Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Blaðsíða 32
Álviðræður í „virðulegri vinsemd”: GÆTU ENDAÐ MEÐ STÓRTÍDINDUM! Viðræður iðnaðarráðherra og aðalforsijóra Alusuisse, sem hófust í gærmorgun og halda áfram að minnsta kosti fram eftir degi í dag, eru sagðar fara fram í „virðulegri vinsemd” eftir allt. Rætt er um alla þætti málefna íslenska álfélagsins hf. og samkvæmt traustum heimildum DV gætu þessar viðræður endað með stórtíðindum; boðskap um endur- skoðun á kjörum ísals og hugsanlega stækkun álversins með eignaraðild rikisins. í gærmorgun ræddust þeir fyrst við einslega Hjörleifur Guttormsson ráðherra og dr. Paul Miiller aðalfor- stjóri en síðan bættust við þrír menn frá hvorri hlið. Með ráðherranum eru Vilhjálmur Lúðvíksson og Ingi R. Helgason, báðir úr álviðræðunefnd og Halldór Kristjánsson lögfræð- ingur iðnaðarráðuneytisins. En með dr. Múller er Wolfensberger frá Alusuisse og þeir Halldór H. Jóns- son og Ragnar Halldórsson frá ísal. Þá voru Gunnar Thoroddsen for- sætisráðherra og Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra með í hádegisverði í gær en þeir mynda með Hjörleifi ráðherranefnd um málefni ísals. Viðræður stóðu með hléum fram undir kvöldmat i gær og hófust aftur nú í morgun kl. 11. „Það er allt til umræðu og fyrir mitt leyti er ég til- búinn til þess að halda þessum viðræðum áfram lengur en í dag, ef það sýnist leið til þess að ná frekari árangri,” sagði iðnaðarráðherra í samtali við DV í morgun. Fyrirfram var gert ráð fyrir því að dr. Múller yrði hér aðeins til morguns. Ljóst er að þessar viðræður snúast ekki um eiginlega samninga á milli aðila. Þeim er á hinn bóginn ætlað að skerpa línur og skýra viðhorf. Ef vel gengur gætu viðræðurnar nú leitt til beinna samningaviðræðna um framtíð ísals, eins og áður segir. Mun Alusuisse hafa mikinn áhuga á að missa ekki fótanna í álframleiðslunni hér á landi. -HERB. Flutningaskipið Suðurland. Það er 1.143 brúttórúmlestir, eign Nesskips. Sjóslysið við Færeyjar: Nýir neyðarsendar komu að góðum notum —segir Hannes Hafstein „Okkur barst tilkynning kl. 12.55 í gær frá Hornafjarðarradíói að Suður- land væri í hættu um 30—40 milur frá Mykinesi í Færeyjum og að það væri kominn um 60 gráða halli á skipið,” sagði Hannes Hafstein hjá Slysavarna- félaginu í samtali við DV í morgun. „Klukkan 13.16 var síðan tilkynnt að áhöfnin væri að yfirgefa skipið. Við hringdum strax í flotastöð Dana í Fær- eyjum en þá var varðskipið Hvidbjörn- en þegar á leiðinni og átti eftir um klukkutíma siglingu. Varðstjóri hjá Flugstjórn, Haraldur Guðmundsson, ræsti strax út menn í flugmiðstöðinni í Patrivie í Skotlandi. Þá strax fór þyrla frá brezka flughern- um af stað og skömmu síðar einn- ig Nimrod-þota. Viðbrögð Haralds áttu mikinn þátt í því hve fljótt þyrlan fór á loft og það skipti sköpum fyrir björgunina. Skömmu síðar var einnig tilkynnt að Hercules-vél sem var á leið frá Bret- landi til Keflavíkur hefði verið beðin um að fara inn á svæðið til leitar og að- stoðar. Þar sem þessir aðilar voru fljót- ari á vettvang voru aðilar hér heima beðnir um að vera á bakvakt. Um klukkan hálfþrjú var síðan til- kynnt að þyrla frá Hvidbjörnen hefði komizt á loft og tekizt að bjarga tveim- ur mönnum. Þyrlan frá brezka flug- hernum náði síðan að bjarga þeim 8 sem eftir voru um klukkan 5 og þremur korérum síðar lenti hún í Þórshöfn þar sem mennirnir voru allir fluttir á sjúkrahús. Enginn þeirra reyndist þó slasaður. Síðan var leitað fram í myrk- ur að þeim sem féll útbyrðis en án árangurs. Hannes Hafstein sagðist vilja taka það sérstaklega fram að nýir neyðar- sendar sem settir höfðu verið í björgun- arbátana fyrir nokkrum dögum hefðu komið að miklum notum. Þeir voru norskir af gerðinni Utron og sendu