Morgunblaðið - 14.08.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985
53
„Erum ekki búnir
ad gefa Pétri leyfi
til að leika með IA“
— segir forseti belgíska félagsins Antwerpen
„ÉG VEIT persónulega um þrjú félög sem hafa áhuga á því aö fá
Pétur Pétursson í sínar raöir. Þaö eru DUsseldorf í V-Þýskalandi og
Sevilla og Cadiz á Spáni. Pétur er mjög góöur knattspyrnumaöur
og viö viljum gjarnan hafa hann áfram hjá Antwerpen en hann vill
ekki taka tilboöi okkar, þykir þaö vera of lágt. Ég veit ekki hvaö
veröur ofan á í máli hans en hann er samningsbundinn félaginu og
gerir ekkert nema meö fullu samþykki stjórnar Antwerpen. Við
erum ekki búnir að gefa honum leyfi til þess aö leika meö Akra-
nes-liöinu,“ sagöi forseti Antwerpen er Morgunblaöiö spjallaöi viö
hann í gærdag.
Pétur Pétursson hefur í hyggju
aö ganga til liðs viö sitt gamla
félag, ÍA, og leika meö því síö-
ustu leikina í íslandsmótinu til aö
komast í betri leikæfingu áöur en
hann skiptir um félag. Þá telur
hann aö leiki hann Evrópuleikinn
meö Akranesi gegn Aberdeen
veröi hann í sviðsljósinu á megin-
landinu og nái þá jafnvel góöum
samningum viö eitthvert af þeim
félögum sem vilja fá hann til sín.
Aö sögn forseta Antwerpen
hefur formaöur Knattspyrnuráös
ÍA, Haraldur Sturlaugsson, ekk-
ert haft samband viö hann út af
máli Péturs. Hann segir þaö frek-
ar ólíklegt að Pétur fái leyfi til aö
leika meö Akranes-liöinu. Hann
sé samningsbundinn Antwerpen
og þeir hafi fjárfest í honum og
láti hann ekki frá félaginu nema
gegn greiðslu.
„Nái Pétur einhverjum hag-
stæðum samningi getur hann
fariö strax frá Ántwerpen. Viö
stöndum ekki í vegi fyrir því. En
aö sjálfsögöu viljum viö fá
greiöslu fyrir hann. Og hún er
ekki ósanngjörn, þessi mál munu
skýrast á næstu dögum. Pétur á
aö hafa samband viö mig í viku-
lokin, þá veröa málin rædd,“
sagöi Eddy Wauters forseti
Antwerpen.
• Pétur Pétursson
Vries ekki
hjá Antwerpen
í SAMTALI viö ritara Antwerpen
í g»r, liös Péturs Péturssonar,
kom fram aö Louis de Vries,
sem DV taldi vera fram-
kvæmdastjóra liösins, er hættur
störfum hjá félaginu fyrir 6
mánuöum.
Hann er nú kominn til einka-
fyrirtækis og starfar þar og er
ekkert viöriöinn Antwerpen.
„Ekki tímabært
að tjá sig“
nÉG TEL þaö ekki tímabært aö
tjá mig neitt um mál Péturs á
þessu stigi. Viö í knattspyrnu-
ráöi ÍA höfum ekki enn sett
okkur í samband viö stjórn
Antwerpen vegna félagaskipta.
Þessi mál munu skýrast á
næstu vikum og þá mun koma í
Ijós hvaöa stefnu málið tekur og
hvort Pétur leikur meö ÍA eöur
ei,“ sagöi Haraldur Sturlaugs-
son, formaður knattspyrnuráðs
ÍA, i spjalli viö Morgunblaöiö i
gærkvöldi.
• Sigurvegarar í opna OLÍS-BP-mótinu i golfi sem fram fór á Grafar-
holtsvelli um helgina. 162 kylfingar tóku þátt í mótinu og er þetta eitt
fjölmennasta tveggja daga mót sem haldiö hefur veriö.
UBK tryggði stöðu sína
— Breiðablik BREIDABLIK tryggöi enn frekar stöðu sína á toppi 2. deildar í knattspyrnu er þeir sigruðu ís- firóinga meö þremur mörkum gegn engu. Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Breiöablik. Breiöablik hefur nú hlotiö 27 stig í deildinni eftir 13 leiki og stefna þeir hraó- byri aö sigri í deildinni. Mikil barátta var í leiknum fram- an af og var ekki mikiö um mark- tækifæri. Þó skall hurö nærri hæl- um er tvisvar var bjargaö á línu hjá sigraði ÍBÍ 3—0 Isfiröingum, í fyrra skiptið bjargaöi Kristinn Kristjánsson skoti frá Þorsteini Hilmarssyni og siöan bjargaöi Benedikt Einarsson hörkuskalla frá Heiöari Heiöars- syni. Jón Þórir skoraði fyrsta mark leiksins á 26. mín. ísfiröingar fengu aukaspyrnu við vítateig Breiða- bliks. Geröu þeir mikil mistök er þeir ætluöu aö renna út á einn samherjann, er Bliki komst á milli, sendi knöttinn fram á Jón Þóri sem var viö miölínu vallarins, hann óö í gærkvöldi upp völlinn, lék á einn varnarmann og skaut föstu skoti frá vítateig sem rataöi beint í netið upp undir þverslána og inn, algjörlega óverj- andi. Þetta var áttunda mark hans í 2. deild. ísfiröingar voru svo nærri aö jafna er Guömundur Jóhannsson átti skalla rétt framhjá. j seinni hálfleik sóttu Isfiröingar meira án þess aö skapa sér veru- leg marktækifæri. Á 68. min. geröu svo Blikarnir sitt annaö mark og kom þaö úr þvögu og var þaö
Tveir reknir af velli
Fylkir sigraði Skallagrím 2—1
FYLKIR sigraöi liö Skallagríms
2—1 í gærkvöldi í íslandsmótinu í
knattspyrnu 2. deild. í hálfleik var
staóan 1—1. Fyrsta mark leiksins
skoraði Gunnar Orrason fyrir
Skallagrím. Óskar Theódórsson
jafnaöi síðan fyrir Fylki eftir góöa
sendingu frá Antoni Jakobssyni.
