Morgunblaðið - 01.04.1982, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
46
Ásgeir lék sinn fyrsta
deildarleik á árinu me0
liði Bayern IVIunchen — Atti
góðan leik og skoraði mark
„ÞETTA var fyrsti heili leikurinn sem ég leik með Bayern-
liðinu í deildarkeppninni á þessu ári. Ég byrjaði inná miðj-
unni í minni stöðu og lék við hliðina á landsliðsmanninum
Dremmler. Breitner var meiddur og því tók ég hans stöðu. Ég
er nokkuð ánægður með mína frammistöðu í leiknum. Og að
skora fallegt mark var mér mjög mikilvægt,“ sagði Ásgeir
Sigurvinsson er Mbl. spjallaði við hann í gærdag.
sjö leikir eftir í deildarkeppninni
og við eigum góða möguleika á
sigri í deildinni í ár. Þá erum við
með á tveimur öðrum vígstöðvum.
Evrópukeppni meistaraliða og þar
hef ég trú á að liðið leiki til úrslita
og svo er liðið enn í bikarkeppn-
inni hér í Þýskalandi."
Ásgeir lék allan leikinn með
Bayern er liðið vann stóran sigur,
3—0, á Núrnberg á útivelli í fyrra-
kvöld. Ásgeir fékk góða dóma í
þýsku blöðunum eftir leikinn. Þá
sagði þjálfari Bayern, Pal Csernai,
í sjónvarpsviðtali að þetta væri
einn besti sigur sem lið hans hefði
unnið í langan tíma undir hans
stjórn. Liðssamvinnan hefði verið
til mikillar fyrirmyndar, og góð og
mikil yfirferð hjá öllum leik-
mönnum liðsins. Þetta þykja góð
ummæli þegar þess er gætt að
tvær af stærstu stjörnum v-þýskr-
ar knattspyrnu, þeir Breitner og
Rummenigge, léku ekki með liðinu
vegna meiðsla. Breitner meiddist
litilsháttar er hann lék með þýska
landsliðinu í Argentínu á dögun-
um, en Rummenigge fór ekki í þá
ferð vegna meiðsla sem hann
hlaut fyrir nokkru og er hann ekki
enn búinn að ná sér. Sá sem kom
inn fyrir Rummenigge heitir
Gunter Guttler og var hann ekki
síðri en Rummenigge í stöðu
miðherja og skoraði tvö mörk í
leiknum. En það er með hann eins
og Ásgeir að hann hefur fá tæki-
færi fengið til að spreyta sig með
liði Bayern á keppnistímabilinu.
Erfitt aö leika meö
fullum styrkleika
eftir langa hvíld
„Það er erfitt að koma svona inn
í leik eftir langa hvíld og leika á
fullum styrkleika," sagði Ásgeir
Sigurvinsson.
„Eg var þó búinn að leika tvo
æfingaleiki með liðinu í síðustu
viku og þá tókst mér að skora
mark og standa mig vel. Ég hef
lítið fengið að vera með á árinu,
varla fengið að koma inná í leikj-
um. Það er því dálítið tauga-
trekkjandi að fá svona tækifæri,
þar sem maður verður bókstaflega
að standa sig, og sýna fullan
styrkleika."
Fór einn í gegn
frá miöju og skoraði
„Þetta var ágætt mark sem ég
Pal Csernai, þjálfari Bayern Miinc-
hen, var mjög ánægður með sigur
liðsins í fyrrakvöld, ekki síst i Ijósi
þess að tvær skærustu stjörnur liðs-
ins léku ekki með, þeir Paul Breitn-
er og Karl-Heinz Rummenigge.
skoraði. Ég fékk boltann á miðj-
unni og óð á fullri ferð upp völl-
inn, fór í gegn um vörnina inn í
vítateiginn og af um 12 metra færi
náði ég góðu skoti og gat skorað.
Þetta var mikilvægt mark fyrir
okkur. Næsti leikur okkar í deild-
inni verður gegn Köln á laugar-
daginn og er ég jafnvel að gera
mér vonir um að ég fái að leika
með liðinu þar. Ef við vinnum
þann leik höfum við skotið þeim
vel aftur fyrir okkur. Það eru bara
Hefur ekki slopp-
iö viö meiösli
„Það hefur háð mér nokkuð að
ég hef ekki sloppið við meiðsli. Ég
hef að undanförnu átt við þrálát
meiðsli að stríða í nára. Verið illa
tognaður. Þrátt fyrir að hafa verið
í meðferð í rúman mánaðartíma
er ég enn ekki orðinn góður. Ég
var sprautaður fyrir leikinn í gær
en í dag finn ég töluvert til þegar
ég geng. Vonandi er þetta ekki al-
varlegt."
Ræöi viö þá málin fái
ég ekki aö leika meira
„Ég hef fullan hug á því að vera
hér áfram hjá Bayern. Það er að
segja eins og málin standa í dag.
En það er mjög hvekkjandi að fá
ekki að leika meira með liðinu.
Lagist það ekki þá mun ég taka
málið upp við stjórnina og ræða
málin alvarlega. Ég ætla mér ekki
að hanga hér yfir engu, það er al-
veg ljóst. En ég þarf að fá að vita
hvað stjórnin segir um málin. Nú,
svo verður maður bara að bíða og
vona að maður fái fleiri tækifæri
en til þessa,“ sagði Ásgeir.
- ÞR
Hér hefur Ásgeir meiðst í leik með Bayern, en hann hefur átt við þrálát
meiðsl að stríða i vetur.