út á flugvélatíðni sem hefði gert það að verkum að þyrlan og aðrar flugvélar gátu strax miðað sig inn. ÓEF. A ism m Rannsóknimar á geyma- svæðinu við Heiguvík: Enduðu hja Orku- stofnun Orkustofnun og Jarðboranir ríkis- ins fá nú að bora rannsóknarholur á geymasvæðinu við Helguvik eftir að stofnunin bauð verkkaupa óbreyttan samning með viðhengdum skýr- ingum. Boð bandarfska sjóhersins frá þvi á þriðjudag um að hann féllist ekki á breytingar á samningnum ultu um sjálf sig með þessu. Er herinn sem fyrr samþykkur framkvæmd á gerðum samningi. Bréf frá Orkustofnun leysti hnútinn. Þar var verkkaupa tilkynnt um að tekið yrði við greiðsíu í íslenzkum krónum en ekki í banda- rískum dollurum og skýrt frá fyrir- vörum iðnaðarráðherra. Við þetta hafði herinn ekkert að athuga enda er samningnum um rannsóknirnar í engu breytt. Það eina sem breytist er að verkið lækkar i verði fyrir herinn með lækkandi verðgildi krónunnar á mótidollara. HERB. Skíðaskálinn fauk út i buskann! Mikið óveður gekk yfir Flateyri við Önundarfjörð aðfaranótt miðvikudagsins og urðu þar tölu- verðar skemmdir. Skíðaskáli Skíða- félagsins á Flateyri, sem var i Hjarð- ardal, fauk um 150 metra leið og gjöreyðilagðisl. Þa fauk helmingur skreiðarhjalla kaupfélagsins um koll og urðu þar einnig nokkrar skemmdir. -ÞT, Flateyri / - klp- Bátsmaður- inn fórst Maðurinn sem fórst þegar Suður- landið sökk norður af Færeyjum í gær hét Ævar Ragnarsson og var bátsmaður á skipinu. Hann var 35 ára gamall, einhleypur og búscttur á Akureyri. Þetta er fyrsti mannskaðinn sem verður i sambandi við hina tíðu skip- tapa í kaupskipaflota íslendinga, en fjögur islenzk kaupskip hafa sokkið eða strandað á siðustu mánuöum. Eru það Berglind, Tungufoss, Máv- urinn og nú Suðurland. Fimmta skipið er svo spánska ieiguskipið Rangá sem strandaði I jómfrúarferð sinni við írland fyrr í þessum mán- uði, -klp- FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982. Óeining í uppstillingar- nefnd Alþýðuflokksins á Akureyri: Von á þremur tillögum frá nefndinni Ekki náðist samstaða um framboðs- lista Alþýðuflokksins á Akureyri á fundi uppstillingarnefndar. Samkvænlt upplýsingum DV er ekki útlit fyrir að nefndin nái samstöðu um skipan listans. Allt eins er líklegt að nefndin leggi þrjár tillögur fyrir fund í fulltrúa- ráðinu sem fyrirhugaður er um helgina. < Framboðsraunir Alþýðuflokksins á Akureyri byrjuðu eftir að úrslit í próf- kjörinu lágu fyrir eins og áður hefur komið fram í DV. Urslit prófkjörsins voru ekki öllum flokksmönnum að skapi og þátttaka svo lítil að úrslitin voru ekki bindandi. Gaf það tækifæri til að stilla upp lista sem nyti stuðnings sem flestra flokksmanna. Það hefur ekki gengiðenn. Samstaða er um að Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi flokksins, skipi efsta sætið. Ein tillagan gerir ráð fyrir Bárði Halldórssyni í 2. sætið, Birgi Marinós- syni í 3. sætið og Tryggva Gunnarssyni í 4. sætið. Önnur tillaga gerir ráð fyrir Jórunni Sæmundsdóttur í 2. sætið, Birgi Marinóssyni í 3. sætið, Tryggva Gunnarssyni í 4. sætið og Snælaugi Stefánssyni i 5. sætið. Þriðja tillagan sem von er á frá uppstillingarnefnd er ekki fullmótuð en þar verður Gígja Möller að líkindum í 2. sæti og Birgir Marinósson i þvi 3. -CS/Akureyri. Mótorhjóla- slys á Húsavík 27 ára gamall maður frá Húsavík siasaðist töluvert þegar mótorhjól sem hann ók lenti út af veginum rétt neðan við bæinn Héðinshöfða, norðan Húsa- vikur. Slysið átti sér stað um kl. 18 í gær- dag. Var sá slasaði þegar fluttur á sjúkrahús i Reykjavík. Mótorhjólið mun svo til ónýtt. .jjj LOKI — Lok k>k og læs og ofít í áfí, segir Hjörlerfur bara þegar hann er spurður út í á/vkírmöumar. Iskalt Ní»VÉ»n hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.