Hugur - 01.01.1996, Blaðsíða 106
Ritdómar
Jostein Gaarder
Veröld Soffíu
Þýðing: Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson
Mál og menning 1995, 489 bls.
Að koma heimspeki á framfœri við börn
Sé litið til grísku þrenningarinnar má með nokkurri einföldun segja að
gagnrýnandinn Sókrates hafi fyrst og fremst litið til almennings; hann
tók menn tali og ráðgátur dagsins voru teknar tvísýnum tökum
heimspekilegrar samræðu. Platón var ritsnillingur, skáldlegur og fullur
innsæis í framsetningu sinni og kenningasmíð. Hann gaf heimspekinni
ritmál og akademískan skóla, sem synir betri borgara sóttu. Aristóteles
ritaði margt en kennslubækur eða glósur, sem til hans eru raktar, eru þau
verk sem haldið hafa hugsun hans á lofti.
Þó að heimspekingar hafi gjaman leitað inn á svið bókmennta hefur
mest borið á hefðbundnum kennslu- og fræðibókum á meðal ritverka
þeirra. Skólastarf, eins og við þekkjum það, hefur krafist skipulegra
kennslubóka. Mér segir svo hugur, að kröfur um kennslubækur hafi átt
stóran þátt í því að heimspekin hefur ekki náð að hasla sér völl á lægri
skólastigum í menntakerfum hins vestræna heims. Skólamenn hafa ekki
séð skynsamlegan tilgang í því að koma heimspekingum og kenningum
þeirra á framfæri.
Veröld Soffíu er tilraun til þess að koma sögu heimspekinnar á framfæri
við böm og unglinga í umbúnaði skáldsögu í stað hefðbundinnar
kennslubókar. Gaarder er ekki einn um það að leita út fyrir hefðbundna
kennslubók þegar kynning heimspekinnar er annars vegar. í lok sjöunda
áratugarins var það einnig niðurstaða Matthews Lipmans þegar hann, eftir
tveggja áratuga heimspekikennslu í háskóla, hófst handa við að vinna
heimspeki sess í grunnnámi; hann álítur að böm þurfi á kennslu í hugsun
að halda. Lipman er frumkvöðull í þessum efnum og hann fer þá leið að að
semja heimspekilegar skáldsögur um böm og unglinga.*
Sögur Lipmans mynda orðið samfellt námsefni fyrir 5-16 ára börn.
Um þessar mundir er 8. saga hans í smíðum en hún fjallar um siðfræði
fyrir 10 ára böm. Þema 5. árs Hugar, 1992, var heimspekikennsla á
gmnn- og framhaldsskólastigi, þar má lesa nánar um þessi efni.
1