Alþýðublaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 1
LONDON 7.12 (NTB-AFP) Lögreglan er á verði viff heimili Haroid Wilson, for ingja brezka Vcrkamanna- flokkisinii í London vegna þess aff honum hefur veriff hótaff líflátí. Scotland Yard og blaff í Manchester hafa fengiff bréf þess efnis aff Wilson verffi myrtur einhvern tíma á tímabilinu frá afffaranótt fiimntudags til kl. 19.00 á laugardag- Nafnlausu bréfin voru bæði póstlögð í I.anca shire. Wilson hefur tilkynnt, aff hann muni ekki breyta fyrir ætlunum sínum vegna hótan anna. Hann heldur ræffu til stúdenta í Suxess í dag eins og ráðgert haföi veriff. ANNAR hluti jólahlaðsins fylgir blaðinu í dag. Af efni hans má nefna smásögu eft- ir Selmu Lagerlöf, Ferða- þátt meff ívafi cftir Hjört Pálsson, þýdda grein um Turgenev og Tolstoy, í vín- kjallara, frásögn eftir Eið Guðnason, greinarkorn um laufabrauð eftir Gauta Hannesson, jólagetraun AI- þýffublaffsins og fleira. — Næsta sunnudag kemur síð- og þriðji híuti jólablaðsins og loks fjórffi og síðasti lilutinn rétt fyrir jólin. FRAKKEY! Reykjavík, 7. des. - HP Prófessor Halldór Halldórsson er einn kunnasti málvísindamaður okkar og á auk þess sæti í Örnefna nefnd. í dag spurðist Alþýðublað- ið fyrir um það hjá Halldóri, hvern ig honum litist á þá hugmynd, sem fram kom í blaðinu í morgun, um að kalla nýju eyna Frakkaey, og fer svar hans hér á eftir: „Mér datt það reyndar í hug, áður en ég sá Alþýðublaðið, að ekki væri óviðeigandi að kalla, eyjuna Frakkey, af því að frakkir Frakkar hefðu orðið fyrstir til að stíga þar á land. Hins vegar vil ég taka fram, að þar sem ég á sæti i Örnefnanefnd vil ég ekki segja til um það nú, hver afstaða mín kynni að verða síðar, þegar nefndin fjallar um það mál, en eins og kunnugt er, ber henni að úrskurða, hver staða- nöfn eru sett á kort af íslandi”. RITDÓMUR UM SKALDSÖGU NDRIÐA A BLAÐSIÐU 3 SEOUL 7.12 (NTB-AFP). Hinn nýkjörni forseti Suðui'-Kóreu, Park Chung Hee, hefur skipað hinn 63 ára gamla stjórnmála- mann, Yoon Chi Yong, forsætisráð herra, að því er áreiðanlegar heim ildir herma- Ný stjórn verður mynduð þegar forsetinn tekur við embætti. Yoon, sem sundaði nám við háskólann í Washington, var innanríkisráðherra í stjórn Syng man Rhees 1948. Sökudólgur fjarstaddur Reykjavík 7. des- — GO Dómur er enn ekkl fallinn í máli skipstjórans á Gamminum VE 57. Þegar við töluffum viff full trúa bæjarfógeta í Vestmanna eyjuin í dag, var Gammurinn á sjó og skipstjórinn því víðs fjarri Fulltrúinn sagði að málið lægi ljóst fyrir: Skipstjórinn á bátnum hefði viðúrkennt brot sitt skil yrðislaust, enda hafi öll siglinga tæki verið óvirk, vegna þess að báturinn var rafmagnslaus og auk þess náttmyrkur. Ekki er vitað hvort þetta verð ur reiknað manninum til málsbóta en svo mikið er víst að dómurinn fellur strax og hann kemur í land AWZW OKímD 44. árg. — Sunnudagur 8. desember 1963 — 164. tbl. HER sjáum viff franska blaffamanninn og Ijósmynd- arann, Gerard Gery, þar sem hann stendur fyrstur manna á Frakkey effa hvaff hún kann aff verða kölluff eyjan okkar. Gery heldur á fána stórblaðs ins Paris Match, en eins og kunnugt er starfar hann viff þaff og þaff kostaði leiffang- urinn. Landgangan í erlendum blöðum Reykjavík 7. des — ÁG ; Eins og kunnugt er af fréttum,; tóku þrír Frakkar land í Gosey (Frakkey) um hádegiff í gær. Fréttir af þessum atburði voru fljótar aff berast, og erlend blö<), og fréttastofur höfffu spurnlr af þessu þegar í gær- Þá voru mynd ir einnig símsendar út í gær- kvöldi og í dag. Einn Frakkanna, er eins og kunnugt er, frá franska stór-mynda blaðinu Paris Match. Það var hann sem hugmyndina átti að ferðinni, en blaðið kostaði hana. Áætlunin var að komast til eyj arinnar óséðir, og geta setið ein ir að myndum og frásögn. Þetta mistókst, og voru þeir bæði Ijós- myndaðir og kvikmyndaðir í bak og fyrir- Þegar í gærkvöldi fékk Associ ated Press, ein stærsta fréttastofa í heimi, myndir símsendar frá Reykjavík. Yoru þær af Frökk unum þar sem þeir stóðu með franska fánann á eyjunni. Þessari mynd hefur fréttastofan síðan ugg laust dreift til ýmissa blaða. Þá var kvikmyndafélagið Geysir á staðnum, þeir Þorgeir Þorgeirs Framh. á 2. síðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.