Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 24
36 MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 Húseicjendur Bátaeigrendur Fjölnota Þéttikítti Má bera beint á raka og fitu- smitaóa fleti! Aðeins ein gerð, á allt! Ekki lengur margar hálftómar kíttistúpur í geymslunni íslensk lesning á umbúðum. Útsölustaðir í Reykjavík: Baðstofan Smiðjuvegi 4a Byggingamarkaðurinn Mýrargötu Húsið Skeifunni 4 Litaver Grensásvegi 18 Liturinn Síðumúla 15 Versl. O. Ellingsen Grandagarði Akranes: Versl Axels Sveinbjörnssonar Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Siglufjörður: Versl. Sigurðar Fanndals Akureyri: KEA, Hiti hf, Skafti hf Dalvík: KEA Húsavík: Kaupfélag Þingeyinga Egilsstaðir: Kaupfélag Héraðsbúa Reyðarfjörður: Kaupfélagið Fram Höfn: KASK Vestmannaeyjar: Verslunin Brimnes Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Kaupfélag Árnesinga SG Búðin Rage against the Machine: Rokkveisla í Kaplakrika Um 4000 ungmenni þyrptust í Kapla- krika í Hafnarfirði á laugardags- kvöld á eina af stærstu rokktónleik- um sumarsins. Það var Rage against the Machine sem tróð upp, hljóm- sveit sem er bæði umdeild og vin- sæl. íslensk ungmenni ætluðu sér ekki að missa af þessum viðburði, símalínumar í miðasölu Listahátíð- ar voru rauðglóandi síðustu dagana fyrir tónleikana og komust færri aö en vildu. Hitinn var gífurlegur og troðning- úrinn mikill en unglingarnir skemmtu sér konunglega og vom ánægðir. Það sem þeir kvörtuðu helst undan var hversu stuttir tón- leikarnir voru, enda bjuggust flestir við því aö Rage against the Machine yrði lengur en klukkutíma á sviðinu. Vinsældir þeirra má ekki síst rekja til texta laganna. Þar deila þeir hart á allt sem þeim finnst mega fara bet- ur í þjóðfélaginu. Fyrr á þessu ári komst lagið Killing in the name á toppa vinsældarlista víða um heim, líka á íslandi. Textinn í því lagi þótti reyndar svo harður að lagið var bannað á fjölmörgum útvarpsstöðv- um en þrátt fyrir það náði það gífur- legum vinsældum. Enda sást það á áheyrendum sem vom vel meö á nótunum þegar það hljómaði í Kapla- krikanum. HMR Jóhann Rafnsson og Kári Hallsson eru miklir aðdáendur hljómsveitar- innar. Kári iét sig ekki muna um að koma frá Blönduósi sérstaklega fyr- ir tónleikana og svo var eins um marga aðra. rvuuanaivi ii^icniiduuriiin meiiuive Ifcfí sig ekki vanta og skemmti sér vel. Mannfjöldinn tók vel undir í laginu Killing in the name. DV-myndir HMR I myndbandinu við Killing in the name sést þegar einn áhorfandinn fer upp á svið og söngvarinn leyfir honum að vera þar. Það voru nokkrir sem reyndu þetta á laugardagskvöldið og einum tókst það. Gunnar Guðmundsson og Finnbogi Hafþórsson, tónleikarnir góðir en hávaðinn ekki nógu mikili! Hörn Harðardóttir, Asa Róbertsdótt- ir og Helena Guichernaud dönsuðu allan timann og voru því þreyttar og ánægðar og hefðu viljað vera lengur. Veriö velkomin! HUSGOGN FAXAFENI 5 SÍMI 674080 / 686675 Góð sveifla hjá Bogomil Font Á þjóðhátíðardaginn kemur á Font. Hann ásamt milljónamæring- helgina fyrir fullu húsi. markaðinn fyrsta plata Bogomil unum tróð upp á Tveimur vinum um Á bak við gleraugun leynist Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font. DV-myndir HMR Orðrómurinn segir að það sé bara á böllum hjá Bogom- il Font sem ungt fólk tekur upp hald og fer út á gólf i pörum. Góð stemning í Bæjarbíói Blúsaðdáendur fjölmenntu í Bæj- arbíó á fóstudagskvöld til að hlýöa á Vini Dóra ásamt Chicago Beau og Deitru Farr. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Chicago Beu og Deitra Farr koma hingað til lands, en þrátt fyrir það treysti Deitra sér ekki til að bera fram nafn Haínarfjarðar. Stemningin var góö og greiniiegt að menn voru vel með á nótunum. Deitra Farr náði að hrífa allan salinn með sér í söng, þar með talinn Chicago Bau sjálfan. DV-myndir HMR Halldór Bragason tók áskorun frá Deitru Farr og plokk- aði gítarinn með tönnunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.