Morgunblaðið - 23.04.1933, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.04.1933, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 I Stefán Guðmundsson óðalsbóndi á Fitjum. Hann andaðist á lieimili sínu, Fitjum í Skorradal, 2. mars s.l- Banamein hans var lungnabólga. Hann var fæddur 28. maí 1864 á Gröf í Skilmannahreppi. Þar tojuggu þá foreldrar hans hjónin Humundur Ólafsson Stefánssonar 'bónda á Setbergi og kona hans Vigdís Magnúsdóttir Jónssonar í Stóru-Vogum. Móðir Vigdísar, kona Magnúsar, var Guðrún Bgg -ertsdóttir prófasts í Reykholti, Guðmundssonar. Vorið 1867 flutt- ist Stefán með foreldrum sínum að Fitjum og ól þar síðan allan sinn aldur. Guðmundur á Fitjum var um eitt skeið' þingmaður Borgfirðinga. Hann var talinn mikill gáfumað- ur og fjölfróður. Dvaldi hann í 'Ðanmörku við jarðræktarnám 1847 til 1851. Var hann fyrsti bóndi lijer i efrihluta Borgarfjarðar, sern beitti hestum fyrir jarðyrkju- verkfærum. Avanst honum því meira við túnasljettun heldur en öðrnm bændum sinnar samtíðar. Fitjar eru ein af allra fegurstu jörðum þessa hjeraðs og þótt víð- ar væri leitað. Bærinn stendur í fagurri skógarhlíð við austurend- ann á Skorradalsvatni.Túnið stórt, •sljett í líðandi halla, frá því liggja víðáttumiklar og greiðfærar engj- ar meðfram silfurtærri iá alt út undir vatnsósinn. í þessum fagra og skógiklædda dal er verulega unaðslegt um bjarta sumarmorgna, þegar svanasöngurinn frá vatninu blandast við þrastakliðinn í skóg- arhlíðnnum. Slíkt umhverfi á sinn góða þátt í því að glæða viðkvæm- ar og háleitar hugsanir í brjóstum mngra manna sem þar mega una á bernsku og æskudögum. Stefán liafði þegið 'í vöggugjöf næmann fegurðarsmekk, skarpan skilning og rósama íhugun. Allir þessir góðu kostir hans þroskuðust vel við hina kyrlátu og hugljúfu nátt- úrufegurð. Það eru nú liðin nær því 50 ár síðan jeg komst í náin kynni við Stefán á Fitjum. Hann var þá sjómaður í Landakoti á Vatns- leysuströnd hjá hinum glæsilega bónda Guðmundi Guðmundssyni, Brandssonar. Þar í Landakoti voru frístundir sjómanna vel not- aðar til söngnáms og fleiri fræða- iðkana. Gaf hinn vel mentaði hús- bóndi þar oft góðar bendingar í ýmsu, en einkum því sem laut að söng og söngfræði. Þótti því ung- um og fróðleiksþyrstum mönnum eftirsóknarvert að vera lái því góða heimili. Vakti það hina mestu unun, að hlýða á söngflokk þann sem GuðmundUr stjórnaði, því þar voru ýmsir ungir og efnilegir söngmenn bæði iir Borgarfirði og \ af Austurlandi. í þeim flokki stóð enginn framar Stefáni að næmi og skilningi í öllu því sem að söng- fræði laut, þótt aðrir væri þar meiri raddmenn. Tíðrætt varð mönnum þá um þennan afdala- pilt, sem aldrei hafði fyr að heim- an farið en las þó, sjer til fullra nota, bækur á öllum Norðurlanda- málum. Hann var þá fámáll, dulur og ljet lítið yfir sjer. Skemtinn gat hann þó verið í hópi fárra vina, en gætti jafnan