Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 7
Y R S T A
K O N A
REYKJAVÍKUR
HALLVEIG,
FROÐADOTTIR
eftir Auði Styrkársdóttur
Fyrir nokkrum árum kviknaði með mér
skyndilegur og furðulegur áhugi á lífi
íslendinga fyrr á öldum. Ég hélt mig
vera eina um þennan nýkviknaða forna
áhuga, en nýlega las ég svo í breska
vikublaðinu The Economist að kviður
Hómers njóta nú fádæma vinsælda hið
ytra og ungmenni flykkjast í latínunám
í skólum á meginlandi Evrópu. Sannað-
ist nú hér hið fornkveðna að ekkert er
nýtt undir sólinni, ekki einu sinni eigin
hugsanir.
Burtséö frá þessu öllu þá greip ég fegins
hendi laust tækifæri til aö fræða lesendur
Veru um frumkvööul. Þetta er upplagt tæki-
færi til þess aö hefja á loft minningu for-
mæöra okkar, þeirra erfyrstar byggöu þetta
land. Því hvaö vitum viö um þær? Hverjar
voru þær, þessar konur, ambátt Náttfara,
Hallveig Fróðadóttir og Helga Arnardóttir,
sem fyrstar kvenna stigu fæti á íslenska
jörð og áttu hér heima alla sína ævidaga
upp frá því? Eöa blönduðust þær kannski
ekki íslenskri mold? Kannski hurfu þær
utan aftur, þessir frumkvöðlar íslands-
byggðar, sammála Katli flatnef sem í Lax-
dælu gaf íslandi þessa einkunn: „í þá veiði-
stöö kem ég aldregi á gamals aldri.“ ísland
var einnig á 9. öld á mörkum hins byggilega
heims og hingað komu fáir aðrir en þeir sem
ekki áttu annars úrkosti - og fylgdarlið
þeirra sem einnig átti fárra kosta völ, svo
sem makar, börn og þrælar.
Hin nafnlausa ambátt Náttfara, er var
með í íslandsför Garðars Svavarssonar,
varð eftir hér ásamt Náttfara og þræl hans.
Ekki segir frekar af þessu fólki, hvort það
dvaldi hér skemur eða lengur eða hvernig
því líkaði vistin. Ambáttin hvllir kannski í ís-
lenskri mold, kannski ekki.
Hallveig Fróðadóttir var kona Ingólfs Arn-
arsonar, þess er kallaður er frægastur land-
námsmanna í Landnámabók, „vegna þess
að hann kom hér að auðu landi og byggði
fyrstur landið". Mig langar að vita hvort Hall-
veig kom með Ingólfi hingað eða hvort hún
kom í einhverri seinni för, en um það er ekk-
ert að hafa úr Landnámabók. Ekki er heldur
sagt hvernig henni líkaði vistin. Féll henni
vel í Reykjarvík, eða fannst henni líkt og
Karla þræli sem mælti um þann stað um
ieið og hann sneri til baka í hið frjósama Ölf-
ushérað: „Til ills fóru vér um góð héruö, er
vér skulum byggja útnes þetta."? Ingólfur
haföi nefnilega bitið þaö í sig að reisa bú-
stað sinn þar sem öndvegissúlur ræki að
landi, og við það hlaut hann að standa hvað
sem bithögum leið. Eða kannski mat Hall-
veig frelsið sem búseta í óbyggðu landi
veitti henni. Hér gat hún ráðskast með
mann, vinnufólk og þræla sína sem aldrei
hefði verið í Noregi og hagað bústörfum eft-
ir eigin höfði. Kannski bjó hún annars stað-
ar í landnámi hennar og Ingólfs. Möguleik-
arnir voru aö minnsta kosti fyrir hendi.
Um Helgu Arnardóttur er líka fátt að finna
í Landnámabók. Hún var þó sú sem hratt ís-
landsbyggð óbeint af stað og örugglega
nauðug viljug. Um þessa systur Ingólfs
kepptu fóstbróðir hans, Leifur, og Hólm-
steinn, sonur Atla jarls. Af ástarmálum
þessum spruttu víg Hólmsteins og Her-
steins Jarlssona og svik Ingólfs og Leifs við
sættir sem þeim voru boðnar við Atla. Mig
grunar að þeir hafi stungið af til islands með
allt sittí stað þess að gjalda fyrirvígin. Ljóst
er að minnsta kosti að til heimkynna sinna
eiga þeir ekki afturkvæmt, og sennilega
ekki til nokkurrar byggðar norrænna manna.
Helga kom með Leifi til íslands, en í millitíð-
inni vann Leifur sér viðurnefnið Hjör-Leifur
vegna þess sem virðist vera grafarrán (vík-
ingar skirrðust við fátt). Eftir skamma bú-
setu á íslandi lét Hjörleifur lífiö fyrir hendi
þræla sem hann hafði áður notað sem uxa
(þessir sömu þrælar héldu honum og fylgd-
arliði öllu á lífi á leiðinni til íslands). Eftir
þetta var Helga ekkja I garði Ingólfs og Hall-
veigar. Eða varð eitthvað annað um hana?
Kannski giftist Helga öðrum og ævin-
týraminni manni með þvl fé sem Ingólfurtók
til handargagns eftir fóstbróður sinn og
frænda. Konur þessa tíma voru allavega
sjaldan ekkjur lengi.
Við Hallveigu er kenndur götuspotti I
Reykjavík, Hallveigarstlgur, og einn togara
Bæjarútgerðar Reykjavíkur var við hana
kenndur. Kvennasamtök landsins sýndu
þessum frumkvöðli fullan sóma er þau
nefndu stórhýsi sitt við Garðastræti Hall-
veigarstaði. Nú legg ég til að Ingólfstorgi
verði breytt I Hallveigarlund. Þar fá borgaryf-
irvöld tækifæri til að slá tvær flugur I einu
höggi: Umbreyta þessum svarta og furöu-
lega kuldalega bletti I gróðurvin - og sýna
fyrstu konu Reykjavíkur loksins sóma.
s
1
Með því að breyta Ingólfstorgi í Hallveigarlund fá borgaryf-
irvöld tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi: Umbreyta
þessum svarta og furðulega kuldalega bletti í gróðurvin -
og sýna fyrstu konu Reykjavíkur loksins sóma.
frmkvööullinn