Hugur - 01.01.1988, Blaðsíða 91
GUNNAR HARÐARSON
HEIMSPEKI OG FORNMENNTIR
Á ÍSLANDI Á 17. ÖLD*
Um fræðaiðkun Brynjólfs biskups Sveinssonar
Einhverjum kynni að þykja það ofmælt, ef ekki beinlínis þver-
sagnakennt, að halda því fram að Brynjólfur biskup Sveinsson
(1605-1675) hafi verið einn mikilvirkasti fræðimaður sinnar
tíðar á íslandi þegar lítið sem ekkert af verkum hans komst á
prent, bæði sökum þess að honum var ekki mjög tamt að ljúka
þeim sem hann byrjaði á og eins vegna hins að hann byrjaði
sjaldnast á þeim sem hann lagði drög að. Verða menn þá að
hafa hugfast að aðstæður til umsvifamikillar útgáfu- og fræða-
starfsemi voru tæpast fyrir hendi í Skálholti um miðja sautj-
ándu öld. Þó að Brynjólfi yrði lítið úr verki eiga íslendingar
fræðimennsku hans að þakka að enn eru varðveitt mörg bestu
skinnhandrit íslensk, til að mynda Flateyjarbók og Konungsbók
Eddukvæða, en þeim safnaði Brynjólfur í því skyni að gefa þau
út á prenti. í fræðaiðkun Brynjólfs má sjá stöðugt samspil
tveggja menningarheima, hins norræna og hins latneska. 011
menntun Brynjólfs byggðist á hinum lameska, lærða heimi. En
einmitt í krafti þessarar menntunar var Brynjólfur fær um að
skilja hinn menningarheiminn sem hann tilheyrði, hinn
íslenska. Segja má að starf hans hafi miðað að því að brúa bilið
* Greinarkorn þetta er að stofni til fyrirlestur sem fluttur var á dönsku á
málþinginu Latínubókmenntir á Norðurlöndum eftir siðskipti á Biskops
Arnö í Svíþjóð í ágústbyrjun 1987. I þeim fyrirlestri voru dregnar
saman helstu niðurstöður, og nokkru aukið við, af málþingi Heim-
spekistofnunar um heimspeki Brynjólfs Sveinssonar sem haldið var í
Reykjavík í júlí 1986 í samvinnu við Institut for græsk og latinsk
middelalderfilologi við Kaupmannahafnarháskóla. Þaðan komu fræði-
mennimir Sten Ebbesen, Frits Saaby Pedersen og Lars B. Mortensen.
Þingið sátu, auk þeirra og greinarhöfundar, Jakob Benediktsson og
Sigurður Pétursson. Um Brynjólf og Ramus má einnig lesa í grein
minni „Verkefni íslenskrar heimspekisögu", Skímir 1985, bls. 45-70.
— Mikael Karlssyni og Páli Skúlasyni þakka ég yfirlestur og gagnlegar
ábendingar.