Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 264. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 174 fórust í flugslysinu á Korsíku: Talið að óveður hafi grandað þotunni Al'-símamyndir 1 Stóra myndin hér aó ofan lýsir betur því sem ekki sést, en því sem hægt er að greina, en svo gjörsamlega splundraðist júgóslavneska farþegaþotan að í flakinu er ekki einn heiílegur hlutur. Myndin var tekin úr þyrlu skömmu eftir að flakið fannst í fjallshlíðinni. Innfellda myndin var tekin er björgunarsveitir voru að fara á slysstaðinn fjórum stundum eftir að slysið varð. „Við erum Eistlendingar44 Tallin, 1. desemher. Al*. I»RATT fyrir áskorun um hálftíma allsherjarverkfall til að mótmæla 41 árs yfirráðum Sovétstjórnarinnar í Eistlandi sáust þess engin merki í dag, að athafnalíf væri ekki með eðli- legum hætti í Tallin, nema á einum stað þar sem níu manna hópur var við vegaviðgerð. Þegar erlendir fréttamenn spurðu hvort hópurinn væri að svara verkfallsáskoruninni fengust ekki önnur svör en þau að hann vantaði asfalt. Þegar mennirnir tóku aftur til við störf sín að hálf- tíma liðnum og fréttamenn bentu á að ekkert asfalt hefði borizt, var svarið: „Við erum Eistlendingar." Ekkert er vitað um viðbrögð við verkfallsboðuninni á landsbyggð- inni þar sem útlendingar mega ekki fara út fyrir borgarmörkin, en í landinu búa nú 300 þúsund Rússar og 1100 þúsund Eistlendingar. Þjóðerniskennd Eistlendinga hefur um aldir verið við brugðið, en land- ið var innlimað í Sovétríkin í samningum Hitlers og Stalíns rétt áður en síðari heimsstyrjöldin skall á. Ajaccio, 1. deaember. Al*. SÍÐLA á þriðjudagskvöld höfðu björgunarsveitir flutt þrjátíu lík með þyrlum til Ajaccio, höfuðborgar Kors- íku, en válynd veður og fádæma erf- iðar aðstæður þar sem flak júgóslavn- esku IX'-9 þotunnar dreifist yfir 1400 fermetra svæði í fjallshlíð sunnan til á eynni torvelda mjög björgunarstörf. Allir sem í þotunni voru, 168 júgó- slavneskir skemmtiferðamenn og sex flugliðar létu lífið þegar þotan rakst á fjallshlíðina sjö mínútum fvrir áætl- aða lendingu í Ajaccio. Þoka og snarpar stormhviður voru á suðurhluta Korsíku þegar þetta mesta flugslys það sem af er árinu varð í morgun. Flugstjóri þotunnar hafði tilkynnt um að hann ætti í erfiðleikum rétt áður en samband við þotuna rofnaði tíu mínútum áður en hún átti að lenda. Vegna illviðris fannst flakið ekki fyrr en fjórum stundum síðar, en um það leyti sém slysið varð heyrðu íbúar í þorpinu Casa Cas- alabriva, sem stendur við rætur fjallsins San Pietro, sprengingar. Ummerki á slysstaðnum, sem er rétt fyrir ofan þorpið, benda til þess að sprenging hafi orðið, en vart er finnanlegur heill hlutur úr þotunni. Að sögn björgunarmanna eru flest líkin óþekkjanleg. Enn er ekki vitað hverjar voru orsakir slyssins, en flest þykir Kína: 4% hagvöxt- ur 1982 Peking, 1. desember. Al*. ÞAÐ KOM fram í stefnuræðu forsæt- isráðherra Kína. Zhao Ziyangs, á Landsþingi alþýðunnar í dag að á næsta ári yrði 4% hagvöxtur í landinu. Forsætisráðherrann boðaði tiltölu- lega hægan hagvöxt framan af þess- um áratug, en sagði að um aldamótin mætti fastlega búast við því að Kín- verjar yrðu komnir í hóp þeirra þjóða heims sem byggju við þróaðan og stöðugan efnahag. A árinu 1981 hefur hagvöxtur í Kína verið 3%. benda til þess að óveðrið hafi grandað þotunni. Frönsk yfirvöld hafa sent rannsóknarnefnd á stað- inn. DC-9 þotan lagði af stað frá Ljubljana í Júgóslavíu snemma á