Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 03.04.1934, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 03.04.1934, Blaðsíða 4
4 VERKAMAÐURINN » ....."■■■■■■. ............ Fundargerð vegavínnu- manna á Svalbarðs- strönd, Mánudaginn 2. aprfl 1934, var fundur vegavinnumannaá Svalbarðs- strðnd, f samkomuhúsi hreppsins. Fundarstjóri var tiinefndur Leó Albertsson, Hallandsnesi, en ritari Júl. Jóhannesson, Orund. Setti þá fundarstjóri fundinn, en ritari skýrði tilefni fundarins, voru siðan tekin fyrir eftirfarandi mál. 1. Kaupgjaldsmál. f þvf voru eftirfarandi krðfur saraþyktar: Kaup sé minst 1 kr. pr. klst. b. */2 klst. á dag til kaffidrykkju og bálfur laugardagurinn án frá- dráttar á tímakaupi. c. Frf matreiðsla, eldsneytt, ferðir og flutningar til og frá vinnu- stððvunum. d. Að verkamannaskýlum verði vel við haldið. 2. Félagssamtök vegavinnumanna. Svohljóðandi till. samþ. >Fundurinn Iftur svo á að nauð- synlegt sé að stofnuð verði fagfé- Iðg vegavinnumanna, er starfi með VSN«. 3. Kosinn til að mæta, fyrir hönd vegavinnumanna á þingi V. S. N. 20. þ. m. JÚJ. Jóhannesson og til vara Leó Albertsson. Fleira gerðist ekki. Fundi slitið. Júl. Jóhannesson, ritari Fulltrúakosning. Á fundi Verkamannafélags Akur- éyrar f gær, voru kosnir þessir full- trúar á þing VSN: Sigþór Jóhannesson Magnús Qislason Jakob Árnason Pórður Valdimarsson Varafulltrúar: Ástvaldur Jónsson Steingrímur Eggertsson Karl Magnússon Ouðmundur Baldvinsson Vinna hafin við spítalagrunninn. í morgun var loksins byrjaðáað grafa fyrir grunni nýja spítalans; ennþá hafa þó ekki nema 15 manns fengið þar atvinnu, en hægðarleik- ur að koma þar 15 mönnum að f viðbót. Alls munu nú um 50—60 manns f bæjarvinnunni og er það bót frá þvi sem áður ^var, þó er það langt frá þvf að þetta leysi að nokkru ráði úr atvinnuleysisvand- ræðunum. flðeins ðframhaldandi harðvítag barátta verkalýðsins er pess Lumkomin að knýja fram meiri afvínnubætar. Herðum pessvegna baráttuna enn íyrir kröfunni um atvinnubætur handa minst tOQ manns. Bœjarstjórnarfundinum sem halda átti i dag var frestað til næsta þriðjudags; hvíta liðið mun sennilega ekki hafa þótt nægi- lega trygt til þess að hindra at- vinnuleysingjana f að fylgja kröfum sfnum eftir. Eldur uppi i óbygðum. Undanfarna daga hefir orðið vart við eldgos einhverstaðar f ó- bygðum. Er helst álitið að eldur- inn muni vera upp í vestanverðum Vatnajökli. í gær sáust eldarnir greinilega héðan frá Akureyri. Ösku- fali hefir verið allmikið austur á Héraði og f Bárðardal. Gegn fasismanum ! Á fundi Verkamannafélags Akur- eyrar i gær var rætt um að taka föstum tökum á þeim kaupmönn- um, sem sýndu sig i hvíta liðinu á sfðasta bæjarstjórnarfundi. Var eftirfarandi tillaga samþykt f einu hljóði: >Fundur f Verkamannafélagi Ak. 2. aprfl 1934 samþykkir að setja tafarlaust viðskiftabann á þá 3 kaup- menn, sem skipuðu sér í hvitliða- sveitina á sfðasta bæjarstjórnarfundi, þá Vigfús Jónsson málara, Jakob Ólsen málara og Porstein Sigvalda son, Parfs. „ Verkamaðurinn“ málgagn Verklýðssambands Norðurlands, kemur út tvisvar í viku.i Áskriftargjald 5- kr. árgangurinn. — Ritstjórn og afgreiðsla Eiðsvallagötu 20. Sími 314. Akureyri. Xlúbbskemtun verklýðsfélaganna verður haldin Verklýðshúsinu annað kvöld kl. 8>/2. Til skemtunar verður: 1. Upptestur. 2. Erindi um Soviet Rússland og auðvaldsheiminn (Jón Rafnsson). 3. Dans, tafi, spil. 15 flugvélar hafa Tyrkir ákveðið að senda til Moskva, 1. maf n. k. tiátt d 2. hundrað manns hafa sðtt um atvinnubótavinnuna. Hver segir satt, fyrv. bæjarstjóri, fón Sv., eða bœjarreikningarnir. Fyrverandi bæjarstjóri lýsti því yfir, á síðasta bæjarstjórnar- fundi, að það væri ekkert fé til f sjóðum bæjarins. Reikningar bæj- arins segja alt annað. Ef J. Sv. hefir rétt fyrir sér, virðist full þörf á því, að það fari fram op- inber rannsókn í þessu máli. Réttarhöldin gegn Hitler í New York. Fyrir nokkru síðan var haldinn afarfjölmennur mótmælafundur í New York og fór þar fram rétt- arhald gegn Hitler. Meðal ákær- endanna var borgarstjórinn La Guardia, ennfremur fyrverandi fylkisstjóri og forsetaefni A1 Smith. Við réttarhaldið flutti m. a. ríkissaksóknarinn, Seaburg, sá sem afhjúpaði borgarstjórann Jimmy Walker, ákæruræðu.. Þýzka sendisveitin í Washing- ton hefir varla náð upp í nefið & sér fyrir bræði. Sneri hún sér til utanríkismálaráðuneytisins og kvartaði yfir þessu, en það var árangurslaust. Ábyrgðarm : Steingrímur Aðalsteinsson Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.