Torfi valinn besti
leikmaðurinn í körfunni
af þjálfurum liðanna
í LOKAHÓFI KKÍ sem haldið var
fóstud. 26/3 fengu eftirtaldir leik-
menn viðurkenningar:
1. Besti íslenski leikmaðurinn, valinn af þjálf
ara:
1. Torfi MaKnússon Val.
2. Símon Ölafsson Fram.
3. Jónas Jóhannesson UMFN.
2. Besti erlendi leikmaðurinn, valinn af liðstjóra:
1. Valray Bracey Fram.
2. Danny Shouse UMFN.
3. Patrik Bock ÍS.
3. Besti leikmaður I. deildar kvenna, valinn af
þjálfara.
1. Fmelía SÍKurðardóttir KR.
2. Linda Jónsdóttir KR.
3.-4. Guðríður Ólafsdóttir ÍS.
3.-4. Kristjana Hrafnkelsdóttir UMFL.
4. Besti dómari, valinn af fyrirliða:
1. Jón Otti Ólafsson.
2. Siffurður Valur Halldórsson.
3.-4. Kristbjörn Albertsson.
3.-4. Hörður Tulinius.
5. Stigahaesti leikmaður úrvalsdeildar:
stiff
1. Símon Olafsson Fram 393
2. Torfi Magnússon Val 339
3. Valur Ingim.son UMFN 336
6. Besta vítanýting í úrvalsdeild:
1. Jón Siþfurðsson KR 120/94 78,33%
2. Kristinn Jörundsson ÍR 67/51 76,12%
3. Kristján Átfústsson Val 86/65 75,58%
7. Prúðasti leikmaður úrvalsdeildar:
1. Jónas Jóhannsson.
2. Símon Ólafsson.
3. Jón Steinjtrímsson.
8. Stigahvsti leikmaður I. deildar kvenna:
stig
1. Emelía SÍKurðardóttir KR 262
2. Linda Jónsdóttir KR 254
3. Guðríður Ólafsdóttir ÍS 159
9. Besta vítanýtinj; í 1. deild kvenna:
1. Guðný Eiríksdóttir ÍS 46/30 65,22%
2. Guðríður Ólafsdóttir ÍS 80/43 53,75%
3. Emelía SÍR.dóttir KR 113/60 53,10%
Ásgeir skoraði sitt fyrsU mark í mikilvægum kik fyrir Bayern í fyrrakvöld.
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Bráóabaninn
afnuminn
Reykjavíkurmótið i knattspyrnu
hefst á laugardaginn með viðureign
Víkings og KR. Fer leikurinn fram
að venju á Melavellinum og hefst
hann klukkan 14.00. Næsti leikur er
svo á mánudaginn klukkan 18.30, er
Ármann og Reykjavíkumeistarar
Fylkis mætast.
Að þessu sinni verður „bráða-
baninn" svokallaði ekki þáttur í
móti þessu, en hann var með til
reynslu í fyrra. Hins vegar er sú
regla enn í fullu gildi, að þau lið
sem skora 3 mörk eða meira í leik
fá aukastig.
Þá má geta þess, að í fyrsta
skipti verður Reykjavíkurmót
utanhúss í kvennaknattspyrnu,
enda á þessi íþróttagrein vaxandi
vinsældum að fagna hjá kvenfólk-
inu. Fyrsti leikurinn í mótinu fer
fram fimmtudaginn 22. apríl og
eigast þá við Valur og Leiknir.
Leikir þessa móts fara einnig
fram á Melavellinum.
1450 leikir á
landsmótunum
í knattspyrnu
í NÝLEGU fréttabréfi frá Knatt-
spyrnusambandi íslands kemur
fram að mótanefnd sambandsins
standi i stórræðum þessa dagana,
enda hefur þátttaka á íslandsmótun-
um aldrei verið meiri. Þrjár deildir
hafa bæst við, 4. deild karla, 2. deild
kvenna og gamlingjadeild, eða „old
boys“ eins og þeir kalla sig. Ef yngri
lið eru meðtalin, hafa alls 351 lið
tilkynnt þátttöku sína í landsmótin.
Leikir verða alls 1450, miklu fleiri
en nokkru sinni fyrr.
í Bandaríkjunum tíðkast sá furðu-
legi siður meðal körfuknattleiks-
kappa, að sigri er fagnað m.a. með
því að leikmaður úr sigurliðinu príl-
ar upp í spjaldið og rífur netið frá
hringnum. Á meðfylgjandi mynd er
eitt körfutröllið búið að vinna ódæð-
ið og varpa netinu niður til félaga
sinna. Hætt er við því að siður þessi
yrði ekki vel séður hér á landi.
Öldungamót
í norrænum
greinum
SKÍDARÁÐ Siglufjarðar hefur tekið
að sér að sjá um Óldungamót 1982,
sem samkvæmt mótaskrá SKÍ mun
fara fram laugardaginn 3. og sunnu-
daginn 4. apríl nk. að Hóli, Siglu-
firði.
Keppt verður í göngu á laugar-
dag, en stökki á sunnudag.
Aldursflokkaskipting er þannig,
að keppt verður í flokki 35—45 ára
(fæddir 1937—1946) og flokki 46
ára og eldri (fæddir 1936 og fyrr).
Keppt verður í karlaflokki í báð-
um aldursflokkum og er þátttaka
öllum heimil, nema þeim er tekið
hafa þátt í bikarkeppni SKÍ 1982.