Vísir - 28.03.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 28.03.1967, Blaðsíða 1
i VISIR 57. árg. - Þríðjudagur 28. marz 1967. - 70. tbl. Norðurleiðarrútan fauk á hliðina — tveir kranabílar héldu henn! niðri f nótt. (Ljósm. Pétur) MIKLIR HRAKNINGAR í PASKAVEÐRINU Páskaveðrið reyndist heldur óhagstætt þúsundum íslendinga, sem ætluðu að nota fríið til ferðalaga. Jafnvel innan Reykjavíkur varð tafsamt vegna skafla, sem mynduðust. Fréttamenn Vísis öfluðu í morgun upplýsinga um ýmislegt, sem fyrir kom um páskana, og segir frá því hér á eftir. Ovenjulega slæmur veðrakafii um páskana Veðrið um páskana var hió versta sem komiö hefur kring- um upyrisuhátíðina í mörg ár, sagói Jónas Jakobsson, veóur- fræöingur viö Vísi í morgun. Auðvitað má leita skýringar i því aö páskamir eru óvenjulega snemma á ferðinni að jjessu sinni. En þetta var eitt versta veöurtimabilið sem komiö hef- ur í vetur. Noróanáttin hefur geisað meö snjókomu og skaf- renningi síðan á föstudag og dró ekki niöur í veðrinu fyrr en í gær og er bærilegt veður í dag. Frost var um allt land 5—12 stig á láglendi, sem er óvenju- lega mikið, jafnvel um hávetur, jafnlangan tíma í senn. Norðan iands var snjókoma en skafrenn ingur mikill á Suöurlandi. Einna verst var veðrið á páskadaginn siálfan, þegar á landið er litiö í heild. Þá voru t. d. 10 vindstig á Sauðárkróki og í Æöey og víða 8—10 vind- stig. í morgun var 6—10 stiga frost á láglendi, sums staöar fór þó frostið upp í 15 stig, t. d. innst i Skagafiröi og á Hvera- völlum. í Reykjavík var 7 stiga frost og á Akureyri 8 stiga frost Um allt sunnan- og vestanvert landið var heiöskirt, víða él á köflum norðanlands, stinnings- kaldi um Austurland. Fyrir vest an fer veður mjög batnandi . Flugið um páskana Flugtelag íslands hefur að undantörnu flutt um 4000 far- þega í og úr páskaleyfi. Par af voru fluitir um 600 farþegar í gær og búizt við aö flytja um 700 farþega í dag. Flugsam- göngur voru á kötium stirðar vegna veðurs, enda fiugvellirn- ir á Egilsstööum og Vestmanna- eyjum lokaöir undanfarna daga. Flogið var á skírdag eftir á- ætlun fram að hádegi, en gekk erfiðar seinnihluta dagsins. Á laugardag lá allt flug niðri vegna veðurs. í gær var ófært fram aö hádegi en eftir hádegi var flogið á nokkra staði og fluttir um 600 farþegar. Lokað var hjá Flugfélaginu á páska- dag og föstudaginn langa, en það eru tveir af fimm dögum ársins, sem félagið hefur lokað. í dag verða farnar fimm ferð ir til Akureyrar 3 til ísafjarðar. Einnig verður flogiö til Horna- fjarðar, Patreksfjarðar, Húsa- vikur og Egilsstaða, s\|o og Vestmannaeyja, ef völlurinn opnast og veöur leyfir. Hjá Loftleiðum gekk yfirleitt allt vel, nema hvað flugvél á leið frá New York til Keflavík- ur varð að hætta við lendingu á laugardag og fijúga áfram til Luxemburg. Sama dag varð ein af vélum félagsins að sleppa viðkomu í Osló á leið sinni hingað frá Kaupmannahöfn. Flugumferðarstjómin á R-vík urflugvelli taldi allt hafa verið með eðlilegum hætti hjá sér eftir því sem gerist á þessum tíma árs, bæði í utanlandsflugi og yfirflugi flugvéla annarra þjóða á stjórnsvæði hennar. Þá var þess getið að innanlands- flug muni hafa gengið vel mið- aö við veðurfar undanfarna daga. Áætlunarbíll fauk á hliðina Nýjasti áætlunarbíll Norður- leiðar hf. fauk út af veginum hjá Kleifum í Kollafiröi í gær- dag. Vagninn var á leið til móts við Borgarnesrútuna og var eng inn farþegi í honum. Ofsaveð- ur var á bessum slóðum í gær, en óvíða mun vindhraðinn verða meiri hér um slóðir en á Kjalarnesi. Þegar bifreiðarstjórinn kom upp úr Kleifunum svokölluðu í Kollafirði, l'eizt honum ekki á blikuna og ætlaði hann að snúa við á melunum ofan þeirra. - Skipti það engum togum að rútan fauk um koll. 1 gærkveldi var farið á þremur kranabílum til að rétta rútuna við. /og voru tveir beirra Iátnir styðja við í nótt. bar sem ekki var talið þorandi að færa