Morgunblaðið - 29.09.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.09.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1977 11 Snati festist f kerfinu Sigurður Örlygsson í Solon Sigurður Örlygsson var einn af þeim ungu listamönnum, Sem stofnuðu gallerí Sólon íslandus, og nú hefur hann komið fyrir einkasýningu á staðnum i fyrsta sinn. Hann hefur sýnt nokkur verk sín þarna áður, en einkasýningar hans voru á öðrum stöðum, enda þetta galleri þá ekki til komið. Ég get ekki að því gert, að mér hefur alltaf fundist þetta gamla og góða nafn Sólon íslandus heldur langt og ekki nægilega þjálft í tali. Því tek ég mér það bessaleyfi að kalla staðinn aðeins Sólon, og vonast til, að gamli maðurinn, sem átti þetta nafn snúi sér ekki i gröf sinni og að aðstandendur sýningarsalarins fyrtist ekki við. Þetta á aðeins að sýna frá minni hálfu, hve vel ég kann yið staðinn og þá starfsemi, sem þar fer fram. Hliðstætt því, þegar almenningur í landinu kallar Morgunblaðið Mogga. Góðviljuð stytting, það er allt og sumt. A þessari sýningu Sigurðar Örlygssonar eru eingöngu svo- kallaðar klippmyndir (Collage), en i þeirri myndgerð hefur orðið mikil vakning, sem hófst fyrir tæpum þrjátíu árum, en þar á undan höfðu til dæmts kúbistarmr stundað þessa myndgerð af miklum móð. Hér á Islandi var þó nokkuð unnið í þessari mynd- gerð um og eftir 1950, og nú virðist þetta vera að koma aftur til skjalanna. Sigurður vinnur þessa sýningu eins og um myndröð (seriu) væri að ræða. Viðfangsefnin eru nokkuð keimlik og eru á stundum fremur tilbrigði við sömu hug- mynd en andstæðar hugdettur. Þau eru lifandi og skemmtilega unnin með fjölskrúðugu ivafi, sem gerir þessa sýningu all- ólíka þeim, sem áður hafa sést frá hendi Sigurðar. Ef þessi verk eru til dæmis borin saman við sýningu þá, er hann hélt í Norræna húsinu fyrir nokkru, sést fljótt, að hann hefur söðlað nokkuð um, og haldið frá hinu geometriska formi, en spilar nú meir á hrynjandi og léttleika formsins. Sigurður er ungur maður, sem enn er i mótun, og auðvitað er hann á réttri leið með að breyta til i myndgerð Myndllst eftir VALTÝR PÉTURSSON sinni, ekkert er svo fullkomið í myndlist, að endanlegt sé. Því er það ætið fögnuður fyrir alla aðila, þegar maður sér breyt- ingar og að listamenn eru að eiga við viðfangsefni, sem kalla á ný og harðari átök. Það er svo einkamál hvers og eins hvar setja skal punktinn. Sigurður Örlygsson hefur víða farið og kynnst myndlist. Hann hefur verið hjá ágætum kennurum, og hann er fæddur og Uppalinn á myndlistarheimili. Hann er þvi langt frá því að vera nokkur byrjandi í listgrein sinni, enda ber þessi sýning hans vott um, að hér er á ferð leitandi málari með vissa reynslu þegar að baki. Þetta er skemmtileg sýning hjá Sigurði Örlygssyni, þótt hún sé að visu nokkuð einhæf. Ég verð að játa, að ég held, að ég hafi séð öllu veigameiri verk eftir Sigurð áður. Og er mér þá ríkast í huga, sá árangur er hann sýndi í Norræna húsinu um árið, en þá var það geomet- rian, sem öllu réði. Það er sann- arlega skemmtilegt að sjá Sig- urð losa um viðfangsefni sín á þessari sýningu, og klippmynd- ir hans eru honum til sóma. Ég hafði persónulega ánægju af að Framhaid á bís. 29. Nýr Stefnir: Fjölþætt hefti um fræðslu- og skólamál STEFNIR, timarit Sambands ungra sjálfstæðisrpanna, 3. og 4. tbl. 1977, er nýkomið út. Efni blaðsins er sem hér segir: 0 — Ritstjörnargrein: Umhverfi fyrir ævimenntun. 