Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 51. tbl. 71. árg. FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Borgarastríðið í Líbanon: Franska gæsluliðið verður kallað heim Ekkert látið uppskátt um viðræður Gemayels og Assads Beirúl, París og Tel Aviv, 1. mars. Al*. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ í París sendi í dag frá sér til- kynningu þar sem sagði að Frakkar litu svo á að þeir hefðu lokið hlutverki sínu í Beirút og gaf til kynna að 1200 manna friðargæslulið Frakka í Beirút yrði kallað heim innan skamms. Yfirlýsingin var birt í fram- haldi af því að Sovétmenn beittu neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að hindra að tillaga Frakka um að samtökin sendu gæslulið sitt til Líbanons næði fram að ganga. Fyrr í vikunni voru síðustu friðargæsluliðar Bandaríkja- manna og ítala fluttir brott frá Beirút, þar sem þeir höfðu verið í hálft annað ár. Heimildamenn AP segja það skoðun frönsku stjórnarinnar að ástæðan fyrir því að Sovétmenn lögðust gegn þvi að gæslulið SÞ kæmi til Líbanons hafi verið sú að þeir hafi talið það styrkja stöðu Amin Gemayels forseta á sama tíma og Sýrlendingar, sem Sovétmenn styðja, eru taldir vera að ná tökum á honum. Gemayel fór frá Damaskus í dag og vildi ekkert láta hafa eft- ir sér um niðurstöður tveggja daga viðræðna sinna við Hafez Assad Sýrlandsforseta. Walid Jumblatt leiðtogi drúsa, sem notið hafa stuðnings Sýrlendinga, sagði í Beirút að þótt samkomulag tækist með Gemayel og Assad breytti það engu um kröfu drúsa að Gem- ayel yrði leiddur fyrir rétt, ákærður fyrir glæpi gegn al- menningi. Símamynd AP. Amin Gemayel forseti Líbanons á öðrum degi heimsóknar sinnar til Damaskus þar sem hann hefur átt viðræður við Hafez Assad Sýrlands- forseta um borgarastríðið í Líbanon. Sovétmenn smíða lang- drægar kaf- bátaflaugar \Va.shington, 1. mars. Al*. LEYNIbJÓNUSTA bandaríska sjó- hersins staðhæfir að Sovétmenn hafi nær lokið smíði njrra langdrægra stýri- flauga og verið sé að prófa eina gcrð þeirra með það í huga að þeim verði komið fyrir í kafbátum nálægt strönd- um Bandaríkjanna. „Staðsetning þessara langdrægu eldflauga, sem hugsaðar eru til árása á stöðvar í landi, í kafbátum fyrir utan strönd Bandaríkjanna kann að verða eitt af viðbrögðum Sovétmanna við meðaldrægu eld- flaugunum á meginlandi Evrópu," sagði John L. Butts aðmíráll. Butts, sem veitir leyniþjónustu sjóhersins forstöðu, sagði að hin nýja sovéska stýriflaug væri af gerð- inni SS-NX-21 og hægt yrði að skjóta henni frá kafbátum að skot- mörkum í allt að þrjú þúsund kíló- metra fjarlægð. Butts sagði að sennilega yrði flaugin tilbúin á þessu ári. Austur-þýska fjölskyldan í Prag: Fer líklega til Vestur- Þýskalands l*rag, I. mars. AP. FRÆNKA Willi Stophs, forsætis- ráðherra Austur-Þýskalands, og fjölskylda hennar, sem flúðu í scndiráð Vestur-I'jóðvcrja í Prag fyrir sex dögum og báðust hælis í Vestur-Þýskalandi, yfírgáfu sendi- ráðsbygginguna í morgun og sneru aftur heim til Austur-Þýskalands. Heimildamenn AP-fréttastofunnar segja að samkomulag hafi náöst bak við tjöldin um að heimila fjöl- skyldunni að flytjast vestur fyrir járntjald. Fjölskyldan hafði áður neitað að snúa aftur til Austur-Þýska- lands nema tryggt yrði að hún fengi að fara þaðan til Vestur- Þýskalands. Auk Ingrid Berg, sem er frænka Stophs, er um að ræða mann hennar Dieter, börn þeirra tvö, 7 og 3 ára gömul, og móður Dieters. Undanfarna daga hafa hátt- settir embættismenn í Austur- og Vestur-Þýskalandi átt viðræð- ur um mál fjölskyldunnar, en ekkert hefur verið látið uppskátt um niðurstöður þeirra. Opinbera fréttastofan í Austur-Þýskalandi hefur farið hörðum orðum um Dieter Berg og m.a. staðhæft að hann sé afbrotamaður. Þá hefur verið birt yfirlýsing frá forsæt- isráðherranum þar sem hann segist engin tengsl hafa við Berg-fjölskylduna, en neitar því hins vegar ekki að Ingrid Berg sé frænka sín. Landamærayfirvöld í Vestur- Þýskalandi segja að að undan- förnu hafi æ fleiri Austur-Þjóð- verjar fengið leyfi til að flytjast úr landi, og á síðustu tveimur dögum hafi 126 Austur-Þjóðverj- ar flust til Bæjaralands eins. Heimildamenn AP telja að austur-þýskum útflytendum muni halda áfram að fjölga á þessu ári. Að meðaltali fá um tíu þúsund manns að flytjast á ári hverju frá kommúnistaríkjunum til Vesturlanda. 50 óbreyttir borgarar létu lífið og 225 særðust þegar íraskar eldflaugar lentu á íbúahverfi í borginni Khorramabad í fran fyrir nokkrum dögum. Myndin sýnir björgunarstarf eftir árásina. símamynd Al\ Ekkert lát á stríðsrekstrinum við Persaflóa: íranir segjast hafa fellt 1300 óvinahermenn Nikósíu, I. mars. AP. HERIR írana og íraka háðu í dag harða bardaga í lofti og á landi aust- ur af borginni Basra. Íranir segjast hafa fellt 1300 hermenn í þessum átökum og tekið marga höndum. Útvarpið í Bagdad sagði að ír- aski flugherinn og sióherinn hefði haft í fullu tré við Irani í þessum átökum, og þeir hafi að auki ráðist á og sökkt sjö herbátum, sem voru á siglingu til Bandar Khomeini í norðausturhluta Persaflóa. Ennfremur sagði útvarpið að í loftorrustu austur af Basra hefðu þrjár íranskar herflugvélar og þrjár herþyrlur verið skotnar niður. írakar höfðu fyrr viðurkennt að innrásarher írana hefði náð fót- festu í landinu, en segja nú að þeir hafi umkringt hann og hann verði „þurrkaður út.“ Leitin að óþekkta kafbátnum: Froskmaður sást á eyju við Karlskrona Stokkhólmi, 1. mars. AP. SÆNSKI herinn staðfesti í fyrsta sinn í dag að sést hefði til útlends froskmanns á Aspo-eyju rétt fyrir utan Karlskrona, þar sem sjóher- inn, sem þar hefur bækistöðvar, hefur undanfarnar þrjár vikur leit- að að óþekktum kafbáti. „Froskmaðurinn hvarf í sjóinn fyrir utan girðinguna sem um- lykur flotastöðina, og hefur ekki sést til hans síðan," sagði H.G. Wessberg, talsmaður sænska varnarmálaráðuneytisins, en vildi ekki ekki gefa neinar frek- ari upplýsingar. Fram að þessu hafa sænsk hernaðaryfirvöld aðeins gefið til kynna að þau væru jafnt á hött- unum eftir óþekktum frosk- mönnum sem dvergkafbátum í sjónum fyrir utan Karlskrona, en tilkynningin í dag er fyrsta staðfesting þessa efnis. Aspo er ein af þremur eyjum í eyjaklasanum rétt fyrir utan Karlskrona. Vitað er að sænski herinn hefur varpað djúp- sprengjum í sjóinn umhverfis eyjarnar, en fréttir um að hand- sprengju hafi verið varpað á Aspo hafa ekki fengist staðfest- ar. Sænskir lögreglumenn vopnaðir skammbyssum sjá um að cnginn úr óþekkta kafbátnum geti flúið landleiðina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.