Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1995, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 13. MARS 1995 25 stýrði sínum mönnum til frækins sigurs. Hér tekur hann frákast með tilþrifum en Herbert Arnarson ÍR-ingur horfir á: DV-mvnd Brvniar Gauti fkkert svar lírslitm eftir glæsilegan sigur á IR, 98-73 sinri fingur. Sérstaklega voru þeir Alexander Ermolinskij og Tómas Hol- ton gestunum erfiðir en þeir fóru bók- staflega hamförum. Borgnesingar juku muninn jafnt og þétt og þó að IR-ingar sýndu smálífsmark undir lokin var aldrei spurning hvorum megin sigur- inn mundi lenda. ÍR-ingar urðu að játa sig sigraða og Borgnesingar juku mun- inn í 25 stig í lokin en það var mesti munurinn í leiknum. Frábær liösheild Það var frábær liðsheild sem skóp sig- ur Borgnesinga. Baráttan og leikgleðin var gífurleg og leikmenn höfðu trú á því sem þeir voru að gera. Eins og áður sagði voru Ermolinskij og Tómas bestu menn liðsins. Ari og Sveinbjörn Sigurðsson áttu frábæra kafla og aðrir stóðu vel fyrir sínu. Ætlum lengra „Þetta var mjög gott lengst af en ég er óánægður með byrjunina hjá okkur. Við settum markið hátt fyrir úrslitin og ætlum lengra," sagði Tómas, þjálf- ari Skallagríms, ánægður í leikslok. ÍR-ingar náðu sér aldrei á strik og fengu aldrei tækifæri til að leika sinn bolta. Máttarstólparnir Herbert Arn- arson og John Rhodes hafa oftast leik- ið betur þó að þeir hafl verið atkvæöa- mestir. Herbert lék reynar mjög vel í lokin en það kom of seint. Jón Örn Guðmundsson byrjaði vel en gekk lítið þegar á leið og má segja það um flesta leikmenn liðsins. Misstum einbeitinguna „Við misstum einbeitinguna eftir góða byrjun. Þeir léku mjög vel og unnu verðskuldað en ég er samt stoltur af leikmönnum mínum. Þeir hafa leikið frábærlega í vetur og það hefur verið heiður að þjálfa þá. Við setjum nú stefnuna á að gera betur á næsta tíma- bili,“ sagði John Rhodes, þjálfari ÍR, eftir leikinn. Iþróttir „Eg er mjog svekktur" Rábeit Róbertsson, DV, Borgaxnesi: „Ég er eðlilega mjög svekktur að hafa verið látinn fara frá Grindavík á þeim forsendum sem gefhar eru upp. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálf- ari gefur þá skýringu að ég hafi verið of þreyttur að keyra á mifli Reykjavíkur og Grindavíkur en ég bý hjá kærustu rninni í Reykjavík. Ég vildi vera þar áfram í stað þess að búa í Grindavík. Ég tel þessa keyrslu á milli staða ekki hafa haft áhrif á getu mína í leikjum né á æfingum. Það er ýmislegt annað nefnt eins og aö ég hafi verið of dýr en ég var ekki eini leikmaðurinn á launum. Það er ekki ódýrara fyrir Grinda- vík aö fá nýjan erlendan leik- mann,“ sagði Franc Booker í spjalli við DV eftir leik Skallagríms og ÍR í Borgarnesi í gær. Booker var sem kunnugt er rek- inn frá úrvalsdeilarliði Grindavík- ur á föstudag eftir fyrri leik liðsins gegn Haukum í úrslitakeppninni. Brottreksturinn kom mjög á óvart þar sem Booker hefur verið einn besti leikmaður liðsins og lék m.a. frábærlega þegar liðið sigraði Njarðvík í úrsfltum bikarsins fyrir stuttu. „En ég verð að taka þessu eins og maður og ber alls engan kala til Grindvíkinga. Þvert á móti á ég þar marga vini í liðinu og ég vona að þeir standi sig sem best í úrslita- keppninni. En þaö er mjög leiðin- legt að fá ekki að taka þátt í úrslita- keppninni, sem framundan er, sér- staklega af því aö mér finnst ég hafa staöið mig vel með liðinu. Nú mun ég einbeita mér að því að ala upp ungan son minn og taka mér smáfrí frá