Morgunblaðið - 15.11.1975, Page 25

Morgunblaðið - 15.11.1975, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975 25 fólk f fréttum + Meðfylgjandi mynd er frð mikilli bátasýningu I Hamborg. Á sýningunni gat þó að Ifta marga aðra hluta en báta og skip. T.d. þessi Ifkneski og kafarahjálma, 1200 báta og skútur, björgunar- og siglingatæki, sérstakan klæðnað, bækur ogýmsan nauðsynlegan og ónauðsynlegan útbúnað fyrir sæfarendur. + Nýlega lauk mikilli siglingakeppni á leiðinni London-Sydney og sigurvegari varð áhöfn skút- unnar „Great Britain II.“ Myndin er tekin af skútunni um 70 mflur frá Ástralfu og hægra megin er flugvéi frá ástralska lofthernum. + Hún fröken Kúba var vfga- leg þegar hún mætti til leiks f samkeppninni „Ungfrú AI- heimur", sem hefst í London 20. þessa mánaðar. Fyrirferðar- mikill hatturinn sat skakkur á fögru höfðinu og digur vindill trónaði á milli vara hennar. Hún hefur sjálfsagt ekki vitað um herferðina gegn reyking- um, sem stendur yfir þessa dagana hér á landi, þvf kotrosk- in blikkaði hún Ijósmyndarann hvergi feimin. Hún fröken Kúba er 22ja ára gömul og heitir Marisels Mexie Clark, ef einhver vildi vita það. -M- + Sumir hafa kallað hann svindlara og sjónhverfinga- mann, aðrir hafa viðurkennt hann sem mikinn hæfileika- mann. Uri Geller hefur gert vfðreist um heim allan og m.a. komið fram hjá sjónvarps- stöðvum vfða um Evrópu. Þar hefur hann ieikið sér að þvf að gera furðulegustu hluti, hann hefur beygt hnífa, gaffla og skeiðar fram og aftur, látið klukkur ganga aftur á bak og ýmislegt annað ævintýralegt þvf maðurinn hefur gert þetta f gegnum sjónvarpstækin. Nú hefur Uri Geller fengið sér nýjan starfa. Hann er orðinn gullleitarmaður og sagan segir að hann hafi haft heppnina með sér f þeim bransa og tekizt að finna gull þar sem fæstir hafa búizt við bvf að væri um slfka góðmálma að ræða. Hafa mörg námufvrirtæki nú boðið Geller starf sem lifandi guil- leitara, en venjan er jú sú, að á þessari öld tækninnar sjái full- komin tæki um leitina. + John Wayne er nýlega skil- inn við eiginkonu sfna og þar að auki hefur hann lýst þvf yfir að hann sé orðinn grútleiður á að vera hinn einmana kúreki f ótal hlutverkum. Hann hefur sagt að hann hafi mikinn áhuga á að ná sér í nýja eiginkonu. — Hvernig á ég annars að geta passað barnabörnin mfn 20, á Jón væni að hafa sagt. Basar Kvenfélags Grensássóknar HINN árlegi basar Kvenfélags Grensássóknar verður haldinn að þessu sinni í Safnaðarheimilinu við Háaleitisbraut laugardaginn 15. nóvember og hefst hann kl. 14:00. Eins og áður verða þar á boð- sólum margir fallegir og nytsamir hlutir, sem koma sér vel fyrir jólin bæði til gjafa og annars. Kvenfélagið hefur fært kirkju sinni margar góðar gjafir og ber þar hæst fagrar og hljómmiklar kirkjuklukkur, sem voru vígðar og teknar í notkun á fyrsta sunnu- degi í aðventu i fyrra. Kven- félagið gaf einnig á sínum tíma fullkomna eldhúsinnréttingu í safnaðarheimilið. Þá vil ég minnast á ýmsa kirkjulega muni, svo sem silfurbúnað fyrir altaris- sakramenti, hökla og nú síðast sérstaka biblíu og biblíustatíf á altari. Að baki slíkum gjöfum er góður hugur til kirkjunnar, en lfka mikil vinna og óþreytandi áhugi og nú er það okkar að þakka þetta fórnfúsa starf með því að koma á basarinn og kaupa. Ég vil þvi skora á allt safnaðar- fólk og aðra velunnara Grensás- kirkju að fjölmenna í safnaðar- heimilið á laugardaginn 15. nóvember kl. 14:00 og verzla vel. Kvenfélag Grensássóknar, hafi þökk fyrir allt og Guð blessi allt starf ykkar. Halldór S. Gröndal. Blað- burðar fólk 3IIar@Mnl'I8þ^í, Austurbær Miðbaer Ingólfsstræti Uppl. í síma Uthverfi Selás Leikerasmiður frá Glit verður I fjósinu Föstudag kl. 20—22 Laugardag kl. 14—16 Sunnudag kl. 14—16 Komið og sjáið sérkennilegustu blómaverzlun landsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.