þriðjudagsmorgun, en farþegarnir voru þátttakendur í eins dags skoð- unarferð um Korsíku, með viðkomu í húsinu þar sem Napóleon keisari var í heiminn borinn forðum tíð. í hópnum voru þrjú smábörn. Ný bandarísk skýrsla: 45% krabba- meinssjúkl- inga fá bata YVashington, 1. desomber. Al*. BANDAKÍKKA krabhameinsstofn- unin skýrði frá því í dag að sam- kvæmt nýjustu skýrslum hefðu batahorfur og líflíkur krahba- meinssjúklinga aukizt verulega. Þegar á heildina er litið fá 45% þeirra sem fá illkynjaða æxlasjúk- dóma bót mcina sinna, en lækning er það talið er fimm ár líða frá lok- um árangursríkrar meðferðar án þess að ný æxli myndist. Árið 1973 náðu 40% æxlasjúklinga heilsu á ný. Ekki eru enn öll kurl komin til grafar varðandi þær skýrslur sem hér um ræðir, en þær eru frá tímabilinu 1973—1979. Þannig er t.d. ekki búið að vinna úr skýrsl- um um að krabbamein sé algeng- ara í negrum en hörundsljósu fólki, en endanlegar upplýsingar um það atriði og einstaka æxla- sjúkdóma ættu að liggja fyrir eft- ir um það bil hálft ár, að því er Vincent Devita, forstöðumaður Bandarísku krabbameinsstofnun- arinnar, skýrði frá í dag. Hann fullyrti að vaxandi líkur á því að krabbameinssjúklingar kæmust til heilsu ættu rætur sínar að rekja til þeirra framfara sem orð- ið hefðu á sviði læknavísindanna á síðasta áratug. Genfarfundur: Rússarnir árétta samkomulagsvilja (ienf, 1. desember. Al*. EKKEKT hefur síazt út af samninga- fundum Bandaríkjamanna og Sovét- manna um takmörkun kjarnorkuvíg- búnaðar í Evrópu, cn annar samn- ingafundurinn stóð í hálfa þriðju klukkustund í dag. Næsti fundur verður á föstudaginn, en í sovézku vikuriti birtist í dag grein þar sem áréttað er að Sovétstjórnin sé reiðu- búin til að fallast á réttláta málamiðl- un. í greininni kemur fram sú skoðun að ekki megi búast við kraftaverkum en einskis megi láta ófreistað til að ná samkomulagi. Haft var eftir Joseph Luns, fram- kvæmdastjóra NATO, í dag að eng- in ástæða væri til svartsýni og góð- ar horfur væru á því að samkomu- lag næðist. Þótt ekki yrði slíkt sam- komulag í samræmi við allar óskir bandalagsii^s bæri að viðurkenna að samkomulag væri betra en ekkert, samkomulag. Framkvæmdastjór- inn kvað það skoðun sína að ræða Reagans Bandaríkjaforseta á dög- unum hefði haft „afar hvetjandi áhrif" á viðræðurnar um fækkun kjarnorkueldflauga í Evrópu. Sfmamynd AP. Shirley Williams komin á þing „Mér dettur ekki í hug að halda því fram að mér finnist Neðri mál- stofan neinn sælustaður — hún er úrelt. Þar fer of mikill tími til spill- is og þar eru of margir gamlir karl- ar. Okkur vantar fleiri konur til að koma lagi á hlutina þar,“ sagði Shirley Williams áður en hún hélt innreið sína í brezka þingið í gær sem fyrsti þingmaður hins nýja Sósíaldemókrataflokks í Bretlandi. Við þinghúsið voru fjölmargir stuðningsmenn hennar og sam- starfsmenn. David Steel, formaður Frjálslynda flokksins, sem Sósíal- demókratar eru í kosningabanda- lagi við, skaut því að Margréti Thatcher forsætisráðherra að hún hlyti að öfunda Shirley Williams af hinum frækilega kosningasigri hennar í aukakosningunum í Crosby í síðustu viku, en forsætis: ráðherrann svaraði með þjósti: „I þessari málstofu er enginn sem ég þarf að öfunda.“ Myndin hér að ofan er tekin af Shirley Williams um það bil sem hún var að ganga inn í þinghúsið og við hlið hennar eru flokksbræður hennar David Owen og Bill Rodgers.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.