Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 LANDSFUNDUR ALÞYÐUBANDALAGSINS: t AF INNLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND S. HERMANNSSON Kjör Olafs Ragnars Grímssonar sem formanns Alþýðubandalagsins: Merkileg tímamót eða miUikafli? „EIN merkilegustu tímamót sem orðið hafa í Alþýðubandalaginu." Þannig lýsti einn flokksmaður formannskjörinu á landsfundi flokksins eftir að Ólafur Ragnar Grimsson hafði borið sigurorð af Sigriði Stef- ánsdóttur með 60% atkvæða. Stuðningsmenn Ölafs kunnu sér varla læti og hugsuðu sér gott til glóðarinnar að nýta þessi nýfengnu áhrif sin innan flokksins en fram að þvi hafði sá hópur verið vanari að verða undir i glímunni við „flokkseigendafélagið“ svokallaða sem ekki hefur fyrr misst tökin á flokknum i 50 ár, eins og einn Ólafsmaður komst að orði. Eftir formannskosninguna lögðu báðir hópar á það áherslu í orði að sameinast um úrslitin og fylkja sér á bak við Ólaf Ragnar Grímsson í formannssætið. Ýmsir voru þó efíns um að hugur fylgdi máli hjá öllum, og höfðu til marks um það hörð við- brögð Svavars Gestssonar fráfarandi formanns flokksins eftir fund í Al- þýðubandalaginu í Reykjavík þar sem fuiltrúar á landsfund voru að mestum hluta valdir úr hópi stuðn- ingsmanna Ólafs Ragnars, og ræðu hans í upphafi landsfundarins. Einn- ig reiðikast Hjörleifs Guttormssonar alþingismanns sem hófst með harð- yrtri ræðu klukkutíma fyrir kosning- una á laugardaginum og endaði með því að Hjörleifur neitaði að taka í hendina á nýja formanninum þótt hann leitaði eftir því og mætti síðan ekki á fundinn eftir hádegi á laugar- dag með þeim ummælum að hann vildi ekki taka þátt í fagnaðarlátun- um j kringum Ölaf Ragnar. A landsfundarfagnaði Alþýðu- bandalagsins á laugardagskvöldið var einnig ljóst að „flokkseigendafé- lagið" hafði ekki jafnað sig því þar mættu nær engir af gömlu forustu- mönnum fiokksins. Hinsvegar kom Sigríður Stefánsdóttir þangað og var hrókur alls fagnaðar, og það var mál manna að hún hefði með því, svo og ræðu sinni eftir að úrslit formanns- kjörsins lágu fyrir, áunnið sér óskoraða virðingu flokksmanna. Sigri fagnað of snemma Það sást síðan í kjöri fulltrúa í framkvæmdastjóm að Ólafsmenn höfðu fagnað sigri of snemma. Kjöri í stjóm og framkvæmdastjóm flokksins var frestað fram á sunnu- dagsmorgun, þar sem Iq'ömefnd gekk iila að ná samkomulagi um uppstillingu. Á endanum náðist þó samkomulag um embætti vara- formanns, gjaldkera og ritara, sem allir vom stuðningsmenn Ólafs Ragnars, en á lista uppstillingar- nefndar vom fjórir andstæðingar Ólafs, Álfheiður Ingadóttir, Ás- mundur Stefánsson, Guðrún Ágústsdóttir og Siguijón Péturs- son; þrír Ólafsmenn, Kristín Á. Ólafsdóttir, Margrét S. Bjömsdóttir og Össur Skarphéðinsson, og auk þess vom á listanum Óttarr Proppé og Þröstur Ólafsson sem sett var samasemmerki við. Tillögur komu síðan um fleiri, bæði vegna þess að allt þetta fólk er úr Reykjavík og eins töldu sum- ir vanta fulltrúa ýmissa hópa og hagsmuna. Því bættust við nöfn Bimu Þórðardóttur, Stefaníu Traustadóttur, Ármanns Ægis Magnússonar, Bergljótar Krisljáns- dóttur og Kristins H. Einarssonar. Það kom síðan í ljós við kjörið að stuðningsmenn Ólafs Ragnars í hópi landsfundarfulltrúa höfðu ekki tekið daginn snemma. Þannig vant- aði 21 fuiltrúa úr Reykjavík og varð að fara aftur í 80. varafulitrúa til að fylla töluna. Einnig vantaði mikið af aðalfulltrúum Reyknes- inga. Niðurstaðan úr kjörinu varð sú að fulltrúar gömlu flokksstjómar- innar urðu í efstu sætunum. Auk þess Jcomst Stefanía Traustadóttir inn. Ólafur Ragnar fékk aðeins tvo ömgga stuðningsmenn sína inn, Kristínu og Armann Ægi. Margrét, Össur og Þröstur Ólafsson féllu en talað var um að Þröstur hefði verið formannskandidat í nefndinni. Mikla athygli vakti að Bima Þórð- ardóttir náði kjöri inn í