Morgunblaðið - 20.12.1945, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.12.1945, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 20. des. 1945. Beykjavíkurbær stuðlar ú útgerð nýtísku skipa- ekki ú útgerð kommiinista-kiáfa frá 1 „Mjer er alveg sama“. LÖNGU eftir að bæjarstjórn Reykjavíkur hafði samþykt að gera það sem í hennar valdi stæði ttt þess að tryggja, að hingað til bæjarms kæmu 20 af þeim 30 togurum, sem rík- isstjórnin hafði fest kaup á, þrammaði Steinþór Guðmunds- son, aðalfrömuður kommúnista í útvegsmálum, fram á sjónar- sviðið í bæiarstjórn Reykjavík- ur og flut'ti tillögu um, að bær- inn keypti 10 togara. — Þegar Steinþór var spurður að því, hvort hann meinti 10 af þeim 30 togurum, sem ríkisstjórnin hafði þegar fest kaup á, eða 10 10 togara auk þeirra, svaraði Steinþór: „Mjer'er alveg sama“. Þótt bærinn hefði tekið ábyrgð á kaupum 20 af 30 togurum „stóð á sama“ hvort 10 togurum væri bætt þar við eða 10 dregn ir frá. Hvort gerðir væru út frá bænum 10 togarar eða 30 spilaði enga rullu. Það, sem máli skifti var það, að finna tilefni til þess að birta enn einu sinni rnynd af Stein- þóri í Þjóðviljanum að skýra frá því, að hann og Kommún- istaflokkurinn gætu ekki fengið 10 togara í bæinn vegna mót- stöðu „íhaldsins". „Það stóð á sama“, þótt bæjarstjórnin hefði krafist 20 togara og fylgdi þeirri kröfu fast eftir. Bæjarstjórnin krefst, að 20 tog- urum sje úfhlutað hingað og ábyrgist kaupin. Bæjarstjórn Reykjavíkur hef- ir gert þá kröfu til Nýbygging- arráðs, að 30 af þeim 30 tog- urum, sem samið hefir verið um smíði á í Englandi af hálfu rík- isstjórnarinnar, verði úthlutað til útgerðarfyrirtækja hjer í bænum. En þar sem talið er víst, að nú sem stendur muni ekki ber- ast umsóknir um fleiri en 6— 10 togara frá útgerðarfyrirtækj um í bænum, þá hefir bæjar- stjórnin sent Nýbyggingarráði umsókn um svo marga togara til viðbótar umsóknum útgerð- arfyrirtækjanna, að alls fáist hingað 20 togarar, þar á meðal annar dieselvjelar togarinn, er samið hefir verið um kaup á Nýbyggingarráð og ríkis- stjórnin úrskurða umsóknirnar. Ef þau taka kröfur og umsókn bæjarstjórnar að fullu til greina, svo sem vænta má, þá festir Reykjavíkurbær sjálfur kaup á 10—14 togurum. Sjálfstæðismenr. í Bæjar- stjórn hafa haft forgöngu í því, að bæjarstjórnin gerði kröfu um það, að % hiutum af ný- byggingum togaranna yrði út- hlutað hingað og bærinn gerð- ist sjálfur kaupaodi, ef ekki fengist næg þátttaka af hálfu útgerðarfyrrtækia í bænum. — Var fyrsta samþykt bæjar- stjórnarinnar í þessu efni gerð í byrjun júlímánaðar s.l. og samþyktin síðan endurnýjuð í september og látin ná til þeirra togara, sem þá var samið um að kaupa og loks enn send um- sókn um kaupin í s.l. mánuði samkvæmt auglýsingu Nýbygg- ingarráðs. Kommúnistar leituðu uppi elstu og úreltustu fleyturnar á Islandi og Færeyjum til þess að gera þær út. Bæjarstjórn Reykjavíkur reynir að tryggja, að 20 nýtísku tog- arar sjeu gerðir út frá bænum. Krafan miðuð við togarafjöld- ann milli styrjaldanna. Á árunum 1919—1939 nam meðaleign togarafyrirtækja bú- settra í bænum 64,33% af heild artölu togara í landinu og sje miðað við smálestatölu togar- anna nam hlutdeild bæjarins enn meiru. Það er þetta hlutfall sem bæjarstjórnin gerir kröfu til þess að fá hingað og það því fremur sem gengið var á rjett bæjarins, er úthlutað var styrkj um til bygginga vjelbáta á ár- unum 1938—1939 og ennfrem- ur vegna þess, að Áki Jakobs- son atvinnumálaráðherra ljet bæinn ekki fá nema helming þeirra vjelháta, sem um var sótt, við fyrri úthlutun Sví- þjóðarbátanna. Hvorttveggja var þetta var- ið með því, að Reykjavík ætti að sitja fyrir togara-kaupun- um, þegar að þeim kæmi. Svipuð aðferð og við kaup Sví- þjóðarbátanna. Eins og fram hefir komið af samþyktum bæjai stjórnar æsk- ir bærinn kaupanna fyrst og fremst til þess að tryggja, að 20 nýir togarar verði gerðir út hjeðan frá bænum. Sennilegt er, að bærinn hafi samskonar aðferð við togara- kaupin og við kaup þeirra 10 vjelbáta, sem hann hefir keypt frá Svíþjóð. Bærinn auglýsti á sínum tíma eftir kaupendum að sænsku bátunum og seldi þá með kostnaðarverði útgerðar- fyrirtækjum útgerðarmanna og sjómanna búsettum í bænum. Kaupendurnir hafa skuldbund- ið sig til þess að gera bátana út hjeðan. Bærinn Ijet gera teikningar að sænsku bátunum, sem taldir voru til fyrirmynd- ar, svo að allir nema tveir (Sam vinnufjel. ísfirðinga og Harald ur Guðmundsson, ísafirði), sem áttu þess kost að smíða eftir þeim, kusu það heldur en að fara eftir teikningum þeim, er fyrverandi ríkisstjórn hafði lát ið gera. Bærinn samdi um kaup in fyrir milligöngu ríkisstjórn- arinnar og veitti margvíslega fyrirgrelðslu og aðstoð við kaupin t. d. tók bærinn ábyrgð á annars veðrjettar láni á bát- unum, að upphaeð kr. 100.000.- á hvern bát Af þeim 10 bát- um, sem bærinn festi kaup á, er 2—3 ennþá óráðstafað, enda koma þeir bátar, sem óráðstaf- að er, ekki til landsins fyrr en í árslok 1946. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn munu því aðeins láta bæinn sjálran hefja úfgerð á þeim skipum, sem hann hefir fest kaup á, að ekki fáist tryggir kaupendur að þeim, þrátt fyrir aðstoð bæjarins, er vilji skuld- binda sig til þess að gera skipin út hjeðan. Utgerðin undirstaða atvinnu- rekstrar í bænum. Sjálfstæðismönnum hefir ætíð verið það Ijóst, að útgerðin og þá fyrst og fremst togaraútgerð in er og þarf að vera undir- staða heilbrigðs atvinnurekstr- ar í bænum. Þess vegna hafa þéir beitt sjer fyrir kaupum sænsku bátanna og togarakaup unum til bæjarins og stækkun' hafnarmannvirkjanna nú síð- ast m. a. með hinni miklu upp- fyllingu við Grandagarðinn og byggingu nýrra bryggja og mannvirkja þar. Jafnaðarmenn og Framsókn hindruðu vöxt útgerðarinnar. Á valdatímum Framsóknar og Jafnaðarmanna kom ríkis- valdið í veg fyrir, að nokkur aukning yrði á togaraflotanum og einnig að mestu leyti á vjel- bátaflotanum. Aukning togara- flotans var skoðuð sem mál Reykjavíkurbæjar, sem yrði að hindra á svipaðan hátt eins og hitaveituna og virkjun Sogsins. Jafnaðarmenn voru að vísu öðru hvoru með tyllitillögur um kaup á 10, 4 eða 2 togur- um, sem aldrei varð neitt úr, að keyptir yrðu. Kendu þeir 1 Eramsókn um, að svo fór, en ljeðu henni samt fylgi sitt tií þess að vera áfram við völd í landinu um langt árabil. Kommúnistar hefja útgerð með aðstoð Siglufjarðarbæjar. — Gömul hró með nýjum nöfnum. Á þessu ári hafa menn sjeð sýnishorn af útgerð kommún- ista á „Falkur11 og „Arthur11, en skipum þessum hafa þeir gefið ný nöfn eins og flokki sínum og nefna þau „Siglunes11 og „Milly“. „Falkur11 er gam- all færeyskur hvalveiðakláfur bygður árið 1912. „Arthur11, er bygður árið 1883. Stórskemd- ist hann af bruna í fyrra. Eft- ir það ljet þáverandi eigandi skipsins, Óskar Halldórsson, það liggja umhirðulítið og mun hafa ætlað hið sviðna skipshró til niðurrifs. Ekki varð úr því, að „Arthur11 yrði rifinn, því að kommúnistar á Siglufirði keyptu flaldð. Báðar þessar fleytur hafa kommúnistar látið gera við með ærnum kostnaði og notið til þess aðstoðar m. a frá Siglu- fjarðarbæ. „Falkur11 átti að gefa Þjóðvilj- ann út. Lán- og styrkbeiðnir til þess- ara fyrirtækja hafa verið sóttar af miklu kappi, enda mikið í húfi, því að haft er eftir einum af foringjum Sameiningar- flokks Alþýðu — Socialista- flokksins — (áður Kommún- istaflokkur íslands), að útgerð Siglunessins (áður „Falkur11), væri ætlað að standa undir út- gáfu Þjóðviljans. Dritað í hroiðrið Margt fer öðru vísi en ætlað er. „Falkur11 hefir ekki orpið neínum gulleggjum fyrir Kom- Framh. á 12. síðu. Arbók Ferðafjelagslns 1945 um Heklu og Hekluhraun AÐALFUNDUR Ferðafjelags Islands var haldinn fyrir nokkru. Forseti fjelagsins, Geir G. Zoega, setti fundinn og gaf skýrslu yfir starfsemi fjelags- ins s. 1. starfsár. Alls voru farnar 31 skemti- ferð, þar af 8 sumarleyfisferðir. 1228 manns tók þátt í ferðun- um. Átta skemmtifundir vpru haldnir fyrir almenning, altaf fyrir húsfylli. Eru þeir fundir orðnir mjög vinsælir. Verða þeir haldnir mánaðarlega í vet- ur. Skrifstofa fjelagsins hefir og veitt fjölda manns leiðbeining- ar um ferðalög, þar á meðal amerískum og enskum setuliðs- mönnum. Skrifstofan er hjá Kristján Ó. Skagfjörð, Tún- götu 5. Fjelagatalan hefir aukist á ár inu um 664, og eru fjelagar nú als 5764. Á árinu keypti fjelagið her- mannaskála í Brunnum, miðja vegu milli Þingvalla og Húsa- fells. Verður hann notaður sem sæluhús. Þá er í ráði að á næsta sumri verði hafist handa um að reisa skála, sennilega í C-fjörefni gegn ofnæm! fyrir sulfalyfjum New York: Frjettaþjónusta A.P. HJER í Bandaríkúunum er nú farið að nota C-fjörefni til þess að lækna fólk, sem veik- ist af Sulfalyfjum, en allmikið hefir borið á ofnæmi fyrir þeim. Ef sjúklingarnir fá C- fjörefnið, geta þeir tekið Sulfa lyfin án þess að verða meint af, en það kom oft fyrir, að fólk væri svo næmt fyrir þessum lyfjum, að það þyldi ekki svo stóran skamt, sem þurfti. til þess að bjarga lífi þess í vissum sjúkdómum. Dr. Harry N. Holmes, yfir- maður efnafræðideildarinnar við Oberlin háskólann, hefir rannsakað þetta, og telur sig hafa komist að þeirri niður- stöðu, að orsökin til þess, að, menn þoli ekki sulfalyf sje sú, að þá skorti C-fjörefnið. — Ef mikið er gefið af því, meðan sulfalyfin eru tekin, hafa þau venjuleg lækningaáhrif og eng in ill eftirköst. 985 hjónavígslur árið 1944 í NÝÚTKOMNUM Hagtíðind um er skýrt frá því, að tala hjónavígsla á öllu landinu árið 1944 hafi verið 985. Á því ári hafa því komið 7.8 hjónavígslur á hvert þúsund landsmanna, og er það svipað hlutfall og árið á undan, en töluvert lægra en tvö næstu ár þar á undan. Þó er það miklu hærra en á árun- um fyrir ctríð. Á árunum 1936—’40 voru að meðaltali 694 hjónavígslur á ári, eða 5.9% af landsmönnum, sem gengu í hjónaband. 1940 voru það 6.6%, 1941 8.4%, 1942 8.7%, 1943 7.9%, og 1944 7.8%. — Fljótadrögum, á Snæfellsjökli og inn á Þórsmörk. Fjelagsdeildir úr ferðafjelag- inu eru á Akureyri, Húsavík, Vestmannaeyjum og svo Fjalla- menn í Reykjavík. Síðasta árbók Ferðafjelags- ins var um Fljótsdalshjerað, rit uð af Gunnari Gunnarssyni, rit hqfundi. Árbókin í ár mun fjalla um Heklu og Hekluhraun Guðmundur Kjartansson, jarð- fræðingur ritar hana. Enn er til nokkuð af síðari árbókum f jelagsins, en allar, eldri bæk- urnar eru uppseldar. Hagur fjelagsins er allgóð- ur. Hafa sjóðseignir aukist nokkuð á árinu. í fjelagssjóði ásamt bifreiðasjóði og sæluhúsa sjóði eru nú rúml. 70 þús. kr. Stjórn Ferðafélagsins skipa: Geir G. Zoega, forseti, Steinþór Sigurðsson, varaforseti og með- stjórnendur: Gísli Gestsson, Guðm. Einarsson, Helgi Jónas- son, Jón Eyþórsson, Kristján O. Skagfjörð, sem jafnframt er framkvæmdastjóri og gjaldkeri, Lárus Ottesen, Pálmi Hannes- son, Þorsteinn Jósefsson og Jóhannes Kolbeinsson. Jólin eru hálíð barnanna Jólin eru hátíð barnanna. —• Eigum við því ekki á þeirri há- tíð að muna eftir munaðarleys ingjunum á barnaheimilum þessa bæjar — muna eftir þeim, sem ekki geta notið móður og föður umhyggju á sinni eigin hátíð. Undanfarna daga hafa dag- blöðin birt skýrslur yfir, að aldrei hafi verið eins mikið af föðurlausum börnum á íslandi og einmitt nú. Við höfum safn- að offjár til handa börnum ann arra þjóða. Því þá ekki að líta nær sjer og safna fje til mun- aðarleysingja í okkar eigin landi. Börnin eru framtíðin. — Þess . vegna er það þjóðfjelagsleg skylda okkar að láta þau njófa þess, sem við getum veitt þeim. ' Uppeldi þeirra varðar hvern einstakling og er vandamál okk ar allra. Munum því öll eftir barnaheimilunum okkar nú um jólin, svo börnin, sem þar dvelja, geti glaðst og notið þess arar miklu hátíðar sinnar. —« Barnavinur. Jólablað Fálkans, er komið út, fjölbeytt að efni. Það hefst á jólahugleiðingu eftir sr. Árna Sigurðsson: Eins og börnin. Þá er eftir Johan Falkberget: Iver Jolien, grein um Friðþjóf Nan- sen, eftir Skúla Skúlason, Jóla kvöld í finnskri fjallabyggð, eft ir Edv. Welle-Strand, Skáld iðr unarinnar, eftir John B. Rian, Það lagast alt, eftir Ellen Kirk, Menntaból Norðurlands, eftir Skúla Skúlason, Bakkusarjól á Norðurvegum, eftir Peter Freuc hen. í helgidóminum, eftir Selmu Lagerlöf, barnasögur, skrítlur, jólakrossgáta o. fl. —■ Blaðið er prýtt mörgum mynd- um. Ef Loftur getur það ekki — þá hver?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.