körfuboltanum. Ég veit ekki hvað gerist á næstunni. Ég mun reyna fyrir mér í Banda- ríkjunum í sumar en hver veit nema ég leiki aftur á íslandi næsta haust,“ sagði Booker en hann hefur leikið hér á landi í nokkur ár, bæði með ÍR og Val, áður en hann gekk til liðs við Grindavík. Handknattleikur kvenna: Fram og Stjarn- an standa vel Helga Sigmundsdóttir skrifar: Stjarnan og Fram eru með undir- tökin í baráttunni um sæti í úrslitum íslandsmóts k-venna í handknattleik. Stjarnan vann ÍBV í Garöabæ á fóstudagskvöldið, 28-24, og Fram vann Víking í Framhúsinu á laugar- daginn, 22-20. Öðrum leik ÍBV og Stjörnunnar, sem fram átti að fara í Eyjum í gærkvöldi, var frestað og verður hann leikinn í kvöld klukkan 20. Önnur viðureign Víkings og Fram verður sömuleiðis í kvöld og hefst klukkan 18 í Víkinni. Fyrri hálfleikurinn hjá Fram og Víkingi var mjög jafn og skiptust lið- in á aö hafa forystu. Staðan í leikhléi var 10-10. Framliðið kom sterkt til seinni hálfleiks og náði góðri forustu, 16-12. Víkingur náði að jafna, 20-20, þegar 4 mínútur voru til leiksloka. Það dugði skammt því Fram náði að skora tvö seinustu mörkin í leiknum. Kolbrún Jóhannsdóttir, markvörð- ur Fram, stóð fyrir sínu og varði 15 skot og eitt víti. Hanna Katrín Frið- riksen lék vel ásamt liðsheild Fram. Díana Guðjónsdóttir stóð sig vel á vítalínunni. Hjördís Guðmundsdóttir, mark- vörður Víkings, varði vel á köflum, 11 skot og þar af 2 vítaköst. Heiða Erlingsdóttir og Halla María Helga- dóttir voru allt í öllu í liöi Víkings en Halla hefur samt oft leikið betur. „Ég er mjög ánægð með leikinn. Þetta var spurning um hvort liðið gerði færri mistök. En þetta hafðist í lokin á mikilli baráttu. Leikurinn á mánudaginn verður rosalega erfiður en við höfum oftast leikið vel í Vík- inni svo að við tökum þetta í tveimur leikjum," sagði Hafdís Guðjónsdóttir, leikmaður Fram. Gangur leiksins: 1-3, 4-3, 6-6, 9-8, 10-10.12-11,14-11,16-12,17-14,18-16, 19-17, 20-19, 20-20, 22-20. Mörk Fram: Díana 5/5, Hanna 4, Selka 3/1, Steinunn 2, Berglind 2, Þórunn 2, Kristín 2, Arna 1, Hafdís 1. Mörk Víkings: Halla 10/4, Heiða 6/1, Hanna 3, Guðmunda 1. Stjarnan var betri Stjarnan vann fyrri leikinn gegn ÍBV í Garðabæ á föstudagskvöldið, 28-24. Staðan í leikhléi var 13-12 fyrir Stjörnuna. Stjarnan var yfir allan leiktímann ef undan eru skilin tvö skipti í fyrri hálfleik. Mörk Stjörnunnar: Guðný 8, Lauf- ey 8, Erla 5, Ragnheiður 4, Inga 2, Hrund 1. Sóley varði 7 skot og Fann- ey 3/1. , Mörk IBV: Andrea 7, Jutith 7, Elísa 3, Sara G. 3, Stefanía 2, Katrín 1, María 1. Vigdís varði 3 skot og Lauf- ey 3. Skallagrímur - ÍR (45-32) 98-73 4-7, 7-17, 18-19, 26-28, 41-28, (45-32), 53-37, 58^12, 68^16, 73-53, 78-61, 84-65, 92-68, 98-73. • Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskij 30, Sveinbjörn Sigurðsson 20, Tómas Holton 16, Ari Gunnarsson 14, Henning Henningsson 7, Gunnar Þor- steinsson 4, Grétar Guðlaugsson 4, Hlynur Leifsson 2, Sigmar Egilsson 1. • Stig ÍR: Herbert Arnarson 31, John Rhodes 17, Jón Örn Guðmundsson 9, Eiríkur Önundarson 8, Björn Steffensen 6, Eggert Garðarsson 2. Fráköst Skallagrímur 33, ÍR 28.: ■ 3ja stiga körfur: Skallagrimur 11, ÍR 5. Vítanýting: Skallagrímur 13/9 (69%), ÍR 12/8 (66%). Villur: Skallagrímur 17, ÍR 18. Dómarar: Kristján Mölier og Kristinn Óskarsson, stóðu sig vel. Áhorfendur: Rúmlega 600 (troðfullt). Maður leiksins: Alexander Ermolinskij, Skallagrími.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.