fram- kvæmdastjómina. Samkomulag brotíð? Stuðningsmenn Ólafs töldu að með þessari kosningu hefði hinn armurinn brotið samkomulag sem gert var í uppstillinganefnd, þeir hefðu hinsvegar staðið við sitt og upp til hópa kosið Ásmund, Álfheiði og Guðrúnu. Hinir sögðu að þennan morgun hefði landsfundurinn verið allt öðmvísi skipaður en morguninn áður þegar formaðurinn var kosinn og nýju fulltrúamir hefðu kosið þá sem þeir treystu best. Auk þess sýndi þetta hveijir það væm sem hefðu áhuga á að starfa í flokknum; þeir sem ekki mættu hefðu aðeins verið fengnir til að kjósa Ólaf Ragn- ar sem formann en höfðu síðan engan áhuga á frekara starfí á fundinum. Ólafsmenn bmgðust við á þann hátt að hringja í þá sem ekki mættu um morguninn og stefna þeim ú varamannakjörið til framkvæmda- stjómar. í því þóttust þeir síðan hafa fengið 4-5 af 6 fulltrúum. Einnig töldu þeir sig hafa fengið allt að 70% af 40 fulltrúum sem kosnir vom í miðstjóm flokksins, en fyrir þá kosningu útbjuggu báð- ir armar nafíialista. Á lista Ólafs- manna var sérstök áhersla lögð á að tryggja Össuri Skarphéðinssyni góða kosningu til að vega upp á móti því að hann var felldur úr framkvæmdastjóminni. Vegasalt í fram- kvæmdastjórninni Eftir þessa kosningu er vafamál hvort Ólafur Ragnar og hans stuðn- ingsmenn hafa meirihluta innan framkvæmdastjómarinnar. í hans hóp em taldir stjómarmennimir þrír auk hans sjálfs, tveir þeirra sem kosnir vom á fundinum, fulltrúi' æskulýðsfylkingarinnar og einn af þremur þingmönnum sem þing- Lít á mig sem formann alls AJþýðubandalagsins - segir Ölafur Ragnar Grímsson „ÞESSI landsfundur staðfesti eindreginn vi^ja til þess að Al- þýðubandalagið verði róttækur og breiður flokkur íslenskra vinstrimanna sem ætli sér að hafa afgerandi áhrif á stjóm og mótun þjóðfélagsins," sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins eftir lands- fund flokksins um helgina. „Kosningar um formann og að- dragandi þeirra og síðan kosn- ingamar á landsfundinum sjálfum sýndu mjög opin og lýð- ræðisleg vinnubrögð sem em dálítið óvenjuleg í íslenskum stjóramálum en veita okkur um leið mikinn styrk þegar niður- staðan var jafn afgerandi. Og þótt menn hafi eðlilega skipst í hópa eftir því hvort formanns- efnið þeir studdu þá var alveg ljóst að þegar upp var staðið frá landsfundinum þá vom menn ekki Iengur ekki Sigríðarmenn eða Ólafsmenn heldur Alþýðu- bandalagsmenn og ég lít á mig sem formann Aiþýðubandalags- ins alls,“ sagði Ólafur ennfrem- ur. Ólafur bætti við að ef skoðuð væri sú upplausn sem ríkir í íslensk- um þjóðmálum um þessar mundir, óeining innan ríkisstjómarinnar og marklaus stefnu í efnahagsmálum ásamt vaxandi erfiðleikum í efna- hagsmálum heimsins og þar á meðal íslendinga, væri alveg ljóst að brýn þörf væri fyrir lyðræðisleg- an og róttækan vinstriflokk við slíkar aðstæður. „Alþýðubandalagið er staðráðið í því að taka við því hlutverki og bjóða til liðs þúsundum vinstrimanna sem beðið hafa eftir að tekið yrði af skarið í þeim efn- um.“ sagði Ólafur. —Ertu með þessu að segja að Alþýðubandalagið sé orðið róttæk- ara nú en áður? „Það er með afdráttarlausari stefnu, skýrari framtíðarsýn og reiðubúið að taka á ýmsum höfuð- vandamálum sem hér hafa verið í íslensku efnahagslífí og atvinnulífí og leggja mikla áherslu á baráttu- mál launafólks og jafnréttismál og í þeim efnum róttækari og afdrátt- arlausari flokkun en jafnframt mjög eindreginn lýðræðisflokkur eins og landsfundurinn sýndi." —Nú samþykkti flokkurinn á landsfundinum rótækari verkalýðs- málastefnu en áður og ályktaði í raun gegn stefnu ASÍ? „Al|jýðubandalagið er flokkur allra íslenskra launamanna. Hann er ekki flokkur fáeinna eða ein- stakra forustumanna launafólks. Ég tel það mjög ánægjulegt að á þessum landsfundi gerðist sá at- burður að hinir ýmsu ólíku skoðana- straumar innan samtaka launafólks