stillingar og siðgæðis. Jeg minnist þess hvað hinn fluggáfaði prestur, síra Guð- mundur Helgason í Reykholti, dáð ist að vitsmunum Stefáns og hans fjölhæfa lærdómi í öllu því sem laut að bókum. Taldi hann það með fádæmum, að sveitabóndi, sem aldrei hefði á skóla komið og aldrei farið út fyrir landsteinana, nema til þess eins að róa til fiskj- ar, gæti ekki einungis lesið þýsku, heldur líka hugsað og ort á því máli, en það sagði hann að Stefán gæti. Um það var mjer kunnugt, að Stefán var skáldmæltur vel, þótt lítið hafi komið frá honum af því fyrir augu almennings. — Ritfær var hann í besta lagi en hjelt sjer lítið fram í því sem öðru. Stöku sinnum birtust þó eft- ir hann blaðagreinar, einkum minningar látinna merkismanna. í sögu íslands, að fornu og nýju, var hann þaullesinn og fróður um landsins lög. Gaf hann ætíð skýr- ar og ábyggilegar upplýsingar í þeim fræðum, ef t.il hans var leit- að. Sjiálfstæðar skoðanir hafði hann í landsmálum, en ekki vildi hann láta stjórnast af blindu flokksfylgi. Það vakti jafnan mikla eftirtekt, á fundum þegar Stefán á Fitjum tók til máls. Hann 1 jet aldrei til sín heyra fyr en hann hafði skynsamlegar og gjör- hugsaðar röksemdir fram að færa. Blandaðist þá engum hugur um það, sem á hlýddu, að þar talaði vitur maður og rjettsýnn, grand- var og friðsamur. Guðmundur Ólafsson, faðir Stef áns, andaðist 1889. Tók Stefán þá við bíistjórn á óðali föður síns. Var hugur hans þá mjög tvískift- ur milli bókanna og bústjórnarinn- ar. Urðu því átökin hjá honum minni í búnaðarframförum, held- ur en hinum einbeittustu umbota- mönnum hjeraðsins. Hallaðist hann meira að háttum eldritíðar manna, þeirra sem hyggnir voru og hóf- samir. Taldi hann hið forna spak- mæli enn í góðu gildi, að best væri að sníða sjer stakk eftir vexti. Fylgdi hann þeirri reglu, að varast skuldir og miða umbæt- ur við þær tekjur sem búið gaf umfram reksturskostnað. Fyrir hagsýni og hyggni varð hann vel efnum búinn, enda ein af styrkustu stoðum sveitar sinnar* bæði fyrir fjárhagslega getu og góðar tillög- ur, er úr vöndu var að ráða. Voru honum því falin ýms trúnaðar- störf, m. a. var hann hreppstjóri um eitt skeið, en ljet af þeim störfum eftir nokkur ár vegna heilsubilunar. Sýslunefndarmaður var hann í samfleytt 40 ár. Árið 1908 kvongaðist Stefán Karólínu Hallgrímsdóttur, ættaðri úr Þingeyjarsýslu, vel látinni myndarkonu. Lifir hún mann sinn ásamt fjórum börnum þeirra, einni dóttur, Vigdísi að nafni, sem nú er gift kona í Hafnarfirði og þrem sonum, sem allir eru heima í föðurgarði. Öll eru þau vel gefin og vænta menn að synirnir haldi trygð við hið fagra óðal feðra sinna og erfi meðal annars átthagaástina af hinum fastheldna föður. • Stefán var stór og þrekinn, karlmenni að burðum, verksjeður og hagur vel. Hægiur maður í fasi, athugull vel og æðrulaus. Minning Stefáns á Fitjum mun jafnan í heiðri höfð af öllum