0 — Ef skólinn væri ekki til, grein eftir Mariu Sophusdóttur. 0 — Allt lifið er skóli, grein eft- ir Herdísi Egilsdóttur. 0 — Dýrmæt ár vaxtar og þroska, grein eftir Bessi Jóhanns- dóttur. 0 — Hugleiðingar um mennta- stefnu, grein eftir Kristján J. Gunnarsson fræðslustjóra. 0 — Námsbækur nemenda á skyldunámsstigi eru yfirvöldum til skammar, eftir Anders Hans- en. 0 — Menntun úti á landi, grein eftir Halldór Blöndal. 0 — Markmið og leiðir í mennta- málum, grein eftir Halldór Guð- jónsson, 0 — Listir og stjórnmál — um- ræður. Þátttakendur: Aðalsteinn Ingólfsson, Brynjólfur Bjarnason, Davíð Oddsson, Einar Hákonar- son, Ingimar Erlendur Sigurðsson og Þorvarður Helgason, stjórn- andi Gestur Olafsson. 0 — Englakroppar í Kópavogi, eftir Hrafn Gunnlaugsson. 0 — Heilsteypt kerfi hugmynda, grein eftir Jón Orm Halldórsson. 0 — Hvar stöndum við — hvert 20% íslendinga heim úr utanlands- ferdum frá ára- mótum FRÁ Aramótum til ágústloka komu alls 57 þús. útlendingar til landsins, eða liðlega 1000 fleiri en á sama tíma i fyrra. Hins vegar komu 45 þús. íslendingar til landsins á þessum tima á móti 37 þús. á sama tíma i fyrra. Alls hafa þvi um 20% íslendinga komið heim til íslands úr utanlandsferð- um á fyrstu 8 mánuðum ársins 1977. stefnir? Grein eftir Ingu Jónu Þórðardóttur. 0 — Handan hafsins, grein eftir Þráin Eggertsson. ---Fáein ot ð um fræðslumál eft- ir Friðrik Sophusson. 0 — Þættir úr starfi SUS og ým- ist fast efni. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Gestur Ólafsson. Afgreiðsla og sala er í Sjálfstæðishúsinu, Reykjavík. if ■ IÐNKYNNING Í i REYKJAVIKIé>S Dagskrá 29. sept. Kl. 13:00 Kynnisferðir í iðnfyrirtæki. Kl. 15:00—22:00 Iðnkynning í Laugardalshöll. Kl. 16:00—22:00 Iðnminjasýning í Árbæ. 30. sept. „DAGUR IÐNAÐARINS" Kl. 13:00 Athöfn við styttu Skúla fógeta. Kl. 14:00 Fundur um iðnaðarmál, Súlnasal Hótel Sögu. öllum heimill aðgangur. Kl. 15:00—22:00 Iðnkynning í Laugardalshöll. Kl. 16:00—22:00 Iðnmynjasýning í Árbæ. Senn líður að lokum mikils fagnaðam^ lönkynningin í Laugardalshöll stend- ur mun skemur en venjulegar vöru- sýningar. Henni lýkur á sunnudags- kvöld. Komdu strax í dag og njóttu v allrar dýrðarinnarvið bestu aðstæður fP Gjöf til gests dagsins: Tölvuvekjara- klukka frá Rafspeki og fjölskyldu- myndataka í Studíói Guðmundar. Opnað kl. 3. Iðnaðarbingó kl. 4. Tiskusýningar kl. 6 og 9. Aðgangseyrir: Fullorðnir kr. 400.-. Börn kr. 150.-. MflÐNKYNNING !*! 14l LAUGARDALSHOLL ' ÉV. •: 23. sept.-2.okt/77 T¥r 1. okt. Kl. 13:00—22:00 Iðnkynning í Laugardalshöll. Kl. 14:00—22:00 Iðnminjasýning í Árbæ. 2. okt. Kl. 13:00—22:00 Iðnkynning í Laugardalshöll. Kl. 14:00—22:00 Iðnminjasýning í Árbæ. Kl. 21:30 Slit iðnkynningar í Reykjavík og iðn kynningarárs. Kl. 21:45 Flugeldasýning. 10. okt. Dregið í happdrætti iðnkynningar. ATH: Otisýning verður í miðbæn um 19. sept. til 2. okt. á iðn aðarframleiðslu, happdrætt ishúsinu o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.