Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 Útvarp kl. 10.45 og 17.50: Rætt um talgalla Þáttur Gísla Helgasonar, „Er hægt að laga talgalla hjá börnum", er á dagskrá útvarps- ins í tvígang á morgun, kl. 10.45 og 17.50. í þættinum mun Gísli ræða við Guðrúnu Bjarnadóttur talkennara en hún hefur aðsetur í Víðistaðaskóla. Að sögn Gísla er þessi þáttur í beinu fram- haldi af þætti sem hann hafði í útvarpinu fyrir viku og fjallaði um talkennslu fullorðinna. Þá var aðallega rætt um talgalla sem orsökuðust af slysum eða sjúkdómum en ekkert farið út í gormælgi, stam eða aðra þess háttar talgalla. „Sannleikurinn er sá,“ sagði Gísli, „að það er oft foreldrunum að kenna þegar um talgalla er að ræða hjá börnum, sérstaklega ef það er haldið í tæpitungu hjá þeim og lítið talað við þau.“ Sjónvarp kl. 20.30: ”Nýjasta tækni og vísindi” í ÞÆTTINUM „Nýjasta tækni og vísindi" í kvöld verða 4 fræðslu- myndir. Sú fyrsta nefnist „Reiki- stjarnan Venus" og fjallar um rannsóknir sem Bandaríkjamenn hafa hafið á gufuhvolfi Venusar og yfirborði stjörnunnar. Tvö geimskip hafa verið send til Venusar og eiga þau að koma þangað í desember í ár og hefja þar rannsóknir. Önnur myndin nefnist „Lestrar- vél fyrir blinda" í henni er greint frá tilraunum sem verið er að gera með vél nokkra sem getur lesið upp úr bókum. Bókin er lögð ofan á vélina sem í er tölva sem greinir orð og gefur frá sér merki í samræmi við þau. Þannig getur vélin lesið upp úr bókum. Það er gert ráð fyrir því að ef þessar tilraunir ganga vel þá komi þessi vél á markað innan nokkurra ára. Þriðja fræðslumyndin ber nafn- ið „Vindorkan beizluð". Þar segir frá tilraunum sem verið er að gera til að beizla vindorku. Kosturinn við vindorkuna er sá, að hún er algjörlega mengunarlaus og hægt er að beizla hana til ýmissa nota, einkanlega til rafmagnsfram- leiðslu. Síðasta myndin í „Nýjasta tækni og vísindi" í kvöld nefnist „Gróðureyðing og uppblástur" og fjallar hún um vandamál sem við íslendingar eigum við að stríða. í þessu tilfelli er sagt frá áhrifum ofbeitar í Bandaríkjunum og þeirri gróðureyðingu og upp- blæstri sem víða hefur fylgt í kjölfarið. James (Christopher Timothy) og Helen (Carol Drinkwater). Sjónvarp kl. 20.55: V ofa f er á kreik „DÝRIN mín stór og smá“ eru á dagskrá sjónvarpsins í kvöld og heitir þátturinn, sem sýndur verður „Reynslan er ólygnust". Þetta er 6. þátturinn en 7 þættir eru enn eftir af þessum mynda- flokki. í þættinum í kvöld kemur Helen með veikan hund til James og vill að hann lækni hundinn og býður James Helen út með sér. Ýmsir óvæntir atburðir taka að gerast, vofa fer á kreik í nágrenninu og gerir fólk mjög skelkað og gamall sérkennilegur karl sem James kemst í kynni við stendur á því fastara en fótunum að kýrin hans hafi dáið er eldingu laust í hana. James fer að rannsaka málið en engu tauti er við karlinn komandi, hann trúir sjálfum sér betur en læknunum. Samt sem áður ná þeir sér niður á karlinum á gamansaman hátt. Þátturinn í kvöld hefst kl. 20.55 Útvarp Reykjavík A1IÐNIKUDKGUR 6. september MORGUNNINN__________________ 7.00 Veðuríregnir. Fréttir. _ 7.10 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morgunleikfimi). 7.55 Morgunbæn 8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 veðurfr. Forustugr. daghl. (útdr.). 8.30 Af ýmsu tagii Tónleikar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna< Jón frá Pálmholti byrjar að lesa nýja sögu sína „Ferðina til Sædýrasafnsins." 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til- kynningar. 9.45 Iðnaður< Umsjónarmaður< Pétur J. Eiríksson 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Kirkjutónlisti Rose Kirn leikur á orgel St. Jósefs- kirkju í Hamborg Prelúdíu og fúgu í g-moll eftir Dietrich Buxtehude, Salve Regina eftir Paul Hofhaimer og Preambulum og kanzónu eftir Heinrich Scheider mann. (Hljóðritun frá út- varpinu í Hamborg). 10.45 Er hægt að laga talgalla hjá börnum? Gísli Helgason tekur saman þáttinn. 11.00 MorguntónIeikar< Lazar Berman leikur Píanósónötu nr. 3 eftir Beethoven/ Fritz Wunderlich syngur lög eftir Schubert. Koeckert kvartett- inn leikur Strengjakvartett nr. 1 í Es-dúr op. 20 eftir Haydn. 12.00 Dagskráin. Fréttir. Til- kynningar. SÍÐDEGIÐ "" 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkvnningar. Vi inuna< Tónleikar. 15.00 ðdegissagani „Bri.Jilíufararnir“ eftir Jóhann Magnús Bjarnason Ævar R. Kvaran les (20). 15.30 Miðdegistónleikari Pál Kadosa og Sinfóníuhljóm- sveit ungverska útvarpsins leika Píanókonsert nr. 3 op. 47 eftir einleikarannt György Lehel stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorni Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Litli barnatíminn Gísli Ásgeirsson sér um tímann. 