Alþýðublaðið - 24.06.1939, Síða 1
KTTSTIÓRI: F, E. ¥ALDEMAESSON
ÚTGSfANSH: AL^ÝiWfLð®KlSiB«f
|m. ÁXtGANOUR
LAUGARDAGINN 24. JCNÍ 1939.
142. TÖLUBLAÐ
Meldabanda-
lig milli Breta,
Fiakka og Tyrkja
Samningar nnðirritaðir
milli Tyrkja og Frakka
í gær.
i
LONDON í morgun. FÚ.
SÁTTMÁLI um gagnkvæma
aðstoö milli Frakklands og
Tyrklands var undirritaður í
gærkveldi.
Eftir að því var lokið, sagði
forsætisráðherra Tyrklands, að
Bretland, Frakkland og Tyrk-
land hefðu tekið saman hönd-
um um að standa sameiginlega
gegn öllum þeim hættum, sem
steðja kynnu að Balkanríkjun-
um og hinum austlægari Mið-
jarðarhafslöndum.
! París er lýst yfir því, af for-
sætisráðherranum og utanríkis-
nrálaráðherranum, og enn fremur
sendiherra Tyrkja, að sáttmála
þesslim sé ekki beint gegn nein-
um þriðja aðila.
Fyrr í gær var undirskrifaður
í Ankara sáttmáli milli Frakk-
lands og Tyrklands, þar sem
Frakkla'nd lætur af hendi við
Tyrkland Sanjak í Alexandretta-
héraði, en um það hefir staðið
deila milli Tyrklands og Frakk-
lands síðan í október 1936.
Svæði þetta liggur við suður-
landamæri Tyrklands og hefir
verið hluti af Sýrlandi, þar sem
Frakkar fara nú með umboðs-
stjórn.
Landssýningbarnaskólanna
verður opnuð á morgun kl. 2.
---4---
Stórkostlegar framfarir hafa orðið í handavinnu
skólabarna síðan fyrsta sýningin var haldin,1934
---♦---
40 skólar senda muni á sýninguna.
0NNUR landssýning barnaskólanna Iverðud opnuð á
morgun kl. 2 í Austurbæjarskólanum. Hefir fjöldi
kennari unnið að því undanfarið svo að segja nótt og dag
að gera þessa sýningu sem bezt úr garði.
Alls eru sýndir munir úr 40 barnaskólum víðsvegar að
af landinu úr kaupstöðum, kauptúnum og sveitum.
Sýningin staðfestir það, að stórkostleg framför hefir
orðið í handavinnu — yfirleitt í allri skólavinnu, síðan
fyrsta landssýningin var haldin sumarið 1934.
Er þetta gleðilegur vottur Fyrir gafli þar er stórt íslands-
um vaxandi menningu í land
inu og framfarir í skólamál-
um.
í morgun var blaðamönnum
boðið að skoða þessa merku
sýningu. Hún er þó ekki alveg
fullgerð og verður hún full-
komnuð í dag og nótt.
Sýningin er í þremur aðal-
deildum: Handavinna barna,
uppeldisfræði og línurit yfir þró-
un í skólamálum og vinnubóka-
og teikni-sýning. Sýningunni
er komið fyrir í skólastofum
Austurbæjarskólans og á göng-
um skólans.
Er ráðlegast fyrir fólk
að fara fyrst innst í ganginn.
Hargir þektir Alþýðnflokks
neii frð Norðnrlðidui
sækja Lanoarvatnsmðtið.
-----4-----
Það hefst á þriðjudaginii og verða
þar flutt mörg merkileg erindi.
NORRÆNA fræðsluvikan hefst hér á þriðjudag’. Upp
undir 50 þátttakendur frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi
og Danmörku koma hingað á mánudaginn og fara
austur að Laugarvatni á þriðjudagsmorgun. Ef skipið kem-
ur snemma á mánudag, getur verið að farið verði austur
um kvöldið.
Meðal þátttakendanna eru ♦
ýmsir frægir menn, eins og t.
d. Lindberg, forseti sænska Al-
þýðusambandsins, Elldin, for
seti sænska menningar- og
fræðslusambandsins, Axel Söm-
me, hinn kunni norski hagfræð-
ingur og rithöfundur, sem ritað
hefir ýmsar bækur um hag-
fræðileg efni í anda jafnaðar-
stefnunnar.
Fjölda mörg erindi verða
flutt á fræðsluvikunni. Kl. 3 á
þriðjudag verður mótið opnað
af formanni móttökunefndar-
innar, próf. Sigurði Nordal og
um kvöldið flytur hann erindi
um íslendinga og menningu
þeirra.