eiga núna allir fulltrúa í stofnunum Alþýðubandalagsins, framkvæmda- Ólafur Ragnar Grímsson stjóm og miðstjóm. Það gerir Alþýðubandalagið að miklu breiðari flokki íslenskra launamanna en áð- ur og skapar eðlilega umræðu bæði fyrir sjónarmið bæði þeirra fomstu- manna launafólks sem gegna æðstu trúnaðarstörfum þar og eins fyrir þá sem haldið hafa uppi róttækri baráttu fyrir hagsmunamálum launafólks." Sjóðir Alþýðubandalagsins: Forystuskiptin breyta engu segja Ragnar Árnason og Adda Bára Sigfúsdóttir FORYSTUSKIPTIN í Alþýðu- bandalaginu eigi ekki að breyta neinu um stjómun sjóða sem tengjast flokknum, samkvæmt upplýsingum Öddu Bára Sig- fúsdóttur, sem á sæti i stjórn Sigfúsarsjóðs og Ragnar Árna- son formann Útgáfufélags Þjóðviljans. „Útgáfufélag Þjóðviljans hefur engin formleg tengsl við Alþýðu- bandalagið," sagði Ragnar Ama- son. „Það geta allir gengið í félagið sem vilja stuðla aðútgáfu Þjóðvilj- ans, sem berst fyrir sósíalisma, þjóðfrelsi og verkalýðsmálefnum, ef þeir undirgangast að greiða árgjald sem er núna að ég held 1700 krónur. Útgáfufélagið kýs sér sjálft stjóm og skiptir engu máli í því sambandi hvort formað- ur Álþýðubandalagsins heitir Svavar, Olafur eða Sigríður." „Fráfarandi framkvæmdastjóm kaus 6 menn í stjóm Sigfúsarsjóðs til næstu fjögurra ára á síðasta eða næstsíðasta fundi sínum fyrir landsfund. Það var gert undir for- ystu þáverandi formanns stjómar- innar, Ólafs Ragnars Grímssonar og í sátt og samlyndi við hann og alla aðra,“ sagði Adda Bára Sigf- úsdóttir en sjóðurinn er kenndur við föður hennar, Sigfús Sigur- hjartarson. „Stjóm sjóðsins skipa 6 menn kosnir af framkvæmda- stjóm Alþýðubandalagsins og 3 tilnefndir af okkur systkinunum. Hlutverk sjóðsins er íið sjá hreyf- ingunni fyrir húsnæði eftir getu og stuðla á allan annan hátt að því að gera veg hennar sem mest- an. Það mun hann gera hér eftir sem hingað til,“ sagði Adda Bára Sigfúsdóttir. —Verður þá ekki um leið erfiðara að koma þessum sjónamiðum sam- an í einn farveg? „Þegar um breiða fylkingu íslensks launafólks er um að ræða verður það eðlilega mikil vinna að ná slíkri samstöðu en forsenda hennar er sú að þeir sem taka þátt í umræðunni sitji við sama borð og taki þátt í mótun stefnunnar og þegar unnið er að henni með þeim hætti verður niðurstaðan mun sterkari því enginn hefur verið úti- lokaður frá upphafí." —Sumir stuðningsmanna þinna í formannskjörinu sögðu að í raun- inni hefðu pólítískar skoðanir þínar lítið breyst frá því þú varst í Fram- sóknarflokknum en þeir treystu þér betur en öðrum til að rífa Alþýðu- bandalagið upp. „Þegar ég var I Framsóknar- flokknum var ég fyrst og fremst ungur vinstrisinni sem aðhylltist hugsjónir samvinnumanna, félags- hyggju og málstaðinn um herlaust Island. En af reynslu minni þar og annarsstaðar hef ég orðið enn sann- færðari um það að grundvallar- hugmundir jafnaðarstefnunnar og sósialismans eru það eina leiðarljós sem við getum haft við mótun þjóð- félagsins og að því leyti er ég auðvitað bæði skýrari og róttækari en ég var á þeim tíma. Ég tel mig þess vegna á margan hátt betur í stakk búinn eftir að hafa farið í gegnum þessa reynslu en ef ég hefði alltaf starfað innan vébanda Alþýðuflokksins. “ —Nú hefur nú starfað mikið að friðarmálum á alþjóðagrundvelli. Muntu snúa þér eingöngu að því að stilla til friðar í Alþýðubandalag- inu? „Ég held að niðurstaða lands- fundarins sýni að það muni ganga vel að ná friði í Alþýðubandalaginu og reynsla mín af friðarstörfum á öðrum vettvangi muni koma mér til góða þar. En hinsvegar mun ég halda áfram að sinna ýmsum verk- efíium á sviði alþjóðamála og rækta tengsl mín við þá fjölmörgu eriendu forustumenn sem ég hef kynnst náið á undanfömum árum og ég er viss um að þau tengsl eiga eftir að koma að góðum notum, ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.