17.40 Barnalög 17.50 Er hægt að laga talgalla hjá börnum? Endurtekinn þáttur frá morgninum. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLPIÐ 19.30 Landsleikur í knatt- spyrnui íslendingar — Pól- verjar. Hermann Gunnars- son lýsir frá Laugardals- velli. 20.20 Einleikur í útvarpssah Guðríður Sigurðardóttir Icikur „Gosbrunninn“ eftir Ravel og Píanósónötu í Es-dúr „Das Levewohl“ eftir Beethoven. 20.45 Á níunda tímanum. Guðmundur Árni Stefánsson og Hjálmar Árnason sjá um þátt með blönduðu efni fyrir ungt fólk. 21.25 „Einkennilegur blómi“ Silja Aðalsteinsdóttir fjallar um fyrstu bækur nokkurra ljóðskálda sem fram komu um 1960. Annar þátturi „Þröskuldur hússins er þjöl“ eftir Arnfríði Jónatansdótt- ur. Lesarii Björg Árnadótt- ir. 21.45 Samleikur á lágfiðlu og pfanó Zoltán Toth og Szuzsa Eszto leika „La Campanella“ eftir Paganini/ Primrose og Konserttónlist eftir Enescu. 22.05 Kvöldsagani „Líf í list- um“ eftir Konstantín Stanislavskí Kári Halldór les (6). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Djassþáttur í umsjá Jóns Múla Árnason- ar. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. FIM44TUDKGUR 7. september MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morguníeikfimi). 7.55 Morgunbæn. 8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.30 Af ýmsu tagii Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnannai Jón frá Pálmholti les sögu sína „Ferðina til Sædýra- safnsins“ (2). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til- kynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Víðsjái Friðrik Páll Jóns- son fréttamaður stjórnar þættinum. 10.45 Dagvistunarheimili á vegum fyrirtækja. Þórunn Sigurðardóttir tekur saman þáttinn. 11.00 Morguntónleikari Aaron Rosand og Útvarpshljóm- sveitin í Baden Baden leika Sex húmorcskur fyrir fiðlu og hljómsveit op. 87b og op. 89 eftir Sibeliusi Tibor Szöke stj./ Josef Greindi syngur ballöður eftir Carl Loewe( Hertha Klust leikur með á píanó./ Barokk-hljómsveit Lundúna leikur „Litla sinfóníu“ fyrir blásarasveit eftir Gounodi Karl Haas stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ____________________ Á frívaktinnii Sigrún Sig- urðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.00 Miðdcgissagani „Brasilíufararnir“ eftir Jóhann Magnús Bjarnason. Ævar R. Kvaran leikari les (21). 15.30 Miðdegistónleikari Sinfóníuhljómsveit danska útvarpsins leikur í bláa hellinum", þátt úr ballettin- um „Napólí“ eftir Níels Gade< Launy Gröndahl stj. / Geza Anda og Sinfóníu- hljómsveit útvarpsins í Lundúnum leika Píanókon- sert nr. 1 eftir Béla Bartóki Ferenc Fricsay stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar: (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.10 Lagið mitti Ilelga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.50 Víðsjá. Endurtekinn þáttur frá morgni sama dags. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kvnningar. KVÖLDIÐ 19.35 Daglegt mál. Gísli Jónsson flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 Leikrit. „Dagur er lið- inn“ eftir George Shiels. Þýðandi og leikstjórii Þor- steinn Ö. Stephensen. Persónur og leikendur. John Fibbs/ Valur Gíslason, Frú Fibbs/ Guðbjörg Þor- bjarnardóttir, Peter Fibbs/ Sigurður Skúlason, Charles Daw/ Rúrik Haraldsson, Annie hjúkrunarkona/ Helga Stephensen, Læknir/ Ævar R. Kvaran, Herra Black/ Flosi ólafsson, Samson/ Sigurður Karlsson, Looney/ Þórhallur Sigurðs- son, Herra Hind/ Karl Guðmundsson. 22.30 Yeðurfregnir. Fréttir. 22.45 Áfangar. Uínsjónarmcnn. Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKÚDAGUR 6. september 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Nýjasta tækni og vísindi (L) Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 20.55 Dýrin mín stór og smá (L) Breskur myndaflokkur. 6. þáttur. Reynslan er ólygnust Efni fimmta þáttar. Að ráði Tristans ákveður James að bjóða Helen á dýran veitingastað. En það gengur síður en svo eins og best verður á kosið og James telur óvíst, að stúlk- an vilji sjá hann framar. Siegfried ákveður að selja svinin sem hann hafði bund- ið svo miklar vonir við. og verður Tristan því feginn. Hann og James fara á dansleik mcð tveimur vin- konum Tristans. En þcgar fagnaðurinn stendur sem hæst, koma Helcn og Ed- mundson kunningi hennar á vettvang, James til mikill- ar hrellingar. Þýðandi Oskar Ingimars- son. 21.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Fel- ixson. 23.20 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.