Þjóðólfur - 07.10.1898, Blaðsíða 3
gipti honum systur sína. Fóru þau þá að búa á
Borg undir Eyjafjöllum, svo í Teigi í Fljótshlíð.
Svo komst ættin að Barkarstöðum og var þar í
2oö ár og hétu þar á víxl Eiríkur og Erlendur.
Svo stóð einn þeirra upp frá Einari rika Brynj-
ólfssyni í Hjálmhölti og komst undir Eyjaíjöll.
Eptir það fór ættinni að hnigna. Móðir Eiríks
gamla frá Brúnum var komin í beinan karllegg
frá ættinni. — Nú er næsti merkur bær Holt und-
ir Eyjafjötlum. Það er prestssetur. Þar bjó Þor-
geir skorargeir. Þar skammt fyrir austan er Þor-
valdseyri með stóru timburhúsi, þar býr rausnar-
maðurinn Þorvaldur Bjarnarson: hann er óefað
gestrisnasti maður á Islandi og tekur öllum jafnvel
ríkum og fátækum, útlendum og innlendum. Þar
er allt af húsfyllir nótt og dag, þar er mál-
drykkja að dögurðarborði, en að kvöldverði ó-
mælt drukkið, eins og Snorri segir að verið hafi
hjá Erlingi á Sóla; hann hefur aldrei verkað hend-
ur slnar á að taka nokkurn eyri í næturgreiða,
hvorki af innlendum né útlendum. — Nú kemur
næst að sjá Rútshelli hjá Hrútafelli, hann er fall-
egur. Þar skammt frá er drangur merkilegur á
rennsléttu túninú í Drangshlíð. Þegar svo kemur
austur fyrir neesta núp, opnast allt í einu hinn
nafnkunni og fríði Skógafoss, hann er lítið eitt
laegri en Seljalandsfoss, en miklu vatnsmeiri. Und-
ir Skógafossi á að vera gullkista Þrasa landnáms-
manns, eins og hin gamla vísa bendir til:
Þrasakista atiðug er,
undir fossi Skóga,
hver sém þangað fyrsturfer,
finnur auðlegð nóga.
Sumir hafa svo:
fífisku hefur nóga,
•og gengur það jöfnum höndum.
(Niðurl. næst).
Dalasýslu 29. sept.
Héðan er að frétta mjög votviðrasama tíð í
allt sumar, en einkum þó seinni partinn, svo hey
hröktust víða, en síðan haustið kom má heita góð
tíð. Verzlunin er hér sem víðar erfið, því þótt
kornvara hafi lækkað utanlands, þá heyrist ekki
enn þá, að hún hafi fækkað hér. Kaupmenn vor-
ir eru allt fljótari að heyra, þegar vörur hækka
ytra, en þegar þær lækka. Svo bætist nú ofan á,
að Islenzka varan er í lágu verði, svo sveitabú-
:skapurinn er f sökkvandi skuldum og mjög hættu-
lega staddur og eigi gott að finna ráð við því,
en það er samt mesta þörf. Fjármarkaðir eru að
eins byrjaðir hér, og einungis hjá Boiðeyrar-
kaupmanninum. Verð á geldum kindum er þetta
um 8 kr. 50 a. fyrir 90 ® kind; 10 kr. 50 a. fyrir
100 Hl kind og 12 kr. 65 a. fyrir 110 ® kind. A
ám er verðið mjög lágt.
í suðurhluta sýslunnar hefur verið mikil vega-
gerð á póstleiðinni í sumar, lagður vegur alla
leið frá Þorbergsstöðum suður að Tunguá eitt-
hvað 8—9 rasta langur og vandaður vel. Það
virðist sem verkstjórinn Árni Zakaríasson sé
bæði laginn og heppinn með að útvega sér dug-
lega menn í vinnuna. Verkinu hefur miðað svo
vel áfram. Að sumri mun eiga að halda vega-
gerð þessari áftam fyrir sunnan Tunguá og að
Miðá einhversstaðar fram hjá Þórólfsstöðum. Þá
er og í ráði að Haukadalsá og Tunguá verði brú-
aðar, en í sumar var Bakkaá í Hörðudal brúuð.
Um stjórnmál er hér lítið hugsað og talað
nú. Menn eru svo önnum kafnir á sumrin og
haustin við heyskapinn og réttarsýslið, að flest
annað hlýtur að liggja í þagnargildi.