Á miðvikudagsmorgun tájar
Frh. á 4. síðu.
kort og á því sjást allir skólar
landsins merktir, í ganginum
eru og teikningar barna af öllu
mögulegu milli himins og jarð-
ar. Er þar listahandbragð á
mörgu. í ganginum eru sýnd
fjölda mörg stórfróðleg línurit.
Er þar t. d. línurit er sýnir f jölda
skólabarna. 1874 nutu 460
börn skólakennslu, 1903 5416
og 1938 15 þúsund. Þá er og
þarna línurit er sýnir skólana
og er þeim skift eftir kaupstöð-
um og sveitum, föstum skólum
og farskólum.
í stofunum er aragrúi af mun-
um, sem börn hafa búið til und-
ir leiðsögn kennara sinna: —
handavinna stúlkna, saumaðar
flíkur, útsaumur, hekl og prjón
og vefnaður. Er t. d. í einni
stofunni lítill vefstóll, sem sýn-
ir vefstóla þá, sem notaðir eru
í barnaskólunum á Akureyri,
og í Reykholti í Biskupstung-
um — er vefnaður barnanna al-
veg prýðilegur. Þá sér maður á-
gætlega gerð upphleypt íslands-
kort og héraðakort, sem börn
hafa gert, eðlisfræðitæki, verk-
fræðitæki, kistla, tínur, borð og
stóla, skápa, hillur, vegg-
skildi og fjölda margt annað.
Er alveg undursamlegt hvað
margir munir eru vel gerðir.
Þá eru þarna stórfróðlegar
skýrslur og sýningarmunir er
útskýra barnasálarfræði og ann-
að uppeldisfræðilegs efnis, í einu
horninu er mynd með línuriti, er
sýnir áhrif áfengisins, og er það
til mikils varnaðar fyrir börnin.
í einni stofunni var Aðalsteinn
Sigmundsson að undirbúa sína
deild, sýnir hún sérstaklega
vinnuskólafyrirkomulagið. —
Þarna eru vinnutæki og vinnu-
bækur, málverk og teikningar,
teikningar af alls konar vélum,
ljósmyndir og alls konar fróð-
leikur.
Sýningin verður opin í 8
daga. Hún verður opnuð með
mikilli viðhöfn á morgun kl. 2.
Og hefst hátíðin með skrúðgöngu
barna kl. IV2 frá leikvangi
Miðbæjarskólans. í fararbroddi
ganga skátar, leikfimi- og söng-
flokkar frá barnaskólunum. Kl.
2 verður staðnæmst á leikvangi
Austurbæjarskólans, þar fer
fram hópsöngur barna, en ræð-
ur flytja, Jakob Kristinsson
fræðslumálástjóri, iGuðm, Ás-
björnsson forseti bæjarstjórnar,
Ásgeir Ásgeirsson alþingismað-
ur og Sigurður Thorlacius skóla.
stjóri. Þá verður leikfimisýning
skólabarna og loks hópsöngur
barna.
Kappsund frá
Engey í dag.
"i- DAG kl. 6 fer fram kapp-
Á sund úr Engey að Stein-
bryggjunni.
Þrír sundmenn taka þátt í
kappsundinu, þeir Pétur Eiríks-
son, Haukur Einarsson og Vigfús
Sigurjónsson, sá er vann bæði
stakkasundið og björgunarsund-
ið á sjómannadaginn síðasta.
Jatntefll varð fi gær milli
Vals og Englendinga.
|T APPLEIKURINN í gær-
kveldi var dálítið sér-
kennilegur. Hálfleikirnir
voru gjörólíkir. Fyrri hálf-
leikur var bráðskemtilegur,
vel leikinn og hraður, en síð-
ari hálfleikur var leiðinleg-
ur, grófur og ekki sæmandi
neinum góðum íþróttamönn-
um. Stór hluti þessa hálfleiks
gekk í að lækna meiðsli.
Dómarinn Buchloh hafði
engan hemil á leikmönnum,
og hrintu þeir og brugðu sem
bezt þeir gátu. Áttu Vals-
menn ekki síður sök á þessu
en Englendingar.
Valur hóf sókn í byrjun og
skoraði mark á 3. mínútu, en
innan nokkurrar stundar kvitt-
uðu Englendingar og að örlít-
illi stundu liðinni settu þeir
annað mark. Valsmenn kvittuðu
aftur á síðustu mínútu hálfleiks-
ins.
