllin eru mishá og mitt er rétt að mótast." — Hefurðu gert mikið af því að semja lög? „Ég hef samið þrjú lög. Ég þyrjaði síðasta sumar á ástaróði sem ég hef reyndar ekkert opinberað! Svo samdi ég tvö lög við texta sem Valdimar Óskarsson gerði." — Hvenær fékkstu áhuga á vísnasöng? „Það er nú orðið langt síðan. Þegar ég var 14 ára spilaði bróðir minn mikið á píanó og söng lög með David Bowie og Bítlunum og ég smitaðist af því og fór að pikka á píanóið sjálfur og söng með. Síðan þróaðist þetta út í að ég fór að fara yfir í rólegri og rólegri lög — og endaði í þessu." — Hlustarðu mikið á svona tónlist? „Nei, ég er svona alæta myndi ég segja. Hlusta á allt." — Áttu þér eftirlætis söngvara? , Já, David Bowie var það lengi framan af og er reyndar enn." — Hefurðu lært á hljóðfæri? „Já, ég lærði á píanó frá því ég var 7 ára fram til 12 ára aldurs. Hætti þá og snerti ekki á píanói í tvö ár." — Ætlarðu f frekara pfanónám? „Ég hef nú nóg á minni könnu eins og er og það þyrfti þá að bíða betri tíma. Ég þarf að láta skólann sitja í fyrirrúmi og Ijúka mínum prófum þar." — Hvað gerðirðu í verkfallinu? Samdirðu fleiri lög? „Nei, ég var aðallega í því að losa mig við ritgerðir og hjálpa tilvonandi tengdó við að flytja." — Hvað voru margir keppendur í þessari vísna- söngvakeppni? „Þeir voru sjö. Það voru veitt verðlaun fyrir besta lagið og besta textann. Sá sem samdi verðlaunatextann heitir Kristján Hrafnsson og er nemandi í M.R." — Hvað verður nú um lagið þitt? Fer það á plötu? , Ja — nú þori ég ekkert að segja! Maður á sér alltaf draum, en hvenær hann rætist er ómögulegt að segja." — Hver myndi þá flytja lagið? „Ég hefði hugsað mér að gera það sjálfur." — Nú — söngstu líka lagið? „Já já. Lék á píanóið og söng." — Hvernig er með stráka á þínum aldri? Hafa þeir yf- irleitt áhuga á þessari tegund tónlistar? „Flestir sem hafa áhuga á tónlist eru komnir út í hljómsveit með rafmagnshljóðfæri og annað slíkt en það er ekki þar með sagt að þeim líki ekki þessi tónlist. Alla vega virðist mér hún falla í góðan jarðveg meðal jafnaldra minna." — Nú ertu kominn með kosningarétt og átt að kjósa í fyrsta skipti. Hvernig leggjast kosningarnar í þig? „Ég hef reynt að fylgjast með eins og ég get og hef varla nokkurn tíma séð annað eins. Þetta eru svo miklar sveiflur fram og til baka að maður verður hálf ruglaður." — Ertu þá ekki búinn að ákveða hvað þú ætiar að kjósa? ,,Jú, svona nokkurn veginn." — Viltu segja okkur hvað þú ætlar að kjósa?! „Nei — ætli ég haldi því ekki leyndu!" — Ætlarðu að helga þig tónlistinni í framtíðinni? „Nei, ég ætla bara að hafa gaman af þessu en hef ekki hugs- að mér að leggja þetta fyrir mig." — Ertu að hugsa um að fara út í textagerð Ifka? ,Jafnvel. En þá vil ég semja um eitthvað sem varið er í; eitt- hvað sem er að gerast. Textarnir hans Valdimars fjalla um nú- tímaleg vandamál og hann fjallar um svo margar hliðar þeirra. Þess vegna líkar mér svo vel við textana hans." — Hvað fékkstu svo í verðlaun? „Fyrsta lagið fékk 20.000 krónur, annað 10.000 og þriðja lag- ið 5.000. Þessir peningar koma sér vel fyrir mig því ég er að fara til Frakklands í frönskunám í sumar svo þeir fara beint í ferða- sjóð." Um slðustu helgi var haldin keppni um besta vlsnalagið meðal fram- haldsskólanema. Vlsnavinir stóðu fyrir keppninni og sigurvegari besta lagsins var Tindur Hafsteinsson 18 ára nemandi við Fjölbrautaskólann I Garðabae Tindur fiutti og söng eigiö lag við texta Valdimars Óskars- sonar „Maðurinn (rólunni". HEUGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.