Veðráttan

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Veðráttan - 01.01.1924, Qupperneq 1

Veðráttan - 01.01.1924, Qupperneq 1
VEÐRATTAN 1924 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIN Á VEÐURSTOFUNNI Fyrir árin 1920—23 gaf veðurfræðideild Löggildingai'stof- unnar út Veðurfarsbók og voru í henni daglegar veðurathug- anir þrisvar á dag frá 4—6 stöðvura og mánaðaryfirlit yfir veðráttuna á öðrum veðurathugunarstöðvum. Með því nú að dráttur getur á því orðið, að framhald Veðurfarsbókarinnar komi út, þá hefir þótt rjett að biita fyr mánaðaryflrlit yfir veðráttuna. Þessi mánaðaryfirlit koma öll í einu lagi fyrir árið 1924, en úr því er búist við, að þau komi út mánaðarlega. Vegna þess að póstferðir eru strjálar og póstur lengi á leiðinni frá stöðvum á Norður- og Austurlandi, fær Veðurstof- an mánaðarskýrslurnar frá veðurathugunarmönnum oft eigi fyr en 40—50 dagar eru liðnir frá þeim mánuði, er skýrslan er um. Mánaðaryfirlitið yfir veðráttuna getur því alla jafna eigi birtst fyr en tveim mánuðum á eftir þeim mánuði, er það nær yfir. Aðaltaflan um veðráttu hvers mánaðar þarf ljtilla skýringa við, þó skal hjer gerð litilsháttar grein fyrir sumu, sem þar stendur. í fremsta töludálki er meðaltal loftvægisins, eins og það hefði orðið niður við sjó, og með öllum leiðrjettingum. Meðal- hiti loftsins í næsta dálki, er eigi leiðrjettur vegna hæðar stöðvarinnar yfir sjávarflöt. 3. dálkur ,,Vik frá meðallagi“ sýn- ir, hve mikið meðalhiti þess mánaðar, sem um er verið að ræða, var yfir eða undir meðallagi. Þegar mánuðurinu hefir verið í kaldara lagi (undir meðallagi), er þetta „Vik“ negatift, eða mínus (—) á undan tölunni. Næstu 3 dálkar eru um hámark hitans, fyrsti dálkur sýnir meðaltal af hámarkshita hvers dags í mánuðinum, miðdálkur- inn hæsta hámarkið, og síðasti dálkurinn mánaðardaginn, er það var. — Næstu 3 dálkar sýna lágmark lofthitans á sama hátt. Þá kemur í sjerstökum dálki meðalhitinn í yfirborði sjáv- arins. Þrír næstu dálkar eru um úrkomu-hæðina og er hún talin í millímetrum. í fyrsta dálki er úrkoman samanlögð allan mánuðinn, þá mesta úrkoma á einum sólarhring og síðast, hvern mánaðardag sú úrkoma var mæld. Urkoman er jafnan mæld kl. 8 að morgni, og hefir því úrkoman verið mest nóttina á undan þeim degi, sem tilgreindur er í dálknum eða daginn þar Framhald á bls. 26 (1)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.