í síðari hálfleik var ekkert
mark sett. Englendingar slóu
Frh. á 4. síðu.
Bretarnir og Víklasar
keppa á tnorgon.
AMORGUN kl.8x/2 keppaBret-
arnir við Víking. í liði Breta
verður að þessu sinni Mr. Divine,
þjálfari Vals, en Buchloh, þjálfari
Víkings, mun ekki keppa, eins og
sagt hafði veriö.
I sambandi við leikinn fer fram
íþróttakeppni til að skemta fólk-
inu, meðan knattspyrnumennirnir
hvílast milli hálfleika. Mun fara
fram keppni í 1000 metra hlaupi
milli beztu hlaupara bæjarins á
millivegalengdum. Meðal kepp-
enda eru Sigurgeir Ársælsson og
Ölafur Símonarson úr Ármanni
og Sverrir Jóhannesson úr K. R.
o. fl., og verður þar áreiðanlega
harður bardagi, og ef til vill
setja þeir nýtt met á vegal. Slík
skemtiatriði sem þetta eru algeng
erlendis milli hálfleika og verður
vafalaust þegið meÖ þökkum
einnig hér.
Gamelin yfirhershöfðingi Frakka (lengst til hægri á myndinni)
við komu sína til London á dögunum, eftir að afráðið hafði ver-
ið, að hann skyldi hafa yfirstjórn franska og enska landhersins,
ef til ófriðar kæmi. Samtímis var ákveðið, að yfirflotaforingi
Breta, Backhouse, skyldi hafa sameiginlega yfirstjórn enska og
franska herskipaflotans, og Newall, yfirforingi brezka loftflot-
ans, yfirstjórn beggja loftflotanna.
Japanlr setja Bretum
afarkost! fi Tientsin.
Heimta fullkomið fylgi þeirra og stuðn^
ing tii þess að bæla mótspyrnu Kínverja.
Drottningin
var væntanleg til Kaupmanna-
hafnar í dag.
LONDON í morgun. FÚ.
LORD HALIFAX hitti
sendiherra Japana í Lond
on að máli í gærkveldi, og mót-
mælti við liann ójöfnuði þeim
og svívirðingum, er brezkir
þegnar hefðu orðið að sæta í
Tientsin.
Hann skoraði einnig á jap-
önsku stjórnina að gera ýtarlega
grein fyrir því, hvað á milli
bæri, svo að auðið væri að sjá,
hvort ekki væri mögulegt að
semja.
Japanska stjórnin hefir þeg-
ar gert grein fyrir kröfum sín-
um, að því er snertir Tientsin,
og eru þær í fimm liðum:
1) að kínverskir ofbeldissegg-
ír og undirróðursmenn gegn
Japan, sem hafast við á brezka
svæðinu, verði þegar framseldir.
2) að silfurforði kínversku
stjórnarinnar í bönkum á for-
réttindasvæðinu verði afhentur
Japönum.
3) að Bretar styðji gjaldeyr-
Dauðaiefsing við
broti á gjaldeyris-
ð Ítðiiu!
LONDON í gærkveldi. FÚ.
T RÓM var í dag birt til-
skipun, sem leggur
dauðarefsingu við broti
gegn gjaldeyrislögunum,
svo fremi að það geti tal-
ist alvarlegt.
isstefnu japönsku stjórnarinnar
í Kína.
4) að Bretar bæli niður allar
hreyfingar og skoðanir and*
stæðar Japönum innan for-
réttindasvæðisins.
5) að Bretar heimili Japönum
eftirlit með öllum kínverskum
Frh. á 4. slðu.
Boðskapur nazismans:
Víggirðingar nauðsplegri
en verkamannabðstaðiri
Hæða GSSbbels á faradi ¥l«itrairaga~
verkamaima í Merlfra i gærkveldi
LONDON í morgun. FÚ.
GÖBBELS útbreiðslumála-
ráðherra Þýzkalands flutti
ræðu á fundi flutningsverka-
manna í Berln í gærkveldi og
sagði þar meðal annars, að lausn
innanlandsvandamála hefði ver-
ið lögð á hilluna um stundarsak-
ir vegna aðkallandi vandamála
á erlendum vettvangi, Hann
mælti meðal annars á þessa
leið:
„Vér hefðum getað bygt
verkamannabústaði, en það,
sem olli því, að vér bygðum
heldur víggirðingar á vestur-
landamærunum, var það, að þá
Frh. á 4. síðu.