Alþýðublaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 1
KVEIKTU I OF SNEMMA 45. árg. — Föstudagur 3. janúar 1964 — 1. tbl. Leitað á unglingum sem sóttu Lídó: 30-40 áfengis- flöskur fundust Akureyri, 2. jan. GS-HP. Reykjavík, 2. jan. — ÁG. Á gamíárskvöld var lialdinn dansleikur í Lidó. Var hann ætl- aður unfflinenm. Til þess að koma I veg fyrir áfengisneyzlu á staðn- um var leitað á gestunum, áður en þeir fóru inn í húsið. Fundust þá milli 30-40 flöskur af áfengi, sem Iögreglan hefur nú tekið í sína vörzlu. Dansleikur þessi fór hið bezta fram. í byrjun skemmtunarinnar ætluðu nokkrir strákar að auka á ÞRUMUR OG ELDINGAR Reykjavík, 2. jan. — GO. í gærmorgun gekk allmikið hvassviðri yfir sunnanvert landið og komst veöurhæðin upp í 13 vindstig í Vestmannaeyjum. Síðar snérist til sunnan og suðvestan- áttar með rigningarhryðjum og þrumuveðri í gærkvöldi. Samkv. upplýsingum veðui*stofunnar eru slík veður einna algengust hér, þegar snögglega bregður til suð- vestanáttar á vetrum. Jón Eyþórs- son veðurfræðingur kvað útlit fyr- ir milt og umhleypingasamt veður á næstunni. '' Fjölmargar brennur voru haldnar í flestum kaupstöð- um landsins á gamlárs- kvöld og tókust þær yfir- leitt vel. Myndin hér að neð an er tekin af brennu á Skólavörðuholti- (Mynd: Rúnar). gleðina með því að sprengja kín- verja. Var þá leikur hljómsveitar- innar stöðvaður, og unglingunum tilkynnt, að ef fleiri kínverjar yrðu sprengdir, myndi dansleikur- inn stöðvaður og skemmtunm leyst upp. Enginn hvellur heyrðist eftir það. Eins og fyrr segir, voru 30-40 flöskur af áfengi teknar af gestun- um. Við innganginn var leitað á öllum ungu mönnunum, og jafnvel litið ofan í veski stúlknanna. Mun enginn hafa sloppið inn með ljúfar veigar, og eins og áður, skemmt sér vel yfir glasi af gosdrykk. IMWtMMUMMMMMMHMMM' Systurnar hér á myndinni fögnuðu með stjörnuljósum nýja árinu, því herrans ári 1964, sem voriandi verður liappasælt og gotit' ár. (Mynd: Rúnar). j Hlýviðri og logn var á Akur- eyri á gamlárskvöld og vcður m jög fagurt, en tók að hvessa á ný- ársnótt. Brennur voru 20-30, stór- ar og litlar, víðs vegar um bæinn, og stóðn unglingar að þeim flest- um. Ennfremur var efnt til brennu á Svalbarðseyri og a.m.k. tveggja á Svalbarðsströnd, og var fögur sjón að sjá þær speglast í Eyja- firði í góðviðrinu. Á miðnætti-var kveikt á blysum, sem komið hafði verið fyrir þannig í Vaðlalieiði, að þau mynduðu ártalið 1964. Mörgum flugeldum var skotið víða í bænum, og áramótadans- Framh. á 2. síðu Á SÍÐA LYS U OSLO, 2. jan (NTB). Árið 1&S3 var mikið slysár eins og sjá má af eftirfarandi yfirliti um stórslys, sem fólk hefur lesið um 1963: Af völdum náttúruhamfara bár- ust fregnir um 26 slys og fórust 30 þúsund. Alls bárust fregnir um 32 flug- slys, þar sem fleiri en 10 fórust og alls fórust í þessum slysum um 1.000 manns. Fregnir bárust um 21 bruna, um 900 fórust. 21 meiriháttar sjóslys voru í fréttunum á árinu, alls fórust um 850. 36 járnbrautaslys kostuðu 700 manns lífið. Þes:u yfirliti má ljúka með „ýmsum slysum“. Hér var um átta slys að ræða og biðu 500 bana. Af slysum af völdum náttúruham fara má nefna: Jarðskjálfti í Lí- býu í febrúar kostaði um 300 líf- ið og margra var saknað- Um 1500 fórust af völdum eldgoss á eyj- | unni Bali í marz. Yfir 400 fóruzt ! einnig í jarðskjálfta í Skoplje í ! Makedóníu í júlí. Þúsundir fór- ust af völdum fellibylsins ,,Flóru“ á Karíbahafi í september. í sama mánuði fórust um 2000 í stíflu- slysinu í Longarone á Ítalíu. FLUGSLYS: í febrúar fórust 91 er 2 flugvélar rákust á yfir Ank- ara og 43 fórust í bandarískri Boe- ing 707 yfir Flórída. 54 fórust í DC-6 farþega flugvél í Duala í Kamerún í maí og í júní hrapaði bandarísk flugvél með 101 lier- mann í Alaska og allir fórust. 80 fórust í svissneskri Caravelleflug- vél í Ztirich í september. 118 fór- ust í DC-8 flugvél norður af Mont- real í nóvember- 82 fórust í Boeing 707 þotu, sem elding laust niður í í Maryland í Bandaríkjunum í des ember. BRUNAR: 42 fórust í bruna í fyrirtæki nokkru í Calcutta. 105 fórust af Völdum sprengingar í Indianapolis í september. 60 fór- ust í bruna á elliheimili í Ohio í nóvember. 128 fórust í brunanum um borð í gríska farþegaskipinu ,,Lakonia“ um jólin (904 var bjargað). SKIPSSKAÐAR: Stærsta sjó- Framh. á 2. síðu Báðir mennirnlr mikið slasaðir Akureyri, 2. jan. — GS-HP. f Eins og skýrt var frá í blaöinu á gamlársdag, varð alvarlegt bíl- slys við Bægisá í Hörgárdal síff- degis á mánudag, þegar vörubif- reið úr Borgarnesi ók út af við brúna og hrapaði ofan í gljúfrið. Mennirnir tveir, sem í bifreið- inni voru, eru báðir úr Borgar- nesi og rétt um tvítugt. Bifreiðar- stjórinn heitir Gunnar Kristjáns- son, en hinn Axel Þórarinsson. —■ I Þeir liggja báðir mjög alvarlega slasaðir í sjúkrahúsinu á Akureyri, en meiðsli Gunnars munu vera al- varlegri. Hlaut hann bæði opið fótbrot og handleggsbrotnaði, en Axel fótbrotnaði einnig, og báðir hlutu margvísleg smærri meiðsli. Yfirlæknir sjúkrahússins tjáði fréttáritara Alþýðublaðsins á Ak- ureyri í dag, að líðan þeirra væri eftir atvikum sæmileg, en enn hef- ur ekki verið hægt að rannsaka meiðsli þeirra að fullu. wwwwwwwwwvww 254 erlendir togarar komu fil ísafjarðar ísafirði, 2. jan. — BS-GO. Sl. ár leituöu 254 erlend- ir togarar hafnar á ísafirði. Þar af voru 205 brezk- ir, 42 þýzkir og 7 belgískir. Árið áður voru brezku tog- ararnir 164 og hefur því fjölgað um 41. Hér fá tog- ararnir hina beztu fyrir- greiðslu og ágæta þjómistu varðandi viðgerðir á vélam, siglinga- og öryggistæk.inm, einnig góða læknisbjónustu á fjórðungssjúkrahúsim». Hinir erlendu togarar skapa verulegar tekjur fyr- ir viðgerðaverkstæðin, sjúkrahúsið og bæjarfélag- ið í heild. T. d. greiddu brezku togararnir einir 200 þús. kr. í hafnargjöld árið 1963.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.