í rigningunni miklu 15. þ. m.; drukkn-
■aði unglingsmaður um tvítugt í Haukadalsá fyrir
neðan Jörfa. Hann var frá Hömrum í Hauka-
■dal og hét Ingólfur sonur Jóns og Lilju, er lengi
bjuggu á Vatni í Haukadal, en síðast á Melum
f Hrútafirði. Áin var flugmikil og ófær í rauninni
daginn sem slysið vildi tii.
Nú er nýreist verzlunarhús í Búðardal við
Hvammsfjörð og byrjar verzlun þar að llkindum
183
þessa daga. Um það hvort héraðinu verði kaup-
staðurinn til böls eða bóta, eru nokkuð . skiptar
skoðanir. Reynslan ein getur skorið úr því. —
Drukknun. Hinn 7. f. m. fórst bátur í
fiskiróðri á Skagafirði með 5 mönnum. For-
maður var Rögnvaldur son Rögnvaldar bónda á
Óslandi, ungur maður og efnilegur, nýkvæntur.
Bátinn rak upp á Reykjaströnd lítt skemmdan.
ÞilskipiO ,Helgi‘ frá Siglufirði telja menn
víst, að farizt hafi með 8 mönnum í ofsaveðrinu
seint í ágúst síðastl., og hefur jafnvel heyrzt. að
flök úr því hafi rekið á land þar norður í vík-
unum. ’Mjög hræddir eru menn einnig orðnir
um þilskipið »Comet« frá Melshúsum á Seltjam-
arnesi, með því að ekkert hefur spurzt til þess
síðan í ágúst snemma. Skipstjóri á því var
Oddgeir Magnússon, ungur efnismaður, nýkvong-
aður, en hásetar 16 alls, flestir af Seltjarnarnesi
og nokkrir kvæntir barnamenn.
Um Svalbarð em í kjöri: séra Páll
H. Jónsson í Fjallaþingum, séra Sigurður Jóns-
son á Þönglabakka, og Vigfús Þórðarson cand.
theol. á Eyjólfsstöðum á Völlum.
í prestaskólanum em nú aiis 9
guðfræðisnemendur í 3 deildum, þar á meðal
að eins einn nýr: Þorsteinn Björnsson frá Bæ í
Borgarfirði.
í læknaskólanum erunúalls ionem-
endur f fjórum deildum, og era þar aðeins 2 nýir:
Jóhannes Jóhannesson, er kom frá Kaupmanna-
höfn í sumar, og Þorvaldur Pálsson. — Ef aðsókn-
in að hinum æðri menntastofnunum vorum verð-
ur eptirleiðis jafnlítil hlutfallslega, eins og hún
hefur verið í þettaskipti, — aðeins 2 af 17 nýj-
um stúdentum í vor, — þá koma þeir tímar, ef
nýjum stúdentum fækkar, að kennararnir verða
jafnmargir og nemendurnir, eða jafnvel alveg
nemendalausir, svo að loka megi, nema ef ein-
hverjir hröklast hingað aptur úr Hafnarvistinni, án
þess að hafa lokið prófi við háskólann, og sætta
sig þá við skólana héma.
Veðuráttan helzt enn óbreytt hér syðra,
sífelldar rigningar nú í samfleytta 2 mánuði að
heita má, þótt ofurlitlar þurkflæsur hafi komið
nokkra daga í bili, og þykjast menn ekki muna
jafnmikla óþurkatíð. I Borgarfirði kvað veður-
áttan hafa verið nokkru betri, nú upp á síðkast-
ið, og^flestir þar náð heyjum sínum um réttir,
eða upp úr þeim, en í Árness- og Rangárvalla-
sýslum kvað hey allvíða vera úti enn.
Kjötverð hérí bænum um þessar mund-
ir er 18 a. bezta kjöt (45 pd. og þar yfir) en
14 aura hið lakasta (30 pd. og þaðan af minna)
— Mör 22 a. pd. — Gærar 20—22 a. pd. Innan
úr 75 a. — 1,50, [ekki pundið(!!), einsog»ísa-
fold« segir og »Fjallkonan« tekur orðrétt eptir
henni(!!)].
HÓlar fóru austur um land 3. þ. m., sfð-
ustu ferðina á þessu ári. Með bátnum fóru:
Kristján Sigurðsson cand. phil., Sigurður Sigurðs-
son bókbindari, Árni Gíslason leturgrafari í
bindindiserindum til Vestmannaeyja, Lára Ólafs-
dóttir o. fl.
Hitt og þetta.
Frjóvsemi fiskanna. Frjóvsamastur fisk-
ur er þorskurinn, sem framleiðir 45 miljónir eggja
um árið. Það hafa fnndizt 8 og 9 og jafnvel 9J/»
miljón eggja í hrogninu á einum einstökum þorski.
I Skotlandi kvað hafa verið veiddur áll 1890, sem
var 32 þuml. langur og vóg hér um bil 3 pund.
Hrognið var 12 þuml. langt, eins og það lá 1 áln-
um, en það var í raun og veru 30 þumlungar,
og í því voru 10 miljónir eggja, svo að állinn er
að því leyti fremri en þorskurinn, en þetta er
víst sérstök undantekning og yfir höfuð er þorsk-
urinn talinn frjóvsamastur. En aðrar fiskategund-
ir eru einnig mjög frjóvsamar; það hafa fundizt
36,000 egg f einni síld, 38,000 f kola, 1 miljón í
skötu, 3 miljónir í styrju, 342,000 í karfa, 546,000
í makríli, 992,000 í lúðu og 1,357,000 í aborra.
Ostran er einnig mjög frjófsöm; það hefur nýlega
verið uppgötvað, að með smæðarsjónauka geta
menn séð hinn litla ostru-unga synda í hinu svo-
kallaða ostruvatni, sem er innan í ostrunni og
þar eru 120 ungar á hverjum ferhyrningsþuml-
ungi. Af þessum feiknalega fjölda af eggjum
þroskast auðvitað tiltölulega fá, en menn hafa
reiknað það út, að frádregnum eggjum þeim sem
farast, geti ein síldarhjón hryggnt 154 miljónum
sílda. Buffon hefur reiknað, að afkomendur einna
síldarhjóna mundu margfaldast svo á 20 árum, að
þeir fylltu öll heimshöfin, ef allar þessar síldir
fengju að lifa.
Dýrmætar sængur. Áxið i883varsýndíPar-
ís óvenjulega dýrmæt rekkja, sem var tilbúin
handa indverskum höfðingja. Htín kostaði nærri
90,000 kr. Sængurhimininn var borinn af 4 vél-
brúðúm í spönskum, ítölskum, og frönskum þjóð-
búningi og fornum grískum búningi. Með blæ-
vængjum sínum kældu þær loptið og þær gátu
hreyft augun. I sængurdýnunni var stór söngdós,
sem lék alls konar tónleikalög, þegar maður
lagðist á hana. Vagga sú, sem sonur Napoleons
I. var í, var einnig óvenjulega dýrmæt; hún var
nærri öll úr gulli og var gjöf frá bænum París.
Kona amerfsks auðkýfings á gyllta látúnssæng
alsetta perlum; ofan á gaflbrlkinni eru
grindur úr látúni með fangamarki konunnar úr
gulli og gimsteinum. I helli nokkrum á milli
Beyrut og Damaskus fannst 1890 skrautlegt rúm
úr gulli og silfri, alsett gimsteinum og með
áletran, sem sýndi, að Elenora af Poitou, drottn-
ing Henriks 2. hafði átt hana. Viktoría drottn-
ing á einnig gullrekkju og er hún gjöf frá „ma-
harajahinum" í Kasjmir.
Ágrip af ísfenzkri bókmenntasögu
eptir dr. Finn Jónsson, slðari hluti, er til sölu á
afgreiðslustofu Þjóðólfs Kostar 75 aura.
"Rindindisfélag ÍSL. KVENNA
heldur fund í kvöld, í Good-Templarhúsinu
kl. 8V2 síðd. Ungfrú Ólafía Jóhannsdóttir
flytur tölu. Þeir sem hafa fengið sér
aðgöngumiða að fundinum mæti kl. 9.
SKEMMTIFUNDUR
verður haldin í h'inu íslenzka kvennfélagi ld.
8. þ. m. kl. 8 e. h. í Iðnaðarmannahúsinu.
Þeir sem eiga óborguð árstillag sitt fyrir
1898 eða fleiri ár eru beðnir að greiða þau
á fundinum. Hafi þeir eigi fengið borgunar-
umslag, eru þeir beðnir að gera svo vel og
taka þau hjá Ingibjörgu Bjarnason Aðal-
stræti 7 og Þorbjörgu Sveinsdóttur Skóla-
vörðustíg 11.
FYRIRLESTUR
unt „ Verði Ijós" og hvíldardagsmálið heldur
undirskrifaður í Iðnaðarmannahúsinu sunnud.
kl. 6V4
Aðgangur eins og við aðra fyrirlestra
mína með miðum, er áður fást hjá mér og
í afgr. ísafoldar. Gamlir miðar gilda einnig.
Davíð Ostlund
4 herbergi ásamt eldhúsi á góðum stað í
bænum fást til leigu nú þegar. Semja má við
Kristjdn Þorgrímsson.