þeim er af honum höfðu kynni. Kr. Þ. HjðkrunarfjelajiS „líka' Starfsemi þess í Reykjavík 1932. Hjúkrunarfjelagið „Líkn“ helt aðalfund sinn 22. mars. s.l. Stjórn fjelagsins var endurkosin. Árið 1931 störfuðu við fjelagið 4 hjúkrunarkonur, eins og undan- farin ár. Hjúkrunarkonurnar fóru alls 8060 sjúkavitjanir á árinu. Þær vöktu 87 nætur og höfðu dag hjúkrun 5 heila daga. Hjálparstöð „Líknar" fyrir berklaveika. Þangað komu 233 nýir sjúklingar, sem allir voru skoðaðir og eftirlit var haft með þeim sem þurftu þess með. Stöðv- arhjúkrunarkonan fór 2035 vitj- anir á heimilin, þar af voru 648 sjúkravitjanir. Auk þess vakti stöðvarhjúkrunarkonan í 5 nætur og fór 400 sjúkravitjanir fyrir bæjarhjúkrun „Líknar“ Allar þess ar sjúkavitjanir eru taldar með sjúkravitjunum bæjarhjúkrunar- innar sem að ofan eru taldar. 25 sjúklingum var útveguð heilsu- hælis- og spítalavist, 63 sjúklingar voru röntgenmyndaðir og 34 sjúk- lingar fengu ljóslækningar. AIls voru gerðar 1472 læknishlustanir, en stöðin tók á móti 3507 heim- sóknum alls- Aulr þess var sjeð um sótthreinsun frá stöðinni á 6 heimilum. Gefnir voru 1000 lít.rar af þorskalýsi, 38791/2 líter af mjólk, 150 kg. af haframjöli, 100 kg. af strausvkri. 40 kg. af nýju kjöti og 2 skpd. af saltfiski, auk annara matgjafa af ýmsri tegund. Enn- fremur var útbýtt gömlum og nýjum fötum, og fyrir jólin barst stöðinni allmikið af mat og sæl- gæt.i, sem öllu var útbýtt. Stöðin hefir einnig veitt húsaleigustyrk og lánað mikið út af rúmfötum, og hjúkrunargögnum. Alls voru 337 heimili undir eft- irliti stöðvarinnar á árinn, og var öll hjálp þaðan ókeypis. Læknir tekur, á móti sjúklingum þrisvar í viku á stöðinni, mánnd. miðvikud. og föstud. Ungbarnavernd ,Líknar‘. Hjúkr unarkonan við Ungbarnavernd „Líknar“ fór 1846 vitjanir á heim ilin, en auk þess fór hún 1065 sjúkravitjanir við bæjarhjúkrun ,,Líknar“ og vakti 26 nætur. Þess ar sjúkravitjanir eru taldar með ofangreindum sjúkfavitjunum bæi arhjúkrunarinnar. Á barnaverndarstöðina komu 302 ný.jar heimsóknir af börnum og 1151 endurtekin heimsókn, en 308 mæður leituðu ráða til stöðv- arinnar. Eru þetta 1761 heimsókn alls. Einnig hafa 36 barnshafandi konur leitað til stöðvarinnar. Frá barnaverndarstöðinni voru gefnir 1712 lítrar af mjólk, axik Namskeið í erlendum tungumálum (þýsku, ensku, frönsku, spænsku, ítölsku). Byrjendur læra að tala og skrifa málið ásamt hraðritun og vjelritun á 4 mán., en á 3 mánuðum, ef menn eru áður nokkuð kunandi. 7—8 kenslustundir á dag. Húsnæði og fæði fæst ef óskað er. íslendingur á heimilinu. Skriflegar upplýsingar ókeypis frá Dr. phil. E. Nagel’s Seminar fiir fremde Spraehen, Leipzig C. 1. Harkortstrasse 6, Þýskalandi. Frekari upplýsingar á Bókhlöðustíg 2 (sími 2566). Bethania. í dag kl. 8y2 sam- koma. Sumri fagnað. Mikill söng- ur, gítarsamspil, ræða : stud. theol. Sigurbj. Einarsson. Samskot tekin til styrktar starfsemi kristniboðs- fjelaganna. Vinir fjölmennið! lýsis, matgjafa fyrir ca. kr. 50.00 og fatagjafa. Ennfremur voru lán uð barnarúm, barnasængur og barnafatnaður. Læknir tekur á móti sjúklingum tvisvar í viku á stöðinni, fimtud. og föstud., en stöðin er opin fyrir barnshafandi konur 1. þriðjudag hvers mán- aðar. Læknar stöðvanna og hjúkrun- arkonurnar sem starfa við „Líkn“ eiga miklar þakkir skilið fyrir al- úð þeirra við starfið í þágn „Líkn- ar“. Það er ábyrgðarmikið að gæta sjúkra, en ekki er síður vandasamt starf þeirra hjúkrun- arkvenna, er aðstoða læknana við stöðvarnar. Sri sjergrein hjúkrun- arstarfans, sem þar fer fram. krefst mikillar lipurðar og nær- gætni, þar sem meiri hluti þeirra sem þangað koma, ern ekki s.júk- lingar í eiginlegum skilningi. Hlut- verk stöðvarhjúkrunarkvennanna er því meira í því fólgið að leið- beina en að hjúkra og má geta nærri, að það er ekki vandalaust að koma í þeim tilgangi inn á heimilin, og fá heimsóknirnar til þess að bera tilætlaðan árangur. Aðsókn til stöðvanna fer árlega vaxandi, svo að jafnvel horfir Sil vandræða fyrir fjelagið að halda starfinu uppi eins og verið hefir Hjúkrunarfjelagið „Líkn“ horfir fram á mikla fjárhagslega örðug- leika, ef aðsóknin vex ár frá ári en fjárstyrkir þeir sem fjelagið hefir notið standa í stað, eða jafn- vel minka eins og nú horfir til. Jeg vona að þeir sem annars gefa þessum málum gaum, skilji hve mikið fje ,,Líkn“ sparar ríkinu árlega, einungis með því að taka að sjer eftirlit með heilsulitlu fólki, sem annars lægi fTrrir lengri eða skemri vist í heilsuhælum rík- isins. Og þó er þessi sparnaður smávægilegur h.já hinu þýðingar- mikla atriði, sem tilgangur stöðv- anna er ðygður á, að kenna hinum heilbrigðu að fara vel með heilsu sína og forðast sjííkdóma, og mæðrum að veita börnum sínnm holla aðbúð og mataræði. Þeim mörgu sem með rausnar- legum g.jöfum liafa styrkt fjelag-! ið síðastliðið ár, færi jeg innileg- ustu þakkir. Reykjavík í apríl 1933. Sigríður Eiríksdóttir. formaður Hjúkrunarfjel. „Líkn“. Verðlækkun. Kaffistell 12 manns 22.00 Kaffistell 6 manna 14.00 Matardiskar, gúmmí 50 au. Smádiskar, gúmmí 30 au. Matarstell — Mjólkurkönnur ■—* Kökudiskar 10% afsláttur. — Nagla-, Bursta-, Saumasett. —* Dömutöskur og Veski og öll — Búsáhöld með 10—20% afslætti. I IR Bankastræti 11. oooooooooooooooooo Veitið því athygli hve fæg- ingin er björt og endingar- góð úr Fjallkonufægileginum. Samanburður æskilegur um þetta- K.f. Efnagerð Reykjavíkur. x>oooooooooooooooo< TsliðíeSiIr. íslenskt smjör á 1.50 pr. % kg. Smjörlíki 80 aura % kg. Hvítkál á,. 20 aura % kg. Minnist þess ávalt, að kaffi, — sykur og aðrar nauðsynjar eru ódýrastar hjá Jóhansesi Jóhannssyni, Grundarstíg 2. Sími 4131. Mffisti digs ^efum við 30% afslátt af öll- um pergamentskermum. Skermabúðin, Laug-aveff 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.