Óskar vippaði boltanum laglega
yfir úthlaupandi markvöró
Skallagríms. Var það laglega
gert.
Þegar sjö mínútur voru til
leiksloka skoruðu Fylkismenn
sigurmark leiksins. Þar var að
verki Kristinn Guömundsson,
sem skoraöi með góöu skoti frá
vítateigslínu. Leikur liöanna var
þokkalega vel leikinn af hálfu
beggja aðila en sanngjörn úrslit
heföu veriö jafntefli. Besti maöur
FH — VALUR
Kaplakrikavelli
Miövikudaginn 14. ágúst kl. 19.00.
vallarins var Kristján Guó-
mundsson, Fylki. En bæöi liðin
sýndu góöa baráttu og oft brá
fyrir góðum leikköflum.
Tveimur leikmönnum var var
vísaö af velli, fengu rautt spjald.
Þaö voru þeir Valur Ragnarsson
Fylki og Gunnar Orrason Skalla-
grími.
Missagt var í umfjöllun um leik
Fylkis og KS í blaðinu í gær aö
KS-menn hefóu gert sjálfsmark,
en þaö rétta er aö Kristinn Guö-
mundsson skoraöi fyrir Fylki,
FH — Valur í kvöld
TVEIR leikir fara fram í 1. deild
karla í kvöld. FH og Valur leika á
Kaplakrika og Þróttur og Akranes
leika á Laugardalsvelli. Báóir
leikirnir hefjast kl. 19.00.
Tveir leikir veröa í 2. deild, Leift-
ur og IBV leika á Ólafsfiröi, KS og
Völsungur á Húsavík. i 3. deild
veröa fimm leikir. I A-riöli leika
Selfoss og Stjarnan á Selfossi, i
B-riöli leika Leiknir og Magni á
Fáskrúðsfirði, Þróttur og Tinda-
stóll á Neskaupstaö, Valur og HSÞ
á Reyöarfiröi og Einherji og Austri
á Vopnafiröi. Allir ieikirnir hefjast
kl. 19.00. Einnig fara fram úrslit í 4.
deild.
hann var líka sagóur hafa fengiö
gult spjald, en þaö er ekki rétt.
Breiöablik
vann FH
TVEIR leikir fóru fram í íslands-
mótinu í handknattleik utanhúss í
gærkvöldi. Valur sigraöi Ármann
29—18 eftir aó staöan í hálfleik
hafði verið 12—5. Þá sigraöi liö
Breiðabliks íslandsmeistara FH
meö 23 mörkum gegn 20.
Flest mörk Vals í gær skoraöi
Jakob Sigurösson, 5, Einar Vil-
bergsson skoraði 8 fyrir Ármann.
Þorgils Óttar skoraöi flest mörk
FH, 9, talsins en Alexander Þóris-
son flest mörk UBK, 5.
Þorsteinn Hilmarsson sem skor-
aöi, þvert á gang leiksins.
Eftir markið var allur vindur úr
ísfiröingum og fóru Blikar aö
sækja meira gegn sterkum vindin-
um.
Þriöja og síöasta markiö kom
svo er þrjár mín. voru til leiksloka.
Þaö var vel aö því staöiö, Guö-
mundur Guömundsson lék upp aö
endamörkum, gaf vel fyrir markiö
og þar kom Þorsteinn Hilmarsson
á fullri ferö og skoraði af stuttu
færi sitt annaö mark.
Hákon Gunnarsson var svo ná-
lægt því aö skora er ein mínúta var
til leiksloka, er hann haföi einleikiö
upp völlinn og gott skot hans fór
rétt framhjá.
Blikarnir unnu sanngjarnan sig-
ur í þessum leik, þeir voru mun
ákveönari. Bestu menn þeirra voru
Þorsteinn Hilmarsson, Jón Þórir
Jónsson og Guömundur Baldurs-
son.
Hjá ísfiröingum vantaöi allan
vilja til aö sigra í leiknum og er
áhugaleysi i liöinu og ekki von aö
þeir vinni leik meö þessu áfram-
haldi. Ekki er hægt aö nefna neinn
leikmann sem stóö upp úr hjá
þeim.
— VBJ