hana upp á veginn á meðan veðrig ekki lægöi. I morgun var svo farið upp- eftir til að sækja rútuna ,sem er tiltölulega lítið skemmd. Bóndinn á He’óarbæ beið slasaður í 36 tíma Á föstudaginn Ianga slasaðist bóndinn á Heiðarbæ í Þingvalla sveit, 'Sveinbjöm Jóhannesson, maður um þrítugt, er hann var úti við. Var talSð að hann hefði slasazt í baki og þótti óráðlegt að flytja hann með snjóbifreið vegna hristings. Ófært var að ööru F . ;r ausíur að He öa/b.e, en þyrla landhelgisgæziunnar geröi tilraunir til að sækja Sveinbj. á laugardaainn en bær mistókust. Var beðið færis á páskadag en bað gafst ekki fyrr en í gær, að Björn Jónsson flaug á þyrlunni milli kl. 17—18 og sótti SveSnbjöm og konu hans, Steinunni Guðmúndsdóttur. — Jafnfr. skiiaði bvrlaií Tryggva Guðmundssyni, bróöur húsfreyj- unnar á Heiðarbæ, sem mun annast um búið meðan hjónin eru í burtu. Meiðsii Sveinbjarnar reyndust ekkS jafnalvarleg við rannsókn eins og álitið hafðí verið fyrsíu en hann mun hafa rófubeins- brotnað. Tengdafaðir hans, Guðmundur Tryggvason, skrifstofumaður, bar mikið lof á Slysavarnafé- lagið og Landhelgisgæzluna, einkum starfsmenn þeSrra, Hann es Þ. Hafstein og Bjöm Jóns- son fyrir frábæra umhyggju og lipurð og bað Vísi að koma þeim orðum sínum á framfæri í þakk- Iætisskyni. 30 bílar tepptir austur á Klaustri — Ungan Þjóð- verja kól lífshættulega. Um 30 bílar eru nú staddir austur á Kirkjubæjarklaustri, tepptir þar vegna ófærðar. Em það Öræfafarar með GuðmundS Jónassyní og Úlfari Jacobsen, um 400 manns og bar að auki allmargir farþegar nokkurra jeppa, sem voru í samfloti með stóru bifreiðunum — með og án leyfis eftir bvi sem Ágúst Björnsson, einn af fararstiórum Úlfars tjáði blaðinu í morgun. Er þess vænzt, að Öræfafaramir geti haldSð heimleiðis i dag á eftir stórri ýtu frá Vík, sem mun ryðia veginn. Verður bá skammt i það að einni erfiðustu Öræfa- ferðinni sem um getur ljúki. Var lagt af stað í ferðina á skírdagsmorgun og gekk hún all vel austur að Klaustri. „Þegar lengra dró þurftum við að kippa í nokkra jeppana, en ekki var tel;"ndi töf að bv'“ ona^i Áaúst I Öræfunum var veðúr með versta móti. siniHn ? stormhryðjur, en á kvöldin 'ijroidi o" var tunels'jóc Á náskadagsmorgun gerðist atburður. sem setti sinn svip á ferðina. Ungur Þ’óð”érii. sem var með í ferðinni. bélt af stað einn síns liðs í gönsuferð. Frétt- ist ekki af honum og var ekki farið að undrast um ferðir hans fyrr en nokkrir menn. sem voru á ferð austan frá Svínafelli, komu auga á tösku undir steini. Þegar betur var að gðð reynd- ist Þjóðverjinn vera bar einnig og hafði hann tjóðrað sig við steininn í veðurofsanum. Virt- ist hann hafa verið á leið til Svínafellsjökuls. Var maðurjnn kaldur og líflítill, þegar að hón- um var komið bama. Var hann fluttur heim að Svínafelli, þar sem honum var hiúkrað sem bezt en tvær hjúkrunarkonur voru með í ferðinni og sáu þær um sjúklinginn. Símasambands- laust var við öræfin og reyndi Guðmundur Jóhasson með hiáln talstöðvar að kalla upp og ná í sjúkraflugvél. Þegar tókst að ná í Björn Pálsson var veður Framh. á bls 10 .■.V.V.V.V.V.V.V.W.V.*, Aga Khan IV til íslamts í dag? I morgun frétti Vísir að Aga Kharim Khan IV leiðtogi Ismaili greinar Múhameðstrúar- manna, væri væntanlegur tii íslands í dag með flugvél frá Loftleiðum. Ekki fékkst fréttin þó staðfest að öllu leyti, en miklar líkur eru taldar á að hann mundi koma hingað frá Genf. Ekki var nánar vitað um hvort hann hefði hér viðdvöl eða héldi áfram vestur um haf, þó líklegt megi telja að hann ætli að koma hér við. Aga Khan er leiðtogi o» á- trúnaðargoð 27 milljóna manna í Indiandi og tók við af afa sínum Mohamcd Aga Khan árið 1957. Aga Khan er aðeins 31 árs að aldri. I ■■■■■■ I Þegar Þórsmerkurfarar komu að Krossá í bakaleiðinni í gær haföS hana lagt og varð að brjóta ísinn til áð koma bílunum yfir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.