Morgunblaðið - 11.03.1948, Blaðsíða 1
UTANRÍKISRÁBHERRA TJEKKA FINST LÁTINN
SARYK FRAMDI EKKI SJÁLFSMORÐ"
Farið fram á, að Öryggis-
ráðið rannsaki ástandið
í Tjekkóslóvakíu
Lake Success í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
DR. PAPANEK, fulltrúi Tjekkóslóvakíu hjá Sameinuðu þjóðun-
um, sagði á fundi, sem hann hjelt með blaðamönnum hjer í dag,
að hann gæti ekki trúað því, að Jan Masaryk, utanríkisráðherra
Tjekkóslóvakíu hefði framið sjálfsmorð.
Viðurke'nnir ekki stjórn kommúnista
Hann sagðist neita að viðurkenna núverandi ríkisstjórn Tjekkó-
slpvakíu, sem löglega stjórn landsins. En hann kvaðst ekki hafa
í hyggju að láta af embætti sínu hjá Sameinuðu þjóðunum, þar
sem hann teldi sig vera þjón lýðveldisins Tjekkóslóvakíu, eiris og
það hefði verið fyrir 20. febrúar (er kommúnistar frömdu valda-
rán sitt).
Biður um rannsókn Öryggisráðsins
í brjefi til Trygve Lie, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna fer Papanek fram á, að Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna láti rannsaka ástandið í Tjekkóslóvakíu. Hann lýsti því yfir,
að það væri undir meðlimum Sameinuðu þjóðanna sjálíum komið
að ákveða hvort þeir vildu viðurkenna hina nýju ríkisstjórn.
Frh. á bls. 2.
Norskur kommúnista-
foringi segir sig
úr flokknum
Vegna atburðanna í Tjekkóslóvakíu og
WILLIAM MIKALSEN lektor, kunnur norskur kommúnistafor-
ingi og forystumaður þeirra í Köngsberg, þar sem hann átti
sæti í bæjarstjórn, skólanefnd og gegndi fleiri ábyrgðarstöðum
fyrir kommúnista, hefur sagt sig úr kommúnistaflokki Noregs
vegna afstöðu kommúnista til atburðanna í Tjekkóslóvakíu og
vegna þess, að norski kommúnistaflokkurinn hefur ekki viljað
hreinsa sig af ásökun um að hann væri fimtu herdeildar flokkur
erlends ríkis, með málshöfðun.
Fjekk ekki áheyrn hjá
miðstjórninni.
Mikalsen lektor Ijet svo um-
mælt við norsk blöð, að hann
hefði um hríð fylgst með at-
burðunum í heimsmálunum af
ugg og vonast til þess að komm-
únistaflokkur Noregs tæki lýð-
ræðislega afstöðu til málanna.
„Jeg fjekk meðlim úr miðstjórn
inni hingað til Tönsberg til þess
að' gera grein fyrir afstöðu
Frh. á bls. 2.
Fjörulíu iarssf
Santiago. Chili í gærkv.
FJÖRUTÍU manns fórust í
dag þegar hollenska skipið Hel-
vitia lenti í árekstri á fljótinu
Carahue í Chili. Ekki var vit-
að um orsök árekstursins þegar
síðast frjettist. Helvetia var rúm
5000 tonn. — Reuter.
Segir fulltrúi
Tjekka hjá S.þ.
Jan Masaryl'4
óeðlilegt í lari
asaryks kvöldið
en hann dó
Eftir Hubert Harrison.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Prag í gærkvöldi.
SÍÐASTA EMBÆTTISVERK dr. Jan Masaryk
sem utanríkisráðherra var að taka á móti
blaðafulltrúa Tjekka í sendisveitinni í London.
Blaðafulltrúinn dr. Navan kom í íbúð Masa-
ryks klukkan 6 e. h. á þriðjudagskvöld og
ræddi við ráðherrann í klukkustund. —• Var
Masaryk þá í sínu venjulega góða* skapi. Bað
hann blaðafulltrúann að koma til sín daginn
eftir og taka fyrir sig brjef til að setja í póst,
er hann kæmi til London.
Gerði áætJun fyrir næsta dag.
Um 7 leytið kom einkaritari
Masaryks með uppdrátt að
pólsk-tjekkneskum samningi,
sem ganga átti frá daginn eft-
ir. Ritarinn lagði fyrir ráðherr-
ann áætlun að næsta degi og
samþykkti hann hana. Hann
gekk einnig frá ræðu, sem hann
ætlaði að flytja í Tjekknesk-
pólska fjelaginu næsta kvöld.
Ritarinn fór klukkan 7,45.
Þjónn Masaryks kom því
næst með kvöldmat. Kl. 8,30
kom þjónninn og tók diskana.
Einkaþjónn Masaryks, sem hef-
ir verið í þjónustu þeirra feðga
í 32 ár setti tvær flöskur af
ölkelduvatni á borðið. Masaryk
bað þjónana að vekja sig kl.
8,30 næsta morgun, eins og
venja var á virkum dögum.
Það var það síðasta, sem vit-
að er að hann hafi sjest á lífi.
Vörður fann líkið.
Klukkan 6,25 um morguninn
fann vörður við utanríkisráðu-
neytið lík ráðherrans og hafði
það fallið út um glugga í 13
metra hæð á steinlagða stjett-
ina fyrir neðan.
Ekkert sár var á höfði hans
og augu hans lokuð, eins og
hann svæfi.
Vörðurinn gerði aðvart a
naéstu slysastofu og kom þá
læknastúdent sem gat ekkert
aðhafst nema að staðfesta að
Masaryk væri látinn.
BændaleiÖfogl dæmdur
í fangelsi
London í gærkveldi.
RÚSSNESKUR herrjettur hef
ur dæmt Bela Kovres fyrver-
andi aðalritara ungverska smá-
bændaflokksins í tveggja ára
fangelsi vegna þess að hann
barðist gegn valdabrölti komm-
únista þar í landi áður en þeir
komust að fullum völdum.
— Reuter.
Beió eftir að fólkið færi!
í STAÐ ÞESS að senda málssvara sína og þigg'ja boð
æskulýðsfjelaga annarra flokka um þátttöku í æskulýðs-
fundinum í Austurbæjarbíó í gærkveldi sendu kommún-
istar þangað blaðaljósmyndara sinn. Höfðu þeir gert ráð
fyrir að lítil aðsókn yrði að fundinum vegna fjarveru
þeirra. En þegar þeir sáu að þar var húsfyllir Ijeiu þeir
myndasmið sinn híma utandyra þar til í fundarlok að
fundarmenn voru að fara. Þá var piltinum skipað að taka
myndir handa Þjóðviljanum!!
Þannig fara kommúnistar að því að láta myndir sýna
ranghverfuna af sannleikanum.
Frjctt af fundinum birtist á bls. 12.
<*•
Einn öflug-
asti fylgis-
maður lýð-
ræðisins
Prag í gær. Einka-
skeyti til Morgunbl.
RditGr
JAN MASARYK, utanríkis-
ráðherra Tjekkóslóvakíu
fanst látinn fyrir utan glugga
skrifstofu sinnar í utanríkis-
ráðuneytinu í Prag klukkan
rúmlega 6 í morgun. Var að
sjá, sem ráðherran hefði kast
að sjer út um glugga og fram
ið sjálfsmorð.
I tilkynningu frá innanrík-
isráðuneytinu í Prag er full-
yrt að Masaryk hafi framið
sjálfsmorð, en þó var ekkert
tilkynt um dauða hans opin-
berlega fyr, en Lundúnaút-
varpið hafði skýrt frá því.
Einn fremsti leiðtogi
Tjekka
Jan Masaryk var einn af mikil
hæfustu leiðtogum Tjekka. Hann
var sonur Thomasar Masaryk,
frelsishetjunnar tjekknesku, er
ásamt Benes forseta átti mest-
an þátt í að stofna lýðveldið
Tjekkóslóvakíu. Hann var 61 árs
og hafði starfað lengst af ævi
sinnar við utanríkisráðuneytið
og var sendiherra þjóðar sinn-
ar í London í 13 ár, en sagði af
sjer eftir Múnchensamningana
1938. Eftir styrjöldina var hann
einn af öflugustu forystumönn-
um þjóðar sinnar í baráttunni
við nasista og var utanríkis-
ráðherra í útlagastjórn Benes í
London styrjaldarárin og hjelt
því embætti æftir að Tjekkósló-
vakía losnaði undan oki Þjóð-
verja. Masaryk var ekki flokks-
bundinn, en hefur alla tíð verið
náinn samstarfsmaður Benes
forseta og einkavinur hans.
Er fráfall hans talið mikið
áfall fyrir Benes, sem nú stend-
ur einn uppi af leiðtogum
Tjekka er lýðræði unna.
Eftir valdarán kommúnista
hjelt hann áfram að gegna emb-
ætti utanríkisráðherra og furð-
aði vini hans á því, þar sem
vitað var, að hann var ákveðinn
andstæðingur einræðis og sann-
ur lýðræðisvinur. En hafi Masa-
ryk framið sjálfsmorð þykir
sýnt, að hann liafi sjeð, að hann
gat ekki lengur starfað ineð
kommúnistum sem frjáls mað-
ur.